Dagfari - 01.11.2007, Blaðsíða 13

Dagfari - 01.11.2007, Blaðsíða 13
POL POT (PANTÚM) Pol Pot er á pissupotti í pútnahúsi. Pol Pot er með persónuleikaþroskaþrjóskuröskun og parkinsons í popparapartí, pissandi í sig á plágustigi í peysufötunum. Pol Pot er með persónuleikaþroskaþrjóskuröskun og prumpandi pappírsfætur, púkablístru í pjásustað á plágustigi í peysufötum, pardusdýr í parukkgæru, pluðraðri og plutrulegri. Prumpandi pappírsfótum, púkablístrum í pjásustað, og plötusnúðsins prakkarastrikum á Plútó, pardusdýri í parukkgæru, pluðrari og plutrulegri. Paklt leggur púkk í sekk fyrir Pol Pot. Plötusnúðsins prakkarastrik á Plútó, popplög fyrir púðraða punglinga og punglaga púðlinga á meðan pakk leggur púkk í sekk fyi-ir Pol Pot og pelíkanar með pompadúr spila Pirates of Penzance. Popplög fyrir púðraða punglinga og punglaga púðlinga! - Á meðan: pörin paraballanna passa sig á Pol Pot og pelíkanar með pompadúr spila Pirates of Penzance á píanó, penníblístrur og púðurdósir. Pörin paraballanna passa sig á Pol Pot, þessum prjálgjarna pörupilti sem pissar á píanó, penníblístrur og púðurdósir, án purkunar ineð penisnum pastursmiklum. Þessi prjálgjarni pörupiltur sem pissar - Pol Pot er með persónuleikaþroskaþrjóskuröskun — án purkunar með penisnum pastursmiklum: Pol Pot er á pissupotti í pútnahúsi. Eiríkur Örn Norðdahl Dagfari • nóvember 2007 13

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.