blaðið - 24.04.2007, Page 6
cjOlÞJÓN USTa
Uuaer af Sesíu
faxueiðiám fancfsins
Gisting - golf - veiði
Gerum tilboð
Efri-Vík ehf 880 Kirkjubæjarklaustur
netfang: efrivikcasimnet.is • veffang: www.efrivik.is • sími: 487 4694
Upplýsingar í síma 567 5204
eða gsm 660 6890.
Netfang ellidason@strengir.is
Vefur www.strengir.is
22 • VEIÐI
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 Uaðið
Draumur laxveiðimannsins.
Kjarrá og Þverá eru með gjöfulustu
laxveiðiám landsins, þar veióast að
meðaltali um 4 Iaxar á stöng á dag.
Ámar eru mjög fjölbreyttar, lygnir
hyljir, breiður og straumharðir strengir
og landslagið er engu líkt.
Allur aðbúnaður er til fyrirmyndar í
glæsilegasta veiðihúsi landsins, matar-
gerðin er annáluð, herbergin eru
tveggja manna með baði. Gufubað og
heitir pottar ylja veióimönnum í lok
dags.
SPORÐUR ehf.
Lágmúla 7
108 Rcykjavík
Sími: 587 0860 Fax: 568 0645.
spordur@spordur.is
ID
Zfri-rOik
Helll helmur útat tynrslg
Varmá og Þorleifslækur er vin-
sælt veiðisvæði og sérstaklega á
þessum árstíma þegar að veiðimenn
þurfa að taka úr sér veiðihrollinn á
vorin. Veiðivonin er góð og stutt að
fara. Stangaveiðifélag Reykjavíkur
er með ána á leigu og selur leyfi á
svæðið. Sex stangir eru leyfðar og er
eingöngu fluguveiði. Þá er skylt að
sleppa öllum fiski. Sjóbirtingur ber
uppi veiðina en einnig er að finna
sjóbleikju og jafnvel regnbogasilung
í ánni. Þá gengur lax í einhverjum
mæli í ána þegar að líður á sumarið.
Fyrri hluta sumars er aðeins veitt
neðan þjóðvegar.
„Veiðin á svæðinu hefur farið
nokkuð vel af stað þrátt fyrir slæmar
aðstæður. Það hafa komið mjög
góðir dagar inn á milli en reyndar
hefur veiðin allra síðustu daga verið
róleg,“segir Gunnar Sigurgeirsson í
árnefnd Varmár og Þorleifslækjar er
við spurðum um stöðuna.
„Dagarnir hafa verið að gefa 1-3
fiska en áin er dragá og bólgnar
auðveldlega upp í rigningum og
þá verða aðstæður erfiðar. Stöðvar-
hylur og Stöðvarbreiða hafa verið að
gefa best en þeir staðir eru líka lang-
mest reyndir. Fjöldi veiðistaða er á
svæðinu og þeir sem vilja leggja á
sig labb og veiða þarna gætu náð ár-
angri. Heildarveiðin er rúmlega 100
fiskar en athygli vekur hvað margir
virkilega stórir fiskar eru inn á
milli. Eg get nefnt að Sturla Örlygs-
son og fleiri voru á ferðinni þarna
um páskahelgina og fengu ótrúlega
veiði. Þeir veiddu fyrripart laugar-
dagsins í vaxandi vatni og kalsaveðri.
Þeir settu engu að síður í hátt í tutt-
ugu fiska og nokkra mjög væna en
sá stærsti var áætlaður um 12 pund.
Fiskarnir voru vel haldnir og féllu
fyrir litlum púpum og notaðar voru
léttar veiðistangir. Þetta hefur verið
frábær morgunn hjá þeim félögum.
Fleiri hafa lent í góðri veiði en síð-
ustu dagar hafa verið fremur rólegir.
Ég ræddi við Gísla Unnsteinsson
veiðivörð á svæðinu í dag og undan-
farnir dagar hafa verið nokkuð erf-
iðir veiðimönnum vegna vatnavaxta
en í dag var áin orðin tær og veiði-
leg. Reyndar er sólskin aldrei neitt
sérstaklega gott veiðiveður fyrir
sjóbirtinginn en þá er um að gera
að reyna fyrir sér í ljósaskiptunum.
Þá fara hlutirnir stundum að gerast.
Sjálfur var ég á Stöðvarbreiðunni
í síðustu viku og varð vitni að því
þegar birtingurinn fór að hreyfa
sig í ljósaskiptunum. Ég fékk eina
töku en það dugði mér fullkomlega
að sjá fiskinn vera að leika sér í yf-
irborðinu. Þetta var spennandi. Eg
fór einnig í byrjun mánaðarins með
dóttur minni, Berglindi (6 ára), og
við áttum þarna fínan dag. Dótt-
irin fékk þarna sína fyrstu fiska á
flugustöngina og við eigum örugg-
lega eftir að fara aftur. Á miðsvæð-
inu er til dæmis frábært að vera
með byrjendur í fluguveiði. Það
þarf ekki löng köst og það er ekk-
ert sem truflar bakkastið. Neðsta
svæðið er ekki dottið inn í veiðina
enn þá en það hefur ekki verið
mikið reynt. Ég er bjartsýnn á að
það eigi eftir að gefa góða veiði
og við munum fylgjást vel með.
Þessa dagana er árnefndin að ljúka
við gerð veiðikorts en það hefur
skort. Þá munum við merkja helstu
veiðistaði og koma leiðbeiningum
til veiðimanna í sumar,“ sagði
Gunnar i lokin.
Stöðvarhylur Gunnar Sigur-
geirsson með’ann á Stífu-
svæðinu sem er á miðsvæði
Varmár og Þorleifslækjar.
■
mmm
smm.
■f. •
mm
I
■: ■
Stöðvarhylur og
Stöðvarbreiða best
H