Fréttablaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 17.05.2012, Blaðsíða 18
17. maí 2012 FIMMTUDAGUR Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að veruleika. Húseigandinn hefur rift leigu- samningi sínum við Ingu á Nasa, en hún hefur staðið vaktina með glæsibrag í rúmlega tíu ár. Inga er ekki á kúpunni og skuldar ekki nokkrum manni krónu. Hún hefur alltaf borgað leiguna fyrst, svo starfsfólki sínu, og látið svo sjálfa sig mæta afgangi. Hún á þakkir og virðingu skilda fyrir sitt starf. Hvað verður um bygginguna sjálfa, innviði hennar og rekstur verður ákveðið síðar af borgar- yfirvöldum og húseigandanum. Mikið væri nú gaman að fara að heyra í þeim hljóðið, vegna þess að sú ákvörðun verður óafturkræf. Þann 30. júní verður almenningi sýnd tillaga að hótelbyggingu sem ráðgert er að rísi á þessum reit við Ingólfstorg. Tillagan verður kynnt sem sig- urvegari hönnunarsamkeppni. Keppnin er á vegum borgarinnar í samvinnu við hús- og lóðareig- andann, sem einnig kostar hana til helminga og situr í dómnefndinni. Einn og sami maðurinn á nefnilega þetta allt, Landsímahúsið, Nasa og öll þau timburhús sem liggja að Vallarstræti. Þar að auki á hann City Center Hótel við Austurstræti 6. Þessi maður heitir Pétur Þór Sig- urðsson. Reykjavíkurborg og Alþingi hafa lagt mikið fé í uppbyggingu kringum sögulegar minjar í næsta nágrenni Ingólfstorgs. Tilfellið er, að svæðið tilheyrir einu mikilvæg- asta sögusviði þjóðarinnar. Hér er upphaf landnáms að finna, upphaf Reykjavíkur sem iðnaðarbæjar og upphaf nútímaborgar. Er slíkur reitur einkamál Péturs Þórs Sig- urðssonar? Ætti svona reitur ekki að vera almenningseign? Sú hugmynd að reisa hótel á reitnum er að mínu mati ávís- un á eitt mesta og ömurlegasta umhverfis- og menningarslys í sögu Reykjavíkur. Hér er verið að fara eftir deiliskipulagi frá níunda áratugnum, sem ákveðið var í borgarstjóratíð Davíðs Oddssonar. Síðan hafa aðstæður breyst á þess- um reit. Alvara málsins felst í eft- irfarandi: Elstu götum Reykjavík- ur yrði sýnd mikil vanvirðing með risahóteli meðal timburhúsa, gullið tækifæri um eina timburhúsatorgið á Íslandi færi forgörðum, umferð og aðkoma að hótelinu yrði í ólestri, skuggavarp á Ingólfstorg ykist og Nasa hyrfi. Það vantar ekki fleiri hótel í miðbæinn og það er ekk- ert að fara að koma í staðinn fyrir Nasa. Nákvæmlega ekki neitt. Af fenginni 20 ára reynslu í að troða upp úti um allt land, veit ég að Nasa hefur algera sérstöðu sem tónleikastaður. Sú sérstaða felst í því að allt passar þarna inn. Rokk, popp, diskó, jazz, tilraunatónlist. Tökum dæmi. Einn daginn heldur hljómsveitin HAM sveitta rokktón- leika. Daginn eftir mæti ég sjálf- ur á svæðið með blöðrurnar mínar og keyri glamúr diskótek alla nótt- ina. Ég er ekki á leiðinni með Euro- vision- eða Gay Pride-böllin mín í Hörpu. Þar heldur maður tónleika fyrir sitjandi áhorfendur. Ekki dansiböll. Jazztónleikar hafa verið haldnir á Nasa, fyrir sitjandi áhorfendur við dúkuð borð og kertaljós. Skóla- böll eru ávallt á virkum dögum. Mörg nemendafélög hafa núna þungar áhyggjur af hvar þau eigi að