Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.10.2011, Síða 68

Fréttatíminn - 14.10.2011, Síða 68
B ogi Bjarkar er spenntur til hins ítrasta og kannski er hún á hálum ís. Ég meina, hvernig ætlar hún að toppa Biophi- liu á næstu plötu? Því í staðinn fyrir að koma með „enn eina Bjarkar-plötuna“ kom snillingur- inn á Ægisíðunni með feikilega metnaðarfullt verk og næstum yfir- þyrmandi flókinn pakka – „móður allra konsept-platna“. Biophilia er sem sé ekki eitt stykki plata held- ur alls konar viðhangandi vesen: vísindasafn, tónlistarnámskeið fyrir börn, sérsmíðuð hljóðfæri, David Attenborough og tölvuleikir („öpp“) fyrir hvert lag. „Framtíð tónlistarútgáfu“ er nú galað spekingslega en ég er ekki alveg að kaupa það. Fáir munu treysta sér í annað eins og það væri líka hallærislegt að ætla að apa þetta eftir. Björk var eldklár að upphugsa þetta gríðarlega flækju- stig en svo snýst þetta eftir sem áður allt um ryþma og melódíur. Þótt umbúðir áttundu meginplötu Bjarkar séu byltingarkenndar – og manni finnist maður þurfa að leggja mikið á sig til að „skilja“ þetta allt saman – er innihaldið einfalt. Í grunninn er þetta „enn ein Bjarkar-platan“ og það er auð- vitað fagnaðarefni. Þrátt fyrir allt vesenið og flækj- urnar eru röddin og lögin nefni- lega það sem allt annað stendur á – sjálft innihaldið. Röddin er í fínu lagi og Björk tekur ýmsar gamalkunnar leikfimiæfingar á þverslá og dýnu. Lögin tíu á aðal- útgáfu plötunnar eru misgóð en heildin sterk. Miðbik plötunnar (lögin Dark Matter og Hollow) er eins og svarthol þyngslalegra „nútímatónlistar“-leiðinda en allt í kring eru gullfalleg og hrífandi lög; til dæmis Mutual Core, Virus, Tunderbolt og besta lag plötunnar, Cosmogony, sem sýnir að einfald- leikinn er bestur þrátt fyrir öll blikkandi ljósasjó. Heildarsvipur plötunnar er rólegur en Björk set- ur þó stuðvélina einstaka sinnum í gang. Drum & bass-fríkát í enda Crystalline er skemmtilegt upp- brot og í Sacrifice miðju, eftir þétta stigmögnun, er kveikt á fjörugri trommuhrærivél. Björk er alltaf frámunalega mik- ið á tánum í sándlegri framþróun sinni. Björk er aldrei retró heldur alltaf fúteró. Hún leitar aldrei aftur heldur alltaf fram. Á meðan flestir samtímamenn hennar í poppinu snúast hver um annan er Björk eigið sólkerfi. Þegar Bjarkarsólin kemur upp virðist hún alltaf jafn ný og fersk þótt þetta sé reyndar sama sólin og kom upp síðast. Slíkur er máttur náttúruundra. - dr. Gunni  Plötuhorn dr. Gunna Umbúðir og innihald Biophilia  Björk Stórskemmtileg ævintýrasýning fyrir yngstu börnin Næstu sýningar: Laugard. 15. okt. kl. 13.30 og 15.00 Laugard. 