Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2005, Blaðsíða 93
V E G A IVl Á L
Bifreiðaeign
Samkvæmt tölum frá Skráningarstofunni hf. voru nýskráðar fólksbifreiðar 13.929 á árinu
2004 á móti 10.837 árið áður, sem samsvarar 28,5% fleiri skráningum. Á sama tíma voru
nýskráðar 129 hópferðabifreiðar á móti 108 árið áður sem samsvarar um 19,4% fleiri
skráningum. Nýskráðar vöru- og sendibifreiðar voru 2.443 á árinu 2004 en voru 1.674 árið
áður og er það um 46% fjölgun skráninga.
Innflutningur og nýskráning bifreiða jókst töluvert á árinu 2004 og er bifreiðafjöldi lands-
manna nú kominn yfir tvö hundruð þúsund bifreiðar. Fólksbifreiðaeign á hverja þúsund
íbúa er nú komin í 598 samkvæmt bráðabirgðatölum.
Bensíngjald
Bensínsala á árinu 2004 nam um 196,8 milljónum lítra og er salan 1,4% meiri en á árinu
2003. Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Ríkisbókhaldi voru innheimtar tekjur af bensín-
sölunni, þ.e. bensíngjaldið, 6.079 m.kr. árið 2004. Það er 535 m.kr. meira en tekjuspá vega-
áætlunar gerði ráð fyrir og 208 m.kr. meira en fjárlög gerðu ráð fyrir. Mismunur á
tekjuáætlun í vegaáætlun annars vegar og fjárlögum hins vegar stafar af því að frá því
vegaáætlun var samþykkt og þangað til fjárlög tóku gildi voru samþykkt lög um hækkun
bensíngjaldsins úr 28,60 kr. á lítra í 30,89 kr. sem er 8% hækkun. Sé tekið mið af hækkun
bensíngjaldsins urðu tekjur af bensíngjaldi 91 m. kr. hærri en gert var ráð fyrir í vega-
áætlun.
Á síðustu fimm árum hefur bensínsala á ári aðeins aukist um 3.2% þó svo bensín-
bifreiðum hafi fjölgað um rúmlega 12% á sama tíma. Ástæður má líklega rekja til þess að
nýjar bifreiðar eru með sparneytnari vélar en þær eldri.
Díselbifreiðum hefur fjölgað hlutfallslega mun meira á þessum tíma eða um 46,5%. Þær
eru þó enn aðeins ríflega 18% af heildarbifreiðaeign landsmanna en fyrir tíu árum, í
árslok 1994 var þetta hlutfall um 11%.
Bensíngjald hækkaði um 8% í ársbyrjun 2004, úr 28,60 kr./l í 30,89 kr./l, en hafði þá ekki
hækkað frá 1. júní 1999. Á sama tíma hækkaði byggingarvísitalan um 22%. Miðað við
byggingarvísitölu undanfarin ár hefði gjaldið mátt vera 40,24 kr./l 1. janúar 2005.
í ársbyrjun 2004 kostaði lítrinn af 95 oktana bensíni 100,90 kr. frá dælu á bensínstöð með
fullri þjónustu. Verð á bensíni lækkaði síðan í febrúar 2004 í 97,70 kr. en hækkaði aftur
seinni hluta febrúarmánaðar og fór síðan hækkandi næstu mánuði og náði hámarki í júní
þegar verðið fór í 113,30 kr./l. Verðið var síðan á bilinu 111,50 kr./l til 113,50 kr./l fram í
9 1
Tækniannál