Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2000, Blaðsíða 316
314 Árbók VFÍ/TFÍ 1999/2000
Lokaorð
Meginniðurstaða þessa verkefnis er nokkuð sem ekki hefur verið skoðað í líkönum sem
þessu áður, að leið rafstraums, sem stjórnar straumþéttleikasviði í rafskauti, er ráðandi þáttur
í hitasviði neðri hluta rafskauts. Varmaflutningsrandskilyrði, sem áður voru nokkum veginn
óþekktar stærðir, hafa einnig verið reiknuð út frá gefnum umhverfishitastigum inni í ofni.
Niðurstöður þessara útreikninga, ný randskilyrði Soderberg-líkans, gefa niðurstöður á
hitasviði inni í rafskauti, sem em í nokkuð góðu samræmi við fyrri mælingar á hitastigi inni
í rafskauti [5].
Næstu skref verkefnisins gætu verið þau að setja saman heildarlíkan úr þessum
undirlíkönum (varmageislun, varmaburður, rafskautalíkan og orkuflutningur til og frá ljós-
boga), þar sem stikar þess eru ákveðnir á einum stað. Fínna reikninets í elemenllíkönum raf-
skautsmassa og loftstreymis er einnig þörf í framtíðinni, til að niðurstöður verði skýrari.
Mæliniðurstöður á gashitastigum á mismunandi stöðum ofan fyllu í ofnum með Söderberg-
rafskautum þurfa einnig að fást til að hægt sé að bera þær saman við niðurstöður úr loft-
streymislíkani.
Höfundar vilja þakka Islenska jámblendifélaginu fýrir að styrkja þetta verkefni. Einnig
ber að þakka Svend Grádahl, verkfræðingi hjá Sintef, fyrir hitamyndatökur og fleiri hjá
Sintef og Elkem i Noregi fyrir veitta aðstoð.
Heimildir
[1] Holman, J.P. Heat Transfer. McGraw-Hill. Alþjóðleg útgáfa. 1997
[2] Guðrún Sævarsdóttir. Tölulegar niðurstöður úr Ijósbogalíkani. NTNU, Þrándheimi. 2000
[3] Larsen, Hilde Loken. AC Electric Arc Models for a Laboratory Set-up and a Silicon Metal
Furnace. Dr. Ing. ritgerð. NTH Þrándheimi. 1996
[4] [Höfund vantar]. Mœling á straumi í Flexum við Ofn 1. Grundartangi. Október 1986
[5] Pálmi Pétursson. Sensitivity Analysis and Verification of a 3D Söderberg Finite Element Model.
Háskóli Islands. Reykjavík. Janúar 1999.
[6] Halldór Pálsson, Dr. Magnús Þór Jónsson, Dr. Helgi Þór Ingason. A Three-Dimensional Finite
Element Model for the Baked Part of a Söderberg Electrode. Reykjavík. Júlí 1996
[7] ANSYS GUI Help Manual, ANSYS Release 5.5. 1998. SAS IP, Inc. ©
[8] Grádahl, Svend, Johansen, Stein Tore. Groingav Gasskanaler, Sluttrapport. SINTEF-skýrsla nr.
STF34 F93234. Málmefnisfræðideild SINTEF. Þrándheimi, Noregi. Nóvember 1993.
[9] Guðrún Sævarsdóttir. Measurements on a Ferro-Silicon Furnace during the melt-down period.
SINTEF-skýrsla nr. STF24F98663. Þrándheimur, Noregi. September 1998.