Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Blaðsíða 61
Um sjóðfélagalýðræði
Lífeyrissjóður verkfræðinga hefur um langt skeið haft sérstöðu meðal íslenskra lífeyris-
sjóða í ýmsum efnum, m.a. fyrir virkt sjóðfélagalýðræði. Fleiri sjóðfélagar mæta jafnan á
aðalfundi sjóðsins en dæmi sjást um hjá öðrum sjóðum.
Lýðræði innan sjóðsins felst í málfrelsi, tillögurétti, atkvæðisrétti og kjörgengi allra
sjóðfélaga og hefur svo verið frá upphafi. Af þessu geta sjóðfélagar verið stoltir. Lýðræðið
hefur þó í sumum tilvikum einnig stuðlað að óróa og gagnrýni á sjóðinn, en jafnframt
skapað frjóa umræðu um störf stjórnar sjóðsins eins og vera her.
Til að efla lýðræði sjóðsins enn frekar eru hér gerðir að umtalsefni tveir fletir á þátttöku
sjóðfélaga í stjórnun sjóðsins: Annars vegar að auka svigrúm þeirra til að koma með
tillögur um breytingar á samþykktum og hins vegar að breyta tilhögun stjórnarkjörs.
í samþykktum sjóðsins er ákvæði um að tillögur frá sjóðfélögum til breytinga á sam-
þykktum megi því einungis taka fyrir, að þær hafi borist stjórn sjóðsins fyrir 15. janúar ár
hvert. Þessi tímamörk eru að mati stjórnar sjóðsins óþarflega þröng og líkleg til að draga
úr líkum á að tillögur berist frá sjóðfélögum. Því telur stjórnin ástæðu til að taka þetta
ákvæði til endurskoðunar með það í huga að stytta frestinn.
Stjórnin vill einnig huga að því að taka upp ákvæði um framboðsfrest í kjöri til stjórnar.
Hingað til hefur verið unnt að stinga upp á sjóðfélögum í stjórnarkjör á aðalfundi, en að
mati stjórnar getur verið æskilegt að kalla eftir framboðum með minnst tveggja vikna
fyrirvara. Með því verði unnt að senda sjóðfélögum upplýsingar um frambjóðendur með
fundargögnum í pósti eigi síðar en viku fyrir aðalfund. Þannig gæfist sjóðfélögum - og
frambjóðendum - kostur á að kynna sér frambjóðendur, reynslu þeirra og stefnu, áður en
á aðalfundinn væri komið. Fyrri tilhögun gat hentað á meðan sjóðfélagar voru tiltölulega
fáir og einsleitur hópur. Nú er fjöldi sjóðfélaga orðinn mikill og úr margvíslegum starfs-
stéttum og því líklegt að einungis fáir sjóðfélagar þekki til þeirra sem eru £ framboði.
Að lokum skal hér nefndur sá kostur að sjóðurinn leggi aukna áherslu á sjóðfélagafundi.
Tveir slíkir voru haldnir á liðnu starfsári, sá fyrri þann 5. október sl. í tilefni 50 ára
afmælis sjóðsins og sá síðari þann 4. mars sl. um fyrirhugaðar breytingar á réttinda-
kerfum sjóðsins. Fundirnir voru vel sóttir og umræður líflegar. Mætti hugsa sér að leitast
væri við að halda fund á hverju hausti um málefni sem varða starfsemi sjóðsins, fjár-
festingar eða breytingar í starfsumhverfinu.
Rekstur og þjónusta
Lífeyrisgreiðslur sjóðsins námu rúmum 178 milljónum króna á árinu 2004 og hækkuðu
um 21,2%. Alls fengu 169 einstaklingar greiddan lífeyri úr sjóðnum á árinu og voru tíu
fleiri en árið áður. Ellilífeyrisþegar voru 117 talsins, örorkulífeyri fengu níu sjóðfélagar,
makalífeyrisþegar voru 34 og níu fengu barnalífeyri.
Lán til sjóðfélaga námu 316 milljónum króna á síðasta ári sem er um 16,2% lækkun milli
ára en um 20,9% lækkun milli ára miðað við byggingarvísitölu. Hlutfall sjóðfélagalána af
heildareign sjóðsins lækkaði því milli ára og er nú 22,7%. Vextir af sjóðfélagalánum voru
óbreyttir, 3,5% verðtryggðir vextir.
Þess skal hér getið að stjórn sjóðsins hefur beitt sér fyrir viðræðum við lánastofnanir um
samstarf um sjóðfélagalán til þess að bæta þjónustu við sjóðfélaga og losa um þá klemmu
sem getur myndast vegna þess að bankar og íbúðalánasjóður bjóða nú lán að 80-90%
veðmörkum, en lífeyrissjóðir mega samkvæmt lögum einungis lána upp að 65%
5 9
Félagsmðl Vfí/TFl