Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Blaðsíða 21
1.1.3 Skýrslur KTFÍ og STFÍ
starfsárið 2004-2005
KTFÍ-Kjarafélag Tæknifræðingafélags íslands
Aðalfundur Kjarafélags Tæknifræðingafélags Islands var haldinn 14. apríl 2004 að
Engjateigi 9. Gengið var til dagskrár samkvæmt lögum, flutt var skýrsla stjórnar og
nefnda. Engar óskir um lagabreytingar höfðu borist.
Stjórnarkjör fór fram og var formaður kosinn Bjarni Bentsson. Eftirtaldir voru kosnir í
stjórn til tveggja ára: Haraldur Sigursteinsson, Samúel Smári Hreggviðsson og Kristjón
Jónsson. Þór Sigurþórsson var kosinn í stjórn til eins árs. Varamenn til eins árs voru kosn-
ir Gústaf Adolf Hjaltason og Óli Jón Hertervig. Félagslegir endurskoðendur voru kjörnir
Sigurþór Guðmundsson og Guðjón H. Arnason, til vara Brandur B. Hermannsson.
Fyrsti fundur stjórnar var haldinn mánudaginn 3. mars og skipti stjórnin þannig með sér
verkum: Formaður er Bjarni Bentsson, varaformaður Jón ísaksson Guðmann, gjaldkeri
Haraldur Sigursteinsson, ritari Kristjón Jónsson og meðstjórnendur Arni Þór Arnason,
Þór Sigurþórsson og Samúel Smári Hreggviðsson. Þeir Árni og Þór voru skipaðir full-
trúar KTFI í stjórn TFÍ og Gústaf Adolf Hjaltason í fulltrúaráð OBHM.
í Vísinda- og endurmenntunarsjóð voru skipaðir fulltrúar fyrir KTFÍ þeir Haraldur
Sigursteinsson og Bergþór Þormóðsson. í stjórn Fjölskyldu- og styrktarsjóðs KTFÍ voru
skipaðir Óli Jón Hertervig sem formaður og með honum Samúel Smári Hreggviðsson og
Þór Sigurþórsson. I nýtilkomna stjórn Sjúkrasjóðs KTFI voru skipaðir Gústaf Adolf
Hjaltason sem formaður, Guttormur Guttormsson og Árni Þór Árnason.
Ákveðið var að funda á mánudagskvöldum á hálfsmánaðar fresti. Alls voru 16 fundir
haldnir á árinu en stjórnin tók sér frí frá fundum um sumarið. Helstu verkefni stjórnar
voru hefðbundin og verða þau helstu t,íunduð hér á eftir:
Upplýsingamöppu um málefni KTFÍ var viðhaldið á árinu.
Kjarakönnun var gefin út á árinu og var um að ræða laun árið 2002 og septemberlaun 2003.
Kjarakönnun var einnig gerð á árinu og viðfangsefnið var árið 2003 og septemberlaun
2004. Þessi könnun var gerð á netinu og tókst nokkuð vel, svarhlutfall var rúmlega 50%.
All mörg mál félagsmanna komu til kasta stjórnar og voru nokkur þeirra send lögfræð-
ingi félagsins til skoðunar og ályktunar.
Forrmaður og varaformaður sóttu norrænan launafund í Danmörku í september 2004.
Mörg málefni voru þar á dagskrá. Sem dæmi má nefna: „Outsourcing" norrænna fyrir-
tækja, þ.e. flutningur starfa frá Norðurlöndunum til m.a. Austur-Evrópu, Indlands og
Kína. Eins var fjallað um hugsanlegt aðstreymi á vel menntuðu og ódýrara vinnuafli frá
A-Evrópu, þar á meðal verk- og tæknifræðingum. Það hefur þó ekki orðið raunin í þeim
mæli sem spáð hafði verið.
Sameiningarmál TFI, VFÍ og SV voru til umfjöllunar allt árið og er að sjá að verulegur
skriður sé á þeim málum. Gústaf Adólf Hjaltason, sem er varamaður í stjórn KTFÍ, sat í
nefnd þeirri sem vann að þeim málum og skilaði nefndin niðurstöðu á árinu um hvernig
staðið skyldi að sameiningu félagana. Stjórn KTFI mun áfram fylgjast grannt með þróun
þessa máls með jákvæðu hugarfari gagnvart málefninu en hugmyndirnar verða kynntar
ýtarlega í félögunum.
1 9
Félagsmál Vfí/TFÍ