Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 184
ustu.Um 1200-1300 flugvélar fljúga yfir Norður-Atlantshafið á hverjum sólarhring. Um
íslenska flugstjórnarsvæðið, sem er 5,4 milljónir ferkílómetrar að stærð og er eitt stærsta
flugstjornarsvæði heims, fara að meðaltali um 300 flugvélar á dag. Auk þess að stýra
flugumferðinni sér Isavia um flugprófanir á flugleiðsögubúnaði á íslandi og á Grænlandi
og í Færeyjum, en þær síðarnefndu þurfa að uppfylla kröfur og viðmið sem settar eru
fram í dönskum reglugerðum varðandi flugprófanir.
Chicago-samningurinn frá 1944 er þjóðréttarsanmingur sem 190 ríki hafa undirritað og
mnleitt í löggjöf sína. I meginatriðum fjallar hann um réttindi og skyldur ríkja í
alþjóðlegum loftsamgöngum og var grundvöllur að stofnun Alþjóðaflugmálastofnun-
annnar (ICAO). Við samninginn eru 18 viðaukar auk leiðbeiningarita. í viðaukunum eru
staðlar og leiðbeiningar um verklag og ber aðildarríkjum að fylgja stöðlunum, en ekki eru
samsvarandi skuldbindingar við leiðbeiningar. Ef ríki telur sig ekki geta uppfyllt staðla
er það tilkynnt til ICAO og birt sem sérákvæði hvers lands. Þannig vita notendur þjón-
ustunnar nákvæmlega hvaða flugvalla- og flugleiðsöguþjónusta er veitt á íslandi. í
síauknum mæli hafa stjórnvöld valið að innleiða viðkomandi viðauka með innlendum
reglugerðum og er þá sagt að hversu miklu leyti viðkomandi viðauki er innleiddur. í dag
er flugvalla- og flugleiðsöguþjónusta starfsleyfisskyld i samræmi við reglugerð nr.
631/2008 um starfsleyfi flugleiðsöguþjónustu sem byggir á viðaukum 3,4,10,11 og 15 og
reglugerð nr. 464/2007 um flugvelli sem byggir á viðauka 14. Flugmálastjórn Islands
veitir starfsleyfi og er eftirlitsstjórnvald, en hún annast samskipti við alþjóðastofnanir og
flugmálayfirvöld og sér til þess að flugöryggis- og flugverndarviðmið uppfylli alþjóða-
kröfur og skuldbiningar.
Isavia hefur ávallt lagt áherslu á að innleiða alþjóðlega viðurkennda staðla og þegar krafa
um gæðastjórnunarkerfi hefur verið sett fram í innlendum reglugerðum eða alþjóðlegum
skuldbindingum hefur það verið gert með ISO-viðmið í huga. Þannig er starfsemi flug-
upplýsingaþjónustunnar sem gefur út flugferla og upplýsingahandbók flugmála ásamt
því að sjá um GPS-mælingar fyrirtækisins og Flugfjarskipti (Gannet), sem er dótturfélag
Isavia og smnir fjarskiptum við flugvélar, bæði með ISO 9001 vottun frá Vottun hf.
Hvað er SMS (öryggisstjórnunarkerfi)?
SMS er alþjóðlega þekkt hugtak sem er að finna í kröfum og leiðbeiningaritum hjá
ýmsum aðilum í Evrópu og Bandaríkjunum sem fjalla um flugöryggi, en eftir því sem
fleiri aðilar taka það upp sem kröfu hefur skilgreiningum á þessu hugtaki fjölgað. Þæf
ganga þó allar út á það að stjórna öryggi á kerfisbundinn hátt til þess að ná ásættanlegU
öryggisstigi:
r = S x L
þar sem r — áhætta; S = alvarleiki/afleiðing og L = líkurnar á því að viðkomandi atvik
verði. Ahætta er þannig niðurstaða margra samverkandi þátta og til að minnka áhættu
þarf að huga að öllum sviðum fyrirtækis. Nauðsynlegt er að áhættumat sé framkvæmt
með aðkomu starfsmanna, stjórnanda og notenda þjónustunnar. Fer það fram í nokkrum
skrefum þar sem þátttakendur á hugarflugsfundi nefna allar þær hættur sem þeir sjá fyrh
og síðan er hvert atriði metið með tilliti til afleiðinga og hversu miklar líkur eru á henrti-
Stuðst er við eins mikið af tölulegum gögnum og hægt er. Ef notuð eru huglæg hugtök er
reynt að samræma skilning þeirra á meðal þátttakenda.
Til a(á áhætta sé alltaf innan ásættanlegra marka má skipta aðferðafræðinni niður á þrjú
svið:
a) Biegðnst við eftir A: Rannsaka öll atvik hvort sem þau hafa alvarlegar afleiðings^
eða ekki, ákvarða mikilvægustu þætti við úrlausn mála og koma með úrbætur;
1 8 2
Arbók VFl/TFl 2010