Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2002, Blaðsíða 85
O R K U M Á L
Orka og orkuverð
Orkunotkun og orkuvinnsla: Heildarvinnsla á orku og notkun á innfluttri orku nam
143,6 PJ á árinu 2001 á móti 136,8 PJ árið á undan.
Enn á ný jókst heildarorkunotkun landsmanna meira en fólksfjöldinn. Þannig jókst
orkunotkun á mann um 3,7% á mili ára, sem er fyrst og fremst vegna enn aukins vægis
stóriðju í atvinnustarfsemi.
Raforkuvinnsla jókst um 4,5% frá fyrra ári, einkum vegna aukinnar stóriðju. Sala raforku
til stóriðju jókst um 5,8% og um 2,0% til almennings. Samtals nam raforkuvinnslan 8028
GWh eða 28,2 MWh á hvern íbúa, sem er meira en í nokkru öðru landi.
Hlutur vatnsorku í heildarorkunotkun landsmanna var 16,5%.
Vinnsla jarðhita jókst um 7,2% og er þá hlutdeild jarðhitans í heildarorkunotkuninni
54,9%.
Hlutur innfluttrar orku (jarðefnaeldsneytis) í heildarbúskapnum nam 28,6% og hafði
hlutfallið lækkað lítillega frá fyrra ári.
Meðalorkunotkun hvers íslendings er sjöföld meðalnotkun annarra jarðarbúa. Við vinnum
rúmlega 70% af okkar orku úr endurnýjanlegum orkulindum, en hlutfall slíkra orkulinda
í orkubúskap heimsins er aðeins 10%.
Verðlag á orku: Gjaldskrá Landsvirkjunar hækkaði um 4,9% hinn 1. júlí 2001.
Niðurgreiðslur á rafhitun voru óbreyttar. í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akranesi lækkaði
heimilistaxti um 4,5 til 11%, en annars staðar hækkaði taxtinn um 4,6 til 6,6%. Iðnaðartaxti
lækkaði í Hafnarfirði en hækkaði annars staðar. þar sem almennt neysluverð hækkaði
meira milli ára en verð á raforku lækkaði hlutur raforku í vísitölu neysluverðs.
Verðlag á heitu vatnihækkaði hjá flestum landsmönnum. Gjaldskrá Orkuveitu
Reykjavíkur hækkaði um 4,9% og hjá Hitaveitu Suðurnesja hækkaði um 6,2%, en hafði
verið óbreytt í krónutölu áratug þar á undan. A Akranesi lækkaði vatnsverð 35% og
hitastigsleiðréttingu var hætt. A mælikvarða vísitölu neysluverðs lækkaði húshitunar-
kostnaður.
Flestar tegundir eldneytis hækkuðu á á árinu. Dísilolía á bíla hækkaði um 6%, bensín
hækkaði um 3% og svartolía um 15%. Skipagasolía lækkaði um 5% á árinu.
Tæknianná
2001/2002