Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2001, Page 316
314 Árbók VFÍ/TFÍ 2000/2001
rófin á báðum stöplum lík. Þetta gildir fyrir báða jarðskjálftana. Þetta eru sveiflutímar sem
tilheyra svokölluðum færslustýrðum hluta svörunarrófa. Þessar niðurstöður passa vel við
færslutímaraðirnar sem eru mjög áþekkar á austur- og vesturbakka árinnar.
Niðurstöður og lokaorð
Mikilvæg niðurstaða varðandi svörun Þjórsárbrúarinnar er að hún stóðst jarðskjálftaáraun-
ina frá tveimur stórum jarðskjálftum. Sá fyrri var af stærðinni Mw=6,6 með upptök í 16 km
íjarlægð og sá seinni var af stærðinni Mw= 6,5 í 5 km íjarlægð. Fjarlægðin í brotfletina eða
jarðskjálftasprungurnar er enn minni, en oft er miðað við þá fjarlægð fremur en skjálfta-
miðju.
Jarðskjálftagreining á brúnni áður en hún var styrkt sýndi að legumar í brúnni væru
veikasti hlekkur hennar. Mæld jarðskjálftaáraun í Suðurlandsskjálflunum 2000 var mun
hærri cn það sem upphaflegar legur þoldu reikningslega. Araunin var einnig meiri en það
sem stálboginn þoldi reikningslega. Þetta þýðir að ef brúin hefði ekki verið jarðskjálfta-
einangruð eru allar líkur á að hún hefði skemmst illa í Suðurlandsskjálftunum 2000.
Vettvangsskoðun og mælingar sýna að mismunafærsla stálboga og stöpla í langstefnu
var mikil í jarðskjálftanum 21. júní og leiddi til plastískra formbreytinga og orkuummynd-
unar í blýkjarna leganna. Sömuleiðis hafa orðið plastískar formbreytingar í þverstefnu í
skjálftanum en í minna mæli. I jarðskjálftanum 17. júní sýna mælingarnar litlar plastískar
formbreytingar í langstefnu og engar í þverstefnu. Það er því Ijóst að legurnar hafa ein-
angrað stálbogann, sérstaklega í seinni jarðskjálftanum, og leitt til sveifludeyfingar sem
hefúr dregið úr svörun hans.
Áhrif þess að lcngja grunneiginsveiflutíma brúarinnar (perido-shift) með jarðskjálfta-
einangruninni eru óveruleg þar sem lítill munur er á grunneiginsveiflutíma brúarinnar fyrir
og eftir einangrun.
Mælt útgildi yfirborðshröðunar, PGA, á brúarstæðinu var 0,53g í jarðskjálftanum 17.
júní og 0,84g í jarðskjálftanum 21. júní. Samanburður á svörunarrófúm þessara tveggja
jarðskjálfta við svörunarróf Imperial Valley jarðskjálftans frá 1940 sem mælt var í E1 Centro
með 0,33g PGA, sýnir hversu villandi það getur verið að nota PGA sem mælikvarða á
jarðskjálftaáraun. Fyrir eiginsveiflutíma sem eru mikilvægastir fyrir svörun brúarinnar gefúr
E1 Centro rófíð meiri áraun en rófín frá jarðskjálftanum frá 17. júní, bæði í langstefnu og
þverstefnu. Fyrir jarðskjálftann frá 21. júní er álagið sambærilegt fyrir þverstefnuna, en
afturámóti fyrir langstefnuna er álag frá Suðurlandsskjálftanum mun meira en E1 Centro
rófið gefur.
Svörunarróf Suðurlandsskjálftanna 2000 við Þjórsárbrú sýna að mannvirki með
eiginsveiflutíma sem er lengri en u.þ.b. 0,8s taka á sig mun minni jarðskjálftaáraun en stífari
mannvirki. Þetta má hafa í huga þegar ný mannvirki eru hönnuð á þessum slóðum.
Vegna mismunandi gerðar jarðlaga á austur- og vesturbakka brúarstæðisins er mikill
munur á yfirborðshreyfingunni á sínum hvorum árbakkanum. Munurinn er mestur fýrir
hátíðnibylgjur en minni fyrir lágtíðnibylgjur. Lágtíðnihreyflngin er mikilvægust fyrir
jarðskjálftaeinangruð mannvirki.
Verkefni þetía er stutt af Vegageróinni og eru henni fœrðar bestu þakkir fyrir.