blaðið - 01.06.2007, Side 37
blaðið
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 37
Þröstur Leó og Helga Braga tala inn á Simpson-kvikmyndina:
Skemmtilegt að vera
„Það er alltaf voða skemmtilegt að
vera vondi kallinn," segir Þröstur Leó
Gunnarson leikari. Þröstur og Helga
Braga Jónsdóttir leikkona hafa verið
ráðin til að ljá Simpson-kvikmynd-
inni raddir sínar. Bæði tala þau inn
á fyrir persónur sem ekki hafa kom-
ið við sögu í þáttunum. Þröstur talar
inn á fyrir hinn illa Rush Cargile og
Helga talar inn á fyrir inúítastúlku
sem starfar sem læknir.
„Ég er spenntur fyrir þessu,“ segir
Þröstur. „Fólkhefur talað um að það
sé erfitt að talsetja Simpson þar sem
allir eru orðnir svo vanir að hafa
þetta á enskunni. Það verður gaman
að sjá hvernig þetta kemur út.“
„Hann er svo fallegur hann Hómer,“
segir Helga Braga. „Hann er svo fal-
lega breyskur.“ Helga talar inn á fyr-
ir persónuna Medicane woman sem
er læknir. „Ég held að svört kona tali
inn á fyrir hana úti og ég er með svo
mikið bahamamama-karma þannig
að hlutverkið hentar mér,“ segir hún
og hlær.
Harðir aðdáendur þáttanna hafa
gagnrýnt þá ákvörðun að talsetja
kvikmyndina. Örn Árnason, sem
talar inn á fyrir Hómer, á til dæmis
við ramman reip að draga þar sem
Hómer er ein af ástsælustu sjónvarps-
stjörnum allra tíma og aðdáendum
hans stendur skiljanlega ekki á sama
hvernig hann hljómar. Þröstur þarf
ekki að hafa teljandi áhyggjur þar
sem hann talar inn á fyrir nýja per-
sónu. „Ég slepp ágætlega að þurfa
ekki tala inn á fyrir Hómer," segir
hann og hlær. „Ég veit ekkert um
hvað persónan mín gerir, mig minn-
ir að hann sé að fara í framboð eða
eitthvað svoleiðis.“
atli@bladid.net
vondi kallinn
Kvikmynd um
Vivienne Westwood
Nú stendur til að gera kvikmynd
um Iff tískugyðjunnar Vivienne
Westwood en hún er einn þekkt-
asti fatahönnuður samtímans.
Westwood greindi sjálf nýlega frá
áformunum en vildi ekki gefa upp
hvaða leikkonur kæmu til greina í
hlutverkið. Westwood hefur verið
áberandi í tískuheiminum undan-
farna áratugi og verður væntanlega
af nógu að taka við gerð myndar-
innar, enda er Westwood þekkt
fyrir að feta ótroðnar slóðir og ef
að líkum lætur verður sambandi
hönnuðarins við tónlistarmógúlinn
Malcolm McLaren og samskiptum
þeirra við hljómsveitina Sex Pistols
gert hátt undir höfði.
Bandaríski framleiðandinn Brian
Grazer er orðaður við gerð myndar-
innar en hann er einna þekktastur
fyrir myndirnar A Beautiful Mind
og Apolio 13. Westwood er þó
ekki eini fatahönnuðurinn sem til
stendur að gera kvikmynd um, þar
sem greint var frá því í síðustu viku
að til stæði að gera kvikmynd um
tískudrottninguna Coco Chanel.
Michael Jackson
biðlar til Prince
Tónlistarmaðurinn Prince hafn-
aði boði Micahels Jacksons um
sameiginlegt tónleikaferðalag í
sumar, en Jackson er sagður hafa
grátbeðið Prince um að túra með
sér til þess að hann gæti komið
ferli sínum aftur í gang. Jackson
er eins og kunnugt er í miklum
fjárhagserfiðleikum og leitar nú
leiða til þess að gera endurkomu
sfna sem glæsilegasta. Prince var
hins vegar tregur til þess að taka
boði Jacksons þar sem hann er
hræddur um að endurkoma eins
frægasta tónlistarmanns allra tíma
muni skyggja á sig.
Jackson þarf þó líklega ekki að
hafa miklar áhyggjur af peninga-
málum þar sem hann kom nýlega
fram í afmælisveislu sonar soldáns-
ins af Brunei og fékk einn milljarð
fyrir vikið. j
i vegi f-\
• ^ ■
* Frá 1. mars er Blaðiö boriö út á fleiri heimili en
nokkuð annaö dagblaö á landinu.
12----1—