Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Síða 38

Nýtt Helgafell - 01.05.1958, Síða 38
32 HELGAFELL fóum eintökum að tilstilli Köbenhavns Brand- forsikring árið 1906. Af sérstakri tilviljun komst ég yfir eitt þess- ara eintaka fyrir fáum árum og sannfærðist brátt um þann ótrúlega hlut, að mann- talsskrár geta verið hinn bezti skemmtilestur. Kaupmannahöfn öndverðrar 18. aldar treð- ur þar fram, tigluð þúsund litum: atvinnu- hættir, aftan úr grárri fymsku, nafnasiðir, mál- far, — jafnvel örlögum manna bregður fyrir í þeim örsmáu gneistum sem hrjúfur orða- forði almennings slær af hinum kalda kan- sellístíl. Vel má sjá, að borgarskipting mið- aldanna helzt enn að nokkru: Garvarar og skinnakaupmenn búa í Skindergade öðrum fremur, vagnasmiðir í Vognmagergade, steinhöggvarar í Brolæggerstræde, kaup- menn í Köbmagergade, litarar í Farvegade, lærdómsmenn í Studiestræde og þannig áfram. Og það er margt skrýtilegt sem fólk hefur sér til lífsframfæris: Einn leigir út sorg- arkápur, annar selur kanaríufugla, og það er ekkert niðrandi fyrir Razmus Handzen, þótt hann sé nefndur „plattenslager af Pro- fession." Á einni síðunni hittum við fyrir „een afdanked Livgarde der lever af at fange Muldvarper paa Volden", á þeirri næstu „een Encke, M. Lisbeth, sidder paa Hallens Aars og sælger Suckerbrönd og Brendeviin". Einn er titlaður „Alrunelægger”, þ. e. spá- maður, og annar er sagður „Een Persohn, som hafver angived sig at være Doctor Med- icin". Hér eru tveir frá „Dantzig", sem hafa „sögt Collect for deris afbrente Stad Reiling- en, men nu haver taget Pass at reysze her- fra", og láir víst enginn þeim, þótt þeir velji sér ívið óbrunnari borg til þeirrar fjársöfn- unar. Það var þó ekki þetta sem vakti helzt athygli mína þegar ég blaðaði í gegn um manntalið, heldur hitt, hversu berlega má sjá þar hlutdeild íslandsverzlunarinnar í athafnalífi Kaupmannahafnar á þeim tíma. 1 fákænsku minni hélt ég satt að segja að það væri lítið annað en skáldskaparbragð og þjóðsaga þegar Jón Marteinsson segir við nafna sinn frá Rein: Þessi borg var ekki að- eins reist fyrir íslenska penínga heldur er hún lýsir með íslenzkum grút. Þetta mun þó vera nær sannleikanum en flesta grunar. Sannleikurinn mun vera sá, að einokunar- verzlunin danska hafi borið héðan eins drjúgan hlut og nýlendustjórnir þess tíma fengu beztan af jafn fámennum hóp. Þetta eru að sjálfsögðu engin tíðindi þeim sem til þekkja, og danskir sagnfræðingar vita þetta jafn vel og íslenzkir. Það yrði of langt mál í tímaritsgrein að taka upp alla þá menn, sem íslandsverzlun- inni eru tengdir í manntalinu. Ég læt mér því nægja að stikla á nokkrum þeirra, — tek upp íslandskaupmennina, sem koma senni- lega allir við íslenzk skjöl, svo og nokkra aðrar menn, sem varða okkur sérstaklega eða eru athyglisverðir á annan hátt. Manntalið nær að sjálfsögðu aðeins til þeirra borgarhverfa, sem sluppu lítt eða óskemmd úr brunanum. Þegar getið er um mannfjölda í húsunum, er þess að minnast, að þar eru margir komnir í skjól eftir brim- ann. Þeirra er þó ætíð getið sérstaklega, svo vel má sjá raunverulegan mannfjölda hverr- ar fjölskyldu og þjónustuliðs hennar.

x

Nýtt Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.