Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2010, Blaðsíða 272
Stór háskóli með sex deildir, hundruð starfsmanna og þúsundir nemenda hefur margar
og ólíkar þarfir. Stór opin svæði, fyrirlestrarsalir, lesstofur, tilraunastofur, fundarherbei'gi/
opnar skrifstofur, dómsalur, mötuneyti og bókasafn, auk fjölda kennslustofa eru nokkur
dæmi um fjölbreytileika rýma í skólanum. Hönnun hússins byggist á hringlaga formi þar
sem álmur, er hýsa mismunandi starfsemi, eru tengdar saman í einu miðsvæði. Nöfn
hinna mismunandi bygginga vísa í sólkerfið. Þannig er miðsvæðið nefnt Sól og álmurnar
sem eru allt um kring nefndar eftir reikistjörnunum . Næst Sól er Merkúríus, þá Venus og
svo koll af kolli. I byrjun árs 2010 voru álmumar Venus og Mars teknar í notkun ásamt
göngugötunni Jörð. Sólin og Uranus voru svo teknar í notkun um miðjan ágúst sama ár.
Hönnunarforsendur
Skólar eru vinnustaðir ungs fólks, staðir lærdóms og leikja á mótunarárum nemenda.
Mikilvægt er að nemendur heyri og skilji leiðbeiningar. Segja má að hvergi sé mikil-
vægara að fólki líði vel og að talað mál skiljist vel. Að hljóðvist í skólum sé góð skiptir
öllu máli. Það er því miður ekki alltaf raunin.
Huga verður sérstaklega að aldri nemenda þegar kemur að hljóðvist í skólum. I skólum
fyrir eldri nemendur er algengt að kennt sé í fyrirlestrarsölum. Það kallar oft á uppsetn-
ingu hljóðkerfa sem gefa aukinn hljóðstyrk. Þá eru samskipti milli nemenda oft veiga-
meiri á efri skólastigum og verður að huga að því. Á öllum skólastigum er mikilvægt að
takmarka hávaða í kennslu- og vinnurýmum. Á þetta bæði við um utanaðkomandi
hávaða, þ.e. frá öðrum rýmum, umferð og tækjabúnaði svo eitthvað sé nefnt, sem og
hávaða sem skapast í rýminu sjálfu. Því þarf hljóðdeyfing og hljóðeinangrun að vera sem
best svo skapast geti ró og næði. Þetta skilar sér í streituminna umhverfi fyrir bæði kenn-
ara og nemendur, auknum talskilningi og áhrifaríkari kennslu.
Við hönmm bygginganna var stuðst við þá hugsun HR að góð samskipti skuli vera millj
einstakra deilda skólans og að húsnæðið ýti undir þverfaglega kennslu og rannsóknir. 1
miðju skólabyggingarinnar er Sólin, yfirbyggt þriggja hæða torg þar sem opið er á milb
hæða. Er hugsunin að þar megi finna margvíslega þjónustu sem nýtist öllum deildum og
notendum hússins, nemendum jafnt sem kennurum. Ut frá þessari miðju liggja síðan
misstórar álmur til allra átta þar sem meginstarfsemi skólans fer fram. Er þar lögð mikil
áhersla á góða vinnuaðstöðu fyrir nemendur, s.s. með fjölda hópvinnuherbergja, lesstofa
o.þ.h., auk þess sem mikill metnaður hefur verið lagður í að eiginleg kennslurými séu
eins og best verði á kosið.
Kröfur til hljóðvistar eru jafn fjölbreyttar og rýmin eru mörg og á það jafnt við um hljóm-
burð sem hljóðeinangrun. Tvö gríðarstór rými eru í húsinu, annarsvegar Jörð sem er um
100 metra langur gangur og hinsvegar Sól sem er yfir 20.000 m3 opið miðsvæði. Var það
krefjandi verkefni fyrir hljóðvistarhönnuði að að sjá til þess að aðstæður í þessum rýmum
væru sem bestar. Það má þó ekki gleyma því að góð hljóðvistarhönnun fellur að annarri
hönnun byggingarinnar og áttu hljóðvistarhönnuðir Mannvits gott samstarf með arki-
tektum Henning Larsen og verkfræðingum á öðrum sviðum að útfærslu allra lausna.
Hljóðvist í skólum eru nokkuð vel skilgreind í reglugerðum, þ.e. lágmarkskröfur til
kennsluhúsnæðis. Er þar tekið til þátta s.s. hljóðeinangrunar milli rýma sem og úthliða
byggingarinnar, hávaða frá tækjabúnaði og ekki síst ómtíma. HR lagði áherslu á það að
öll hönnun hússins skyldi vera í samræmi við það sem best þykir í dag og á það ekki
síður við um hljóðvist en annað. í mörgum tilfellum þýddi það að hönnunarmarkmið
varðandi hljóðvist byggingarinnar voru sett mun hærra en krafist er af reglugerðum-
I þeim tilvikum var einkum miðað við sænskan staðal um hljóðflokkun húsnæðis-
Sérstaklega á þetta við um ómtíma í kennslurýmum og stærri opnum. rýmum þar sem
mikil áhersla var lögð á að skapa sem bestar aðstæður til kennslu og að lágmarka hávaða.
2 7 0
Arbók VFl/TFl 2010