Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Blaðsíða 81
Félagsmál VFÍ/TFÍ 79
Útgáfunefnd VFÍ og TFÍ
Utgáfumál Vcrkfræðingafélagsins, sem nefndin hefur umsjón með, liafa gengið vel og áfalla-
laust á liðnu starfsári. 1 útgáfunefnd hafa starfað, frá VFI: Kristinn Andersen formaður,
Olafur Pétur Pálsson og Ragnar Ragnarsson (ritstjóri Arbókar); frá TFI: Einar H. Jónsson.
Blaðnefnd Verktækni var óbreytt frá fyrra ári, en þar störfuðu Kristinn Andersen frá VFÍ
(formaður), Einar H. Jónsson frá TFÍ og Árni Geir Sigurðsson frá SV, auk ritstjóra. Öfluga
og reglubundna útgáfustarfsemi ber ekki síst að þakka Sigrúnu Hafstein, ritstjóra Verktækni,
og Ragnari Ragnarssyni, sem ritstýrir Árbók VFI/TFI. Þessi tvö rit hafa nú, eins og undan-
farin ár, verið þungamiðjan í útgáfumálum á vegum nefndarinnar.
Ellefta hefti Árbókar VFÍ/TFÍ, fyrir starfsárið 1998/1999, kom út í lok ársins 1999 og
átti Ragnar Ragnarsson, ritstjóri bókarinnar, veg og vanda af henni. Árbókin er í einu bindi,
samtals 396 síður, sem er ijölgun um 12 síður frá fyrra ári. Upplag bókarinnar var um 2000
eintök. Allir félagar VFI og TFI, sem samtals eru yfir 1700, fá bókina senda heim og er hún
innifalin í félagsgjöldum félaganna. Kostnaður við Árbókina er að miklu leyti borinn uppi
af auglýsingum og kynningargreinum sem ritstjóri aflar.
Árbókin er að vanda efnismikil og með svipuðu sniði og undanfarin ár. Bókin hefst á
köflum um félagsmál Verkfræðingafélagsins, Tæknifræðingafélagsins og tengdra félaga. Þá
taka við kaflar um tækniannál 1998/1999 og kynningar stofnana og íyrirtækja. Ritrýndar
greinar eru fjórar og aðrar tækni- og vísindagreinar eru sex. Þessar greinar gefa bókinni
mikið gildi sem fræðirit. Þær gefa innsýn í þau verkefni sem fengist er við hverju sinni og
eru til marks um það tæknistig sem verk- og tæknifræðingar búa yfir á íslandi.
Blaðið Verktækni, sem sameiginlega er geftð út af VFÍ, TFÍ og SV, hefur tekið nokkrum
breytingum á liðnu starfsári. Brot blaðsins var fært niður í stærðina A4 og hönnuður fenginn
til ráðgjafar og vinnu við útlitshönnun blaðsins. í viðhorfskönnunum meðal félagsmanna
VFI og TFÍ hefur komið ífam almenn ánægja með útgáfu VT og má þvi telja að vinna að
blaðinu sé á réttri leið. Enn er unnið að þróun blaðsins varðandi útlit og efni. Sigrún Hafstein
hefur ritstýrt blaðinu eins og undanfarin ár. Blaðið hefur að jafnaði komið út hálfsmánaðar-
lega frá september til júní, en á vormánuðum 2000 hefur verið gerð tilraun með útgáfu á 3—4
vikna fresti og svigrúmið nýtt til að efla efni blaðsins. Upplag blaðsins er 3000 eintök og því
er dreift endurgjaldslaust til félagsmanna, en að auki er því dreift til tjölmiðla, auglýsenda
og ýmissa íyrirtækja og stofnana. Fjármál Verktækni hafa gengið eftir áætlunum og eru
reikningar blaðsins fyrir árið 1999 endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda.
Útgáfunefnd
Kristinn Andersen formaður
VIÐ LEYSUM VANDAMÁLIÐ
Sögun Borun Brot Smágröfur
Bortækni-Verktakar ehf
567-7570 fax.567-7571 gsm.892-7016 896-8288