Fréttablaðið - 24.10.2012, Side 18
| 4 24. október 2012 | miðvikudagur
Starfshópur sem vinnur að til-
lögu um breytingu á stimpil-
gjöldum í formi frumvarps-
draga mun skila tillögum upp
úr áramótum, samkvæmt upp-
lýsingum frá fjármálaráðu-
neytinu. Hópurinn átti upphaf-
lega að skila þeim í síðasta lagi
í október.
Íslensk stjórnvöld hafa skuld-
bundið sig til að endurskoða lög
um stimpilgjöld með það fyrir
augum að afnema slík gjöld
þegar neytendur vilja skipta
um banka. Sú skuldbinding
var skilyrði fyrir því að Eftir-
litsstofnun EFTA (ESA) myndi
samþykkja ríkisaðstoð við nýju
bankana þrjá, Landsbanka, Ís-
landsbanka og Arion banka. Í
ákvörðun ESA sagði einnig að
starfshópurinn ætti að kanna
hvernig álagningu stimpil-
gjalda mætti breyta til að ein-
falda ferlið og ýta undir sam-
keppni á meðal fjármálafyrir-
tækja.
Samkvæmt lögum um stimpil-
gjöld greiða allir sem kaupa sér
fasteign 0,4 prósent af fast-
eignamati hennar í stimpilgjald
til ríkissjóðs. Þeir sem eru að
kaupa sína fyrstu fasteign eru
þó undanþegnir gjaldinu.
Stimpilgjöld eru mikil tekju-
lind fyrir ríkissjóð. Samkvæmt
fjárlagafrumvarpi fyrir árið
2013 er áætlað að þau skili 4,1
milljarði króna í hann á næsta
ári. Á árunum 2009 til 2012 er
áætlað að þau hafi skilað 11,7
milljörðum króna í ríkissjóð.
Samtals munu Íslendingar því
hafa greitt 15,8 milljarða króna
stimpilgjöld frá byrjun árs 2009
og út næsta ár, gangi tekju-
áætlun fjárlagafrumvarpsins
eftir. - þsj
Frumvarpsdrög um breytingar á stimpilgjaldalögum:
Von á tillögum upp
úr næstu áramótum
RÁÐHERRA Starfshópurinn á að skila frumvarpsdrögunum til Katrínar Júlíusdóttur
fjármálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FJÖLMIÐLAR
Þórður Snær Júlíusson | thordur@frettabladid.is
Skjárinn ehf., sem rekur Skjá-
Einn, SkjáBíó, SkjáHeim og Skjá-
Golf, tapaði 285 milljónum króna
í fyrra. Það er tæpum hundrað
milljónum króna minna en félagið
tapaði árið áður. Samtals nemur
tap Skjásins á árunum 2010 og
2011 663 milljónum króna. Eigið
fé félagsins var neikvætt um
653 milljónir króna um síðustu
áramót. Þetta kemur fram í ný-
birtum ársreikningi þess.
Velta Skjásins, sem saman-
stendur af tekjum af sölu áskrifta
og auglýsinga, jókst hins vegar
um 350 milljónir króna á milli
ára og var tæplega 1,9 milljarðar
króna.
Friðrik Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri Skjásins, segir
reksturinn hafa gengið enn betur
í ár en í fyrra. „Það hefur orðið
mjög mikill bati hér á tveimur
árum. Ástæðan er blanda af
mörgu. Undirliggjandi rekstrar-
einingar, sem eru nokkrar, hafa
allar staðið sig ágætlega. Svo
hefur verið stíft aðhald í rekstri
líkt og þarf að vera.“
Spurður hvort það sé fyrir-
sjáanlegt að Skjárinn skili hagn-
aði í náinni framtíð svarar Frið-
rik því játandi. „Við förum ná-
lægt því á þessu ári. Þetta er
allt annað umhverfi í dag en það
sem við höfðum verið að vinna í.
Við höfum ekkert verið að flagga
því, en ég skal ekkert neita því að
þetta hefur gengið vonum framar
að snúa þessum rekstri við. Þetta
lítur vel út hjá okkur og menn eru
bjartsýnir.“
Skjárinn skuldar móðurfélagi
sínu Skiptum 1,4 milljarða króna
og jukust þær skuldir um tæpar
400 milljónir króna á síðasta ári.
