Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Page 22

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Page 22
gulrófum, og gulrótum á hverju ári er margfaldað með verði varanna á grunnárinu. Hins vegar er notuð vísitöluaðferð við fastaverðsreikning á innfluttum kartöflum, gulrófum og gulrótum. Byggist sú aðferð á vísitölum sem reiknaðar eru samkvæmt tegundasundurliðun framfærsluvísitölunnar. 1108 Sykur. I þennan lið færist einungis neysla á sykri, hvort sem hann er unninn eða óunninn, en ekki neysla á sýrópi sem telst í þessari flokkun til annarra matvæla ásamt öðrum sykurvörum. Hér er um að ræða innfluttar vörur eingöngu og aðferðin við áætluð kaup einstaklinga er í samræmi við aðferðalýsingu að framan. En við innflutningsverðmæti í viðkomandi tollnúmerum er bætt tolli, vörugjaldi, jöfnunargjaldi, innlendum kostnaði, álagningu og söluskatti þegar við á. Frá sykurinnflutningi í heild er dreginn sá hluti sem notaður er sem hráefni í iðnaði og kaupin því færð nettó hér. Tölur um notkun sykurs í iðnaði er að finna í skýrslum Hagstofunnar um iðnaðarvöru- framleiðsluna. Eru þær upplýsingar notaðar hér en til viðbótar er aflað upplýsinga úr innflutnings- skrám sem gefa vísbendingu um innflutning og notkun sykurs eftir atvinnugreinum. Þetta er mögulegt þar sem innflutningurinn fer fram með þeim hætti að sá sem kaupir sykurinn er jafnframt skráður innflytjandi. 1109 Kaffi, te, kakó. Hér er um að ræða innflutning að stórum hluta. Innflutt kaffi í smásöluumbúðum er reiknað til smásöluverðs á hefðbundinn hátt með álögðunr tollum, kostnaði, álagningu og söluskatti. Tölur um innlenda kaffiframleiðslu er að finna í skýrslum Hagstofunnar um innlenda iðnaðarvöruframleiðslu. Framleitt magn er því næst verðlagt með einingarverði innlends kaffis í vísitölu framfærslukostnaðar. Verðmæti innflutts kaffis á föstu verðlagi er fundið með vísitöluaðferð þar sem byggt er á reiknaðri verðvísitölu samkvæmt vísitölu framfærslukostnaðar. Fastverð innlendrar framleiðslu er aftur á móti reiknað með því að margfalda saman magn og einingarverð á staðvirðingarári. Einingarverð er samkvæmt vísitölu framfærslukostnaðar. 1110 Ýmis matvæli. Hér er um að ræða ýmsar aðrar tegundir matvæla en þær sem taldar eru upp hér að framan. Má t.d nefna sælgæti, sýróp, ís, sultu, lýsi, matarlit, bökunardropa, tómatsósu, þurrsúpuduft, tilbúin salöt og majones. Neysla á innfluttu sælgæti er áætluð með gögnum úr innflutningsskrám Hagstofunnar. Tollum, vörugjaldi, innlendum kostnaði, álagningu og söluskatti er bætt við innflutningsverðmæti sælgætis. Fæst þannig áætlað smásöluverðmæti á innfluttu sælgæti. Neysla á innlendu sælgæti er áætluð út frá sölutekjum í atv.grein 208, sælgætisgerð. Við tekjur á tekjuvirði er bætt innlendum tolli (magngjaldi) sem er áætlaður út frá framleiðslutölum skv. skýrslum Hagstofunnar og reglugerðum um magntollinn. Magngjald á sælgæti breyttist í %-gjald með reglugerð 634/1980 með gildistíma frá 1/1 1981. Við heildsöluverðið er síðan bætt sérstöku tímabundnu vörugjaldi, smásöluálagningu og söluskatti og þannig fundin áætluð útgjöld á verðlagi hvers árs. Verðvísitölur til staðvirðingar á sælgætisútgjöldum eru vísitölur smásöluverðs á sælgæti sem unnar eru upp úr vísitölu framfærslukostnaðar. Við áætlun á kaupum einstaklinga á öðrum vörum en sælgæti er byggt á skýrslum Hagstofunnar um iðnaðarvöruframleiðsluna. Hér er m.a um að ræða framleiðslu á ís, sultu, íssósu, lýsi, tómatsósu, majones o.fl. tegundum matvæla. Framleiðslan er síðan verðlögð samkvæmt verði úr framfærsluvísi- tölu og frá Mjólkursamsölunni. Verð annarra vara er ýmist úr verðlistum framleiðenda, verðkönnun- um Verðlagsstofnunar eða áætlað. Fastaverð er fundið með einingarverðsaðferð þar sem magn varanna er margfaldað með verði þeirra á staðvirðingarárinu. 1111 Frádráttur frá matvælum. Öll neysla matvæla innanlands er talin með í matarkafla einkaneyslunnar. Þess vegna er nauðsynlegt að leiðrétta tvennt, annars vegar frádrátt vegna neyslu matvæla á sjúkrahúsum og 20
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.