Læknablaðið - 15.09.1997, Blaðsíða 75
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
611
Námskeið um heilaskaða
af völdum slysa
Hótel Loftleiðum 3. og 4. október 1997
Fjölmargir einstaklingar eiga við langvinna erfiðleika að stríða, jafnvel í kjölfar
minniháttarslysa. Á þessu námskeiði verðurfjallað um hinar margþættu skyn-
rænu, geðrænu og vitrænu afleiðingar höfuðáverka. Þátttakendum gefst einnig
tækifæri til að kynna sér helstu meðferðarúrræði fyrir þennan hóp.
Fyrirlesarar eru þrír bandarískir vísindamenn sem eru þekktir fyrir rannsóknir á
þessu sviði. Þeir eru:
dr. Nils R. Varney taugasálfræðingur,
dr. Marc E. Hines taugalæknir og
dr. Robert N. Varney eðlisfræðingur.
Lyfjafyrirtækið Novartis styður námskeiðið ásamt Sálfræðingafélagi íslands,
Geðlæknafélagi íslands, Félagi íslenskra heimilislækna, Félagi sjálfstætt starf-
andi heimilislækna og fræðslunefnd læknafélaganna. Þátttaka er læknum og
sálfræðingum að kostnaðarlausu.
Þátttaka tilkynnist Thorarensen Lyf, Vatnagörðum 18,104 Reykjavík, sími 568
6044, bréfsími 568 0016. Undirbúningsnefnd skipa dr. Þuríður J. Jónsdóttir
taugasálfræðingur, Kristófer Þorleifsson geðlæknir og Grétar Guðmundsson
taugalæknir.
Fræðsluvika 19.-23. janúar 1998
Árlegt fræðslunámskeið á vegum Framhaldsmenntunarráðs læknadeildar og
læknafélaganna verður haldið dagana 19.-23. janúar næstkomandi.
Dagskrá verður nánar auglýst síðar.
Undirbúningsnefnd