halda skólaböllin sín. Margir hafa upplifað magnaða tónleika með listamönnum eins og GusGus, Mugison, Emilíönu Torrini, Sál- inni, Diktu, Of Monsters and Men, svo ég nefni einhver nöfn sem ég hef persónulega séð spila þarna inni. Og ekki gleyma Airwaves- tónlistarhátíðinni sem skilaði 700 milljónum króna í ríkiskassann árið 2011. Ég er bara að nefna augljósustu dæmin um nýtingu Nasa. Nasa er ekki skemmtistaður, eins og svo margir halda. Nasa er ekki búlla sem lyktar af bjór. Nasa ilmar af sápulykt. Nasa er tónleika- og við- burðastaður. Alveg eins og Harpa. Hótel á þessum reit myndi gnæfa yfir timburhúsunum sem standa við Ingólfstorg eins og Hótel God- zilla. Hótelvæðing höfuðborgar- innar er farin að minna á pitsu- og vídeóleiguæðið á síðasta áratug 20. aldarinnar. Núna ætla allir að græða á túristum. Við þurfum ekki fleiri hótel í miðbæ Reykjavíkur. Við þurfum miðborg handa okkur sjálfum. Hótel Godzilla á eftir að hafa sín áhrif á aðgengi við Austurvöll, þar með talið Alþingi. Almenn- ingur safnast saman á Austurvelli á góðviðrisdögum. Ekki Hlemmi. Austurvöllur er okkar Ráðhústorg, Times Square og Trafalgar Square. Það er sárt að gróðavon eins manns sé hafin yfir hagsmuni allra borg- arbúa. Kæru borgarfulltrúar. Er það ekki rétt, að samkvæmt Feneyja- samþykkt, sem unnið er sam- kvæmt alls staðar í Evrópu, má ekki raska friðhelgi friðaðra húsa? Samkvæmt þessu á að taka tillit til friðaðra húsa í öllu skipulagi og uppbyggingu og það eru tvö friðuð hús þarna við hliðina á þessu fyrir- hugaða hóteli. Jón Gnarr borgarstjóri sagð- ist í Kastjóssviðtali ekki hafa heyrt neina brilliant hugmynd um úrlausn á þessum reit. En hún er víst til. Og hér kemur hún: Ég tel að besta lausnin á þessum reit sé að leyfa Nasa að standa og halda starfsemi þess áfram. Ríki og borg eiga að kaupa þetta hús- næði og tryggja áframhaldandi lista- og menningarstarfsemi þar inni. Húsafriðunarnefnd á að friða þetta hús að innan sem utan. Rest- in af gamla Landsímahúsinu, sem má svo sannarlega flikka upp á og gera fallegra, verði svo notuð undir skrifstofur Alþingis. Mér skilst að þar sárvanti húsnæði. Ég skora því á Alþingi að kaupa gömlu símahús- in. Almennum skrifstofutíma lýkur á sama tíma og hljóðprufur hefjast inni á Nasa. Enginn mun trufla neinn. Borgin getur svo látið Pétur Þór Sigurðsson hafa aðra lóð undir hótelið sem hann dreymir um að byggja til að komast hjá bótakröf- um. Hvernig líst ykkur á þessa hug- mynd, elsku borgarstjórnarmeiri- hluti, minnihluti og húseigandi? Mér þætti mjög vænt um að fá ein- hver svör, því að ég sendi ykkur bréf þar sem framangreint og meira kemur fram hinn 16. apríl sl. og það má ekki þegja þetta mál í hel. Kær kveðja, gaurinn sem hélt að þetta myndi aldrei gerast á vakt Besta flokksins. Hótel á þessum reit myndi gnæfa yfir timburhúsunum sem standa við Ingólfs- torg eins og Hótel Godzilla. Hótelvæðing höfuðborgarinnar er farin að minna á pítsu- og vídeó- leiguæðið á síðasta áratug 20. aldarinnar. Hótel Godzilla Skipulagsmál Páll Óskar tónlistarmaður Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borg- arstjórnar