22. okt. kl. 13.30 og 15.00 Miðaverð 1.800 kr. Sími í mið asölu 5511200 www.leikhusid.is | midasala@leikhusid.is HLINI KÓNGSSON Sögustund í Kúlunni LISTMUNA UPPBOÐ Ármúli 38 | 568 5150 | gasar.is 10-17 virka daga 10-12 laugardaga Opnunartímar Getum enn tekið við verkum fyrir næsta listmunauppboð okkar. Áhugasamir hafi samband við Ólaf í síma 893 9663 eða oli@gasar.is. Valtýr Pétursson  BorGríki Grjóthörð íslensk GlæPasaGa Athvarf frá þunglyndi í Borgríki segir Ólafur sögur þriggja hópa sem lýstur saman af mikilli hörku í undirheimum Reykjavíkur. Serbneskur bifvéla- virki missir ófætt barn sitt þegar meðlimir íslensks glæpahrings ráðast inn á heimili hans. Lögreglu- kona á ystu nöf, spilltur yfirmaður hennar og glæpakóngur sem er að missa tökin á veldi sínu fléttast síð- an inn í hefndarleiðangur Serbans. Ólafur er lítið fyrir að feta slóðir sem hann hefur áður troðið og við- fangsefni hans, bæði í heimildar- myndum og leiknum, eru vægast sagt fjölbreytt. „Ég spái voðalega lítið í hvað ég er að gera þegar ég byrja á verkefnum. Eitthvað inni í manni sogast bara í einhverja átt og ég nota alltaf kvikmyndir á frekar eigingjarn- an hátt. Þegar mig langar að sækja einhvern heim þá bara fer ég og geri það,“ segir Ólafur. „Þarna langaði mig að skoða bæði þessa undirheima og ofbeldið og allt sem þessu fylgir. Mig langaði líka einhvern veginn að reyna að skilja svona ofbeldi; að komast inn í pers- ónurnar og kanna af hverju þær gera það sem þær gera. Síðan spilaði inn í að hópurinn sem er í kringum mig og mitt fyrirtæki var bara mjög þung- lyndur á þessum tíma – út af hruninu og öllu þessu. Maður var búinn að fá ógeð á allri umfjöllun og öllu þannig að við ákváðum bara að fara í fjög- urra mánaða meðferð í glæpaheimin- um. Við meðhöfundur minn í þessu, Hrafnkell Stefánsson, skrifuðum því þessa sögu og svo var bara stokkið í þetta. Þannig að þetta var þerapjút- ískt líka.“ Ólafur leggur mikið upp úr raunsæi í lýsingum myndarinnar á skuggahliðum Reykjavíkur og hann og hans fólk lagðist í umfangsmikla rannsóknarvinnu. „Ef þetta á að vera gæðaefni verður það að vera frekar rétt allt saman. Þannig að við byrj- uðum í rauninni bara á að rannsaka þennan heim og alla möguleika sög- unnar í honum. Lögreglan var okkur síðan mjög innan handar. Allar deild- ir. Þeir voru ótrúlega hjálpsamir. Þegar við vorum búin að klína þessu öllu saman, fylgdust þeir áfram með hjá okkur. Við erum líka búin að sýna alls konar fólki, sem tengist þessum heimum beint og óbeint, myndina og það er einmitt sammála um að þarna hafi tekist mjög vel til hvað varðar raunsæi. Það er ekki tekið mikið bíó- leyfi þarna. Þannig lagað.“ Ólafur hefur nú skilað Borgríki af sér og hefur sjaldan haft jafn lítið fyr- ir stafni. Hann segir að aldrei þessu vant sé framhaldið frekar óráðið hjá sér. „Ég er bara að fara eitthvað til út- landa. Ætla til Los Angeles í eitthvert framapot þar og svona.“ -þþ Ólafur Jóhannesson segir tímabært að bregða sér aðeins út fyrir landsteinana enda sé umgjörðin utan um kvikmynda- gerð á Íslandi orðin svo slæm með niðurskurði og tilheyrandi fjársvelti. Ljósmynd Teitur D vítamín er án efa eitt af þeim fæðubótarefnum sem hver og einn þarf að taka fyrir almennt heilbrigði og sem forvörn gegn fjölda sjúkdóma. Haraldur Magnússon osteópati B.Sc (hons) frá NOW fyrir börn og fullorðna D-VÍTAMÍN Þú færð NOW vörurnar í verslunum um allt land. Nánar á www.yggdrasill.is 64 dægurmál Helgin 14.-16. október 2011

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.