Vegna þessara skulda greiddi
Skjárinn móðurfélaginu Skipt-
um 94 milljónir króna í vexti
á árinu 2011. Á síðustu tveim-
ur árum hafa vaxtagreiðslur til
Skipta numið um 154 milljónum
króna.
Eigandi Skjásins eru Skjá miðlar
ehf., sem er að öllu leyti í eigu
Skipta. Skipti er einnig móður-
félag Símans. Skjárinn keypti
vöru og þjónustu frá Skiptum, Sím-
anum og dótturfélagi hans Mílu
fyrir samtals 405 milljónir króna í
fyrra. Auk þess greiddi félagið 94,2
milljónir króna í vexti til Skipta
vegna lána sem félagið veitti Skján-
um. Á árinu 2010 keypti Skjárinn
þjónustu af sömu félögum fyrir 343
milljónir króna og greiddi Skiptum
59,6 milljónir króna í vexti.
Skjárinn tapaði um
300 milljónum í fyrra
Tap Skjásins dróst saman um tæpar hundrað milljónir í fyrra.
Veltan jókst um 350 milljónir á sama tíma. Framkvæmdastjórinn
segir batann hafa haldið áfram í ár og að stutt sé í hagnað.
Í ársreikningnum segir að „þrátt fyrir rekstrar-
tap á árinu 2011 hefur orðið umtalsverður
viðsnúningur í rekstri félagsins á árinu 2011
þar sem rekstrartap hefur lækkað verulega
samanborið við fyrra ár og skýrist það
einkum af hagræðingaraðgerðum stjórnenda
auk þess sem vöxtur hefur verið í tekjum
félagsins á árinu […] Eiginfjárstaða félagsins
í árslok er neikvæð en stjórnendur telja að
ekki leiki vafi á áframhaldandi rekstrarhæfi
félagsins þar sem móðurfélag þess, sem er
jafnframt stærsti lánardrottinn þess, mun
styðja fjárhagslega við rekstur félagsins og
tryggja áframhaldandi rekstur þess a.m.k.
næstu 12 mánuði“.
Friðrik segir ekki hafa verið rætt mikið
um það hvort skynsamlegt væri að breyta
skuldum Skjásins við Skipti í hlutafé til að
laga eiginfjárstöðuna. „Eigandinn ræður ferð-
inni í því hvernig hann vill hafa skipulagið á
efnahagsreikningnum. Við erum um leið stór
viðskiptavinur Símans í dreifingu. Þannig að
það er þeirra [eigandans] að svara fyrir þetta
frekar en að ég geri það.“
SKIPTI TRYGGIR REKSTRARHÆFI ÚT ÁRIÐ
FRIÐRIK
FRIÐRIKSSON
SKJÁR EINN Skjárinn rekur næststærstu áskriftarsjónvarpsstöð landsins auk ýmissa minni
rekstrareininga. SkjárEinn hóf göngu sína haustið 1999 og var framan af ókeypis, en hefur
verið áskriftarstöð frá haustinu 2009.
FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI
Tímabundin lækkun
sérstaks veiðigjalds
25. október | kl. 8:30 | Borgartúni 27
Farið verður yfir reglugerð um tímabundna
lækkun sérstaks veiðigjalds og fjallað um
skilyrði fyrir lækkuninni.
Skráning og frekari upplýsingar á kpmg.is
Apple, verðmætasta fyrirtæki
heims, kynnti nýja vörulínu á
kynningarfundi í San José í Kali-
forníu í gær. Á fundinum bar hæst
að Apple til-
k y n n t i a ð
fyrir tækið
h æfi brát t
sölu á smærri
og ódý ra r i
gerð af iPad-
spjaldtölv-
unni vinsælu.
Búist hefur
verið við til-
kynningu
um smærri
gerð iPad um
h r íð . H i n s
vegar kom á óvart að Tim Cook,
forstjóri Apple, tilkynnti einnig
um nýja gerð af hinni hefðbundnu
iPad-tölvu. Apple kynnti síðast
nýja iPad-tölvu í vor en yfirleitt
hefur ár hið minnsta verið látið
líða milli kynslóða af framleiðslu
fyrirtækisins.
Apple setti iPad-spjaldtölvuna á
markað í apríl árið 2010 en síðan
hefur fyrirtækið selt 100 milljón
eintök.
Vörukynning hjá Apple:
Ný gerð iPad
á markað
IPAD MINI Phil Schiller
hjá Apple kynnti
hina nýju gerð iPad á
kynningarfundinum í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP