blaðið - 24.04.2007, Blaðsíða 1
VEIÐI
HOLLTN
Veiðihöllin - Suðurlandsbraut 4 - 108 Reykjavík - Símar 533 1115 - 893 7654- mail: veidihollin@simnet.is
1 Veiði
PRIÐJUDAGUR 24. APRIL
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 • AUGLYSINGAR@BLADID.NET
18
Laxinn seinn
í Norðurá
19
Með veiðidellu
21
Góð veiði í
Minnivallalæk
22
Skylt að sleppa
öllum fiski
23
Margir hafa
fengið góða veiði
24
Kleifarvatn innan
vébanda Veiðikortsins
Verslunin Veiðiportið við Granda-
garð er 4 ára um þessar mundir. Þó-
nokkrar breytingar hafa átt sér stað
og er Tómas Skúlason orðinn einn
eigandinn að versluninni. Vöruúr-
val hefur verið aukið til muna og
opnunartímar yfir sumarið lengdir,
frá maí til september verður opið
alla daga vikunnar.
Næstum allar flugur eru komnar
i hús en Veiðiportið er þekkt fyrir
vandaðar íslenskar flugur sem eru
á mun betra verði en gengur og ger-
ist annars staðar. Nýir vöðlujakkar
voru að koma en þeir eru frá Gray-
ling, þriggja laga öndunarjakkar
í hæsta gæðaflokki, með stórum
vösum, stroffi á ermum og góðri
hettu. Þessir jakkar eru á ótrúlega
góðu verði, aðeins 18.900 kr., en þeir
koma í fjórum litum. Einnig höfum
við hafið sölu á Jóakims-stöngum
og hjólum en hjólin frá þessu fyrir-
tæki eru einkar vel smíðuð, rennd
úr heilu en ekki steypt sem tryggir
gæði og endingu. Jóakims-flugu-
stangirnar eru í fjórum hlutum og
koma í línustærðum frá 3 upp í 11 og
eru tvíhendurnar sérlega léttar og
skemmtilegar.
Veiðiportið hefur sérhæft sig í
ódýrum og vönduðum veiðivörum
frá Jaxon sem er 20 ára gamalt pólskt
fyrirtæki. Sem dæmi má nefna að
allir spúnar eru á 295 kr. (fyrir utan
finnsku lippuna), flugustangir frá
Jaxon eru frá 4900 kr., í hólk, Jaxon-
vöðlujakkar tveggja laga með út-
öndun á 9900 kr„ kasthjól frá 1550
kr„ sjóveiðihjól með raðara á 3900
kr„ Cortland 444-flotlínur á 4990 kr.
og brasstúpur í hæsta gæðaflokki á
310 kr. sem er um 50% lægra verð
en annars staðar. Veiðimenn geta
treyst á það að fá ódýrasta maðkinn
á sama verði allt tímabilið og einnig
er makríll fáanlegur.
Starfsmenn Veiðiportsins eru þrír,
Tómas Skúlason, eigandi og fyrrum at-
vinnufluguhnýtari, Baldur Ólafsson,
sem hefur veitt í öllum laxveiðiám á
íslandi, og Þorgils Helgason, leiðsögu-
maður og fluguhnýtari. Samanlagt
gefur þetta yfir 60 ára veiðireynslu og
leiðsögn í íslenskum ám og vötnum,
þannig að upplýsingar ættu að vera
á reiðum höndum um val á flugum,
taumum, línum, stöngum og öðru
því sem þarf að vera í lagi svo að veiði-
túrinn verði eftirminnilegur.
Stórsýning
5. maí laugardag 11-18
Smáralind
6. maí sunnudag 13-18
Tilboð á veiðivörum
Kastsvæði
Bjarnarhaus uppstoppaður á staðnum
Skotsvæði
Veiðibílar
Veiðiferðir Spennandi fyrirlestrar
^jjj^ Veiðifjórhjól i|||| Veiðihappadrætti
I. Yinningur „Veiði í Laxá á Ásum“
Frítt fyrir yngri en 14 ára í fylgd með fullorðunum ... annars kr. 1000, kr. 850 öryrkjar og ellilífeyrisþegar
... stimpill gildir alla helgina ...
ÓMISSANDI FYRIR ALLA VEIÐIMENN