Sveitarstjórnarmál


Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 57

Sveitarstjórnarmál - 01.10.2000, Blaðsíða 57
FRÁ LAN DSHLUTASAMTÖKUNUM Fulltrúar Sandgerðisbæjar á fundinum, talið frá vinstri, Óskar Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar, Jóhanna S. Norðfjörð bæjarfulltrúi, Sigurður Valur Ásbjarnarson bæj- arstjóri og bæjarfulltrúarnir Sigurbjörg Eiríksdóttir, Reynir Sveinsson og Eyþór Jóns- son. Myndinar með greininni tók Oddgeir Karlsson. Tekjustofnar sveitarfélaga Aðalfitndur SSS 1999 beinir þeirn eindregnu tilmælum til Alþingis og tekjustofnanefndar, sem félagsmála- ráðherra hefur skipað, að við endur- skoðun tekjustofna sveitarfélaga verði sveitarfélögum tryggðir nauð- synlegir tekjustofnar til að sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin sam- kvæmt lögum og reglugerðum. Aðalfimdur SSS telur nauðsynlegt að Alþingi og tekjustofnanefnd taki til sérstakrar skoðunar þá tekjuskerð- ingu og aukin útgjöld sem sveitarfé- lög hafa orðið fyrir vegna breytinga á skattalögum. Lögð er áhersla á að sveitarfélögunum verði nú þegar bætt umrædd skerðing. Aðalfundur SSS vekur athygli á því að samkvæmt skýrslu nefndar um fjármálaleg samskipti ríkis og sveitar- félaga 1990-1997 kemur í ljós að að- gerðir ríkisvaldsins hafa skert fjárhag sveitarfélaganna um 14 til 15 millj- arða á tímabilinu. Fundurinn tekur undir efni skýrslunnar og ítrekar að bæta verði sveitarfélögunum þessa fjármuni. Vegamál Aðalfundur SSS 1999 krefst þess að tvöföldun Reykjanesbrautarinnar verði flýtt frá því sem nú er gert ráð fýrir í vegaáætlun. Jafnframt verði hafinn undirbúningur að Suðurstrand- arvegi frá Þorlákshöfn um Grindavík, Reykjanesvita, Hafnir og Ósabotna að Stafhesi. Tillögu að ályktuninni jylgdi svofelld greinargerð: Umferð um Reykjanesbraut jókst um 8% milli áranna 1997 og 1998 samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinn- ar. Umferð um brautina við Straumsvík á árinu 1997 var alls 5870 bifreiðar á sólarhring en 6330 á árinu 1998. Fyrirhuguð stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og stóraukin umsvif þar vegna vaxandi farþega- og fragt- flugs auka enn á umferð á álagstímum brautarinnar. Slys á kaflanum frá Krýsuvíkurvegi til Keflavíkur hafa verið að meðaltali 40 á ári á árunum 1992-1996. Með nýrri kjördæmaskipan er brýnt að tengja saman væntanlegt Suðurkjördæmi með Suðurstrandarvegi sem og til að þjóna atvinnulífinu. Stjórn SSS Fyrir næsta starfsár voru eftirtalin tilnefnd í stjóm SSS: Skúli Þ. Skúlason, forseti bæjarstjómar í Reykja- nesbæ, Hallgrimur Bogason, forseti bæjarstjórnar Grindavíkurkaupstaðar, og Óskar Gunnarsson, forseti bæjarstjómar Sandgerðisbæjar, Sigurður Jónsson, sveit- arstjóri Gerðahrepps, og Þóra Bragadóttir, oddviti Vatns- leysustrandarhrepps. A fýrsta fundi sínum skipti nýkjörin stjóm með sér verkum þannig að Sigurður Jónsson er formaður, Skúli Skúlason varaformaður og Hallgrímur Bogason ritari. Einnig kaus fundurinn fjóra fulltrúa á samráðsfund Landsvirkjunar. Skoöunarferö og kvöldveröur Við lok fundar á föstudeginum var fundarmönnum boðið í skoðunarferð um Reykjanesbæ undir Ieiðsögn heimamanna þar sem ýmsar framkvæmdir vom skoðað- ar, m. a. Heiðarskóli, sem er nýr og glæsilegur gmnn- skóli. Að loknum aðalfúndi á laugardeginum var kvöldverð- ur fýrir fúndarmenn og maka í boði SSS í KK-salnum í Reykjanesbæ. Fundargerð aðalfundarins má finna á vefsíðu Sam- bands sveitarfélaga á Suðumesjum: http://www:sss.is 247
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.