Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Side 53

Sveitarstjórnarmál - 01.03.2000, Side 53
FRA LAN DSHLUTASAMTOKUNUM Við sundlaug Grímseyinga var slegið upp tjaldbúðum fyrir fulltrúa á aðalfundinum. Ámi Steinar Jóhannsson ávarpaði þingið sem nýliðinn í þingmanna- hópnum. Hann greindi frá áherslu sinni á byggðamál og undirstrikaði þann vanda sem íylgir örum vexti höfuðborgarsvæðisins fyrir þá sem þar búa. Þá óskaði hann góðs sam- starfs við Eyþing. Aögeröir í byggöamálum á nýrri öld Bjarki Jóhannesson, forstöðu- maður þróunarsviðs Byggðastofn- unar, ræddi í erindi sfnu um það byggðamunstur sem nú ríkir og um nauðsyn þess að draga af því álykt- anir til að byggja á framtíðaraðgerð- ir og skipulag. Ný tækni kalli á nýj- ar lausnir. Hann taldi að undirrót fólksflutninganna lægi að stórum hluta í tæknivæðingu í landbúnaði og sjávarútvegi (veiðum og vinnslu). Vægi þekkingar og mennt- unar valdi fækkun í frumgreinunum og tilfærslu til þekkingargeirans, sem að stómm hluta er á höfuðborg- arsvæðinu. Hann ræddi um nýjar leiðir í byggðamálum og nauðsyn þess að laga byggðastefnuna að upplýsinga- og þekkingarþjóðfélag- inu. Örva þurfi frumkvæði, rann- sóknarstörf og þróunarverkefni utan höfúðborgarsvæðisins. Loks fjallaði Bjarki um byggðaaðgerðir í ná- grannalöndunum. Upplýsingatækni og byggóamál Bjami Kristinsson, ffamkvæmda- stjóri Reksturs og Ráðgjafar Norð- urlands, ræddi í upphafi máls síns um gjaldskrá fyrir gagnaflutning og áhrif hennar á samkeppnismögu- leika fyrirtækja úti á landsbyggðinni hvað varðar gagnaflutning og sam- skipti. Bjami fjallaði m.a. um fjölg- un starfa í tengslum við upplýsinga- tæknina, lög og reglugerðir og ýmis tæknileg atriði. Þá fjallaði hann um möguleg verkefni, bæði í einka- rekstri og í starfsemi ríkisins. Hann benti á að það em einkafyrirtæki, en ekki ríkisstofnanir, sem em í forystu um að byggja upp þjónustu á lands- byggðinni með notkun nýrrar tækni. Sveitarfélögin og lands■ hlutasamtökin í breyttu umhverfi Þorvaldur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri SSA, fjallaði um nýja kjördæmaskipan og um hlutverk landshlutasamtaka sveitarfélaga. Meðal annars ræddi hann hugsan- lega breytingu á landshlutasamtök- unum vegna breyttrar kjördæma- skipunar. Lagði áherslu á að öflug sveitarfélög em nauðsynlegur bak- hjarl landshlutasamtakanna. Gerði grein fyrir góðri samstöðu sveitarfé- Skarphéöinn Sigurðsson, oddviti Bárðdælahrepps og stjórnarmaður í Eyþingi, og Val- gerður Sverrisdóttir, alþingismaður og nú einnig iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Pétur Þór Jónasson, framkvæmdastjóri Eyþings, tók myndirnar sem frásögninni fylgja.

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.