Félagsbréf - 01.01.1958, Síða 46

Félagsbréf - 01.01.1958, Síða 46
36 FELAGSBREF en enginn gat skafið af honum skáldgáfuna. Sumir gagnrýnend- ur líktu honum við Shelley, en flestir fundu honum það til for- áttu, að kveðskapur hans var um of litaður af kommúnisma. Ljóðs Spenders vöktu fyrst og fremst athygli fyrir nýja- brumið og hinn ytri glæsileik. Honum var mjög annt um að vera „nútímaskáld" og kaus að yrk- isefni fyrirbæri dagsins: flug- vélar, bíla, ljósastaura, síma- línur, gasstöðvar og verksmiðj- ur. Hann lýsti því meira að segja yfir, að rósin, ástin, gras- ið, kýrnar, fjöllin væru „óraun- yeruleg". Nútímatáknin, sem hann notar, eru fersk; hann kemur manni á óvart, vekur til nýrrar skynjunar. Spender hefur tilhneigingu til að vera dálítið tyrfinn í skáldskap sínum, og á það ef- laust rætur sínar að rekja til þess, að undir niðri er hann rómantískur, en vill ekki láta það koma fram. Hann vinnur bug á rómantíkinni með því að gera ljóð sín skörp, tinnuhörð, óvægin, en um leið verða þau stundum óþarflega óljós. Spender á mikinn skaphita og ríka þjóðfélagskennd, sem fær oft útrás í mergjuðu máli og „áþreifanlegum" táknum. Hann tók virkan þátt í stjórnmálabaráttu samtíðarinnar og bera sum verk hans of mikinn keim af því. En öll verk hans tjá einlæg- an hugsjónamann, sem vill láta skáldskapinn gegna ákveðnu hlutverki í þjóðfélaginu, vekja menn til hugsunar og framtaks. Spender hefur skrifað mikið um dagana, bæði smásögur, leik- rit, gagnrýni og ferðabækur. Bækur hans „The Destructive Ele- ment“ og „The Creative Element“ eru stórmerk verk um nokk- ur af höfuðskáldum þessarar aldar. Þá hefur hann einnig samið frábæra sjálfsævisögu. Stephen Spender.

x

Félagsbréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.