til þess að standa vörð um persónulega hagsmuni sína eða félaga sinna. Í grein Davíðs Roach Gunnarssonar í Frétta- blaðinu eru fulltrúar flokksins sakaðir um að hafa ekki „lyft litla fingri, hvað þá hendi, til að koma í veg fyrir þetta niðurrif á tónleikamenningu landsins“ með því að koma ekki í veg fyrir væntanlega lokun Nasa. Mér þykja þessar ásakanir mjög sorg- legar og kristalla mjög hættulegt heilkenni í íslenskri stjórnmála- menningu. Þá á ég við þá hugsun að þegar þinn flokkur eða þínir líkar komast að kjötkötlunum, þá sértu hólpinn og ekkert slæmt geti þá hent þig. En lífið er ekki þannig og á ekki að vera þannig. Borgir breytast og þróast. Mið- aldra menn segja mér að einu sinni hafi verið skemmtistaður í Topshop húsinu við Lækjargötu sem hafi heitið Tunglið. Þessi staður og fleiri eru horfnir en samt stendur tónlistarlíf í borg- inni í sögulegum blóma. Merki- legt. Nasa er fínt hús sem ég hef oft farið í til að horfa á vini mína, bæði í Besta flokknum og utan hans, fremja magnaða list. En Nasa er hús í einkaeigu. Eigandi hússins hefur þar af leiðandi ríkan rétt til þess að ráðstafa þessari eign sinni. Eig- andi hefur í samvinnu við skipu- lagsyfirvöld í Reykjavík reynt að finna lausn á því hvernig starf- semi skuli fara fram í húsinu. Núna er í gangi alþjóðleg hönn- unarsamkeppni um svæðið sem miðar að því að leysa málið eins farsællega og hægt er. Þátttaka eiganda í dómefnd er alls ekki óeðlileg þar sem stór hluti þess svæðis sem er undir í samkeppninni eru byggingar í hans eigu. Eigandinn er einn af sjö aðilum í dómnefnd, sem er unnin samkvæmt reglum Arki- tektafélags Íslands og hefur þar ekki meira vægi en sitt eina atkvæði. Til þess að koma til móts við mótmæli þarf að leiða saman hlutaðeigandi aðila og reyna að leysa málið. En aftur að vonbrigðum þessa ágæta kjósanda Besta flokksins. Væri Besti flokkurinn að standa undir nafni ef hann beitti sér fyrir því að Reykjavíkurborg keypti hús fyrir mikinn pen- ing, pening sem almenningur á, og leigði það út til vina sinna og sjálfs síns svo ekkert myndi breytast og allt væri eins og það hefur alltaf verið? Væru þá allir glaðir? Væri þá gaman og skemmtilegt? Það er nákvæmlega það sem fulltrúar Besta flokksins buðu sig fram til að stoppa. Illa ígrundaðar ákvarðanir hafa kostað þetta fallega land mikið. En það sem hefur kostað okkur enn meira eru ákvarðanir drifn- ar áfram af furðulegri frænd- semi og tilraun til hafa alla góða og þá helst vini sína í flokknum eða liðinu, hljómsveitarfélaga eða vinina í pottinum eða á kaffi- húsinu. Það er meðvirkt rugl sem verður að afrugla. Fulltrú- ar Besta flokksins hafa lyft bæði fingrum, höndum og fótum til að gera það og þess vegna er ég stolt af þeim. Til kjósenda Skipulagsmál Heiða Kristín Helgadóttir framkvæmdastjóri Besta flokksins og tónlistarunnandi á okkar Tölvubúnaður fyrirtækisins ábyrgð www.advania.is/abyrgd vinnu ábyrgð varahluta ábyrgð Kynntu þér málið www.advania.is/tolvubunadur Fartölvur, borðtölvur og netþjónar með fimm ára ábyrgð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.