Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Qupperneq 26

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Qupperneq 26
156 HELGAFELL þeirri þekkingu, sem þó kann að fást, til kyn- bóta á mönnum. Sú hlið erfðafræðinnar, sem fjallar um manninn, er nefnd eugenics á er- lendum málum eða mannerfðir. Tímgun og þróun Fyrir daga Mendels var þekking manna á erfðum af skornum skammti. Framan af öld- um var sú skoðun almennt ríkjandi, að til væru ýmsar æðri lífverur, er kviknað gætu af dauðum efnum við ákveðin skilyrði. Kvikindi þau, er skriðu úr moldu að vori til, voru álitin spretta þaðan vegna vonzku manna eða reiði guða. Óþrif kviknuðu í höfði manna, en sveppir féllu af himnum. Smátt og smátt urðu þessar staðhæfingar þó að víkja fyrir vísindalegum skýringum á vaxtarskeiði hinna ýmsu lífvera, og dagar sjálfkviknunar- kenningarinnar voru taldir, þegar Pasteur sannaði, að jafnvel sýklar fæddust af sýklum. Það var staðfest að líf kviknar aðeins af lífi og ein kynslóð fæðir aðra sjálfri sér svipaða í öllum aðaleinkennum. Mönnum skildist, að þannig hafði lífið þróazt frá frumverum jarð- ar. En uppruni þess lífs er ennþá dulinn, enda þótt æ skýrist fleiri þættir úr myndunarsögu hins lífræna efnis úr ólífrænu. Einstaklingar rísa og falla en þeir viðhald- ast þó í afkvæmum sínum við tímgun og æxlun. En fjölgunarháttum tegundanna er mis- jafnlega farið. Sumar lífverur æxlast kynlaust, aðeins með einfaldri skiptingu í tvo hluta. Þannig æxlast þær Hfverur, sem aðeins eru ein fruma (einfrumungar). Skipting hinnar einstöku frumu er því um leið æxlun hennar, og er það hin frumstæðasta fjölgunaraðferð. Samanstandi einstaklingurinn af frumuhóp (fjölfrumungur) getur honum fjölgað kyn- laust með því, að ein eða fleiri af frumum hans losnar úr tengslum og myndar nýjan einstakling. Þannig er grómyndun lægri jurta og þetta þekkjum við mætavel úr heimi hinna æðri jurta, sem fjölgast með renglum, sprot- um og æxlikornum. Eru sum tré og stofu- blóm jafnvel gædd svo frjóum vexti, að ýmsir hlutar þeirra geta myndað nýja einstaklinga séu þeir kurlaðir af móðurkvistinum og gróð- ursettir sem græðlingar. Þessi æxlunarháttur er algengari meðal jurta en dýra, en þannig er þó farið fjölgun bandorma og fleiri hinna lægri dýra. Fjölgun einstaklinga með kynj- aðri æxlun er hins vegar flóknari og jafnframt þýðingarmeiri í þróunarferli lífveranna, en þar sameinast tvær kynfrumur í eina okfrumu, er síðan vex og skiptist og myndar hinn nýja einstakling. Hámarki sínu nær kynjuð æxlun meðal hinna æðri jurta og dýra, en þar er verkaskipting orðin mikil milli ein- stakra fruma líkamans, og frumur sérhæf- ar. Meðal annars eru kynfrumurnar orðn- ar misjafnar að stærð. Eggið er stórt og hlaðið næringu, en frjó bifanlegra og létt- ara, en næringarminna. — Það var þýzki jurtafræðingurinn Joseph Gottlieb Kölreuter, sem árið 1760 gerði fyrstur manna vísinda- lega tilraun með að víxlfrjógva tvær fjar- skyldar tóbaksjurtir, með því að bera frjó ann- arar tegundarinnar á fræni hinnar. Afbrigð- ið varð að útliti miðlungur foreldranna. Með þessum rannsóknum sínum sýndi hann fram á, að frjóið hafði sín áhrif í fræmynduninni og einnig, að eiginleikar beggja foreldranna höfðu komið fram í afkvæminu. Áður höfðu skoðanir manna á þessu atriði verið mjög skiptar. Sumir vildu halda því fram, að kvenlífveran væri aðeins útungunar- stöð, en sæðið réði öllu um eðli afkvæmisins. Aðrir álitu hið gagnstæða, að eggið réði hins vegar öllu um eðli afkvæmisins, en frjóið væri aðeins til þess að örva eggvöxtinn og koma af stað skiptingu þess. Þetta voru tvær and- stæðar skoðanir, sem forðuðust hinn gullna meðalveg. Menn höfðu löngu áður tekið eftir því, að „líkt gaf af sér líkt“ og löngu áður en Mendel kom fram með lögmál sitt hafði reynslan kennt mönnum, að það var að öllu jöfnu betra að velja til undaneldis þá einstaklinga nytja- jurta og dýra, sem voru góðum eiginleikum gæddir, en hina, sem lakari voru, ef bæta átti kynstofninn. Menn tóku eftir því, að ein- staklingum kippti í kynið, þótt • ekki væru þeir endilega líkir hinum nánustu ættingjum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.