Hermes - 01.12.1960, Blaðsíða 12

Hermes - 01.12.1960, Blaðsíða 12
Haukur Bach- mann dvelur nú á skóla í Guth- bsrt, Georgia, U. S. A„ á vegum Rotary og hér á eftir fara glefs- ur úr fréfum frá honum til Þórs Ragnarssonar. Bréf fró Bachmann ......Ferðin suður tók mig 25 klst. Öllum þrem flugvélunum seinkaði . . . . Hitinn er alveg að gera út af við mig. í gær hrökk hitamælirinn í rúmlega 30 stig á celcíus. ........Fólkið hérna finnst mér mjög vingjarnlegt og vill allt fyrir mann gera. Að vísu er það svolítið íhaldssamt, þar á ég við að það er bara Ameríka sem kemst að hjá því. Ef þú ert ekki ,,American“, eða gerir eins og það, þá ertu ,,no good“. ......Hér aka allir um í bílum og varla sést gangandi manneskja, nema í hjarta borgarinnar......I þsssum bæ, sem ég er, búa um það bil 500 þús. manns og 2/3 hlutar þess eru svertingjar. Á yfirborðinu virðast þeir njóta jafnréttis.. ......Skólinn er nú byrjaður hjá mér og finnst mér ákaflega undar- legt að vera seztur á skólabekk aft- ur; hélt satt að segja að slíkt myndi aldrei koma fyrir eftir að ég skreiddist út úr S.Í.S. Mér finnst þetta ansi strembið. Þó þarf ég ekki að lesa nema undir tvo tíma á dag, og hlusta svo í þeim þriðja .......Til að byrja með tek ég cnsku og „introduction to busin- ess“........Hér eru um 180 nem- endur og rúmlega helmingurinn kvenfólk og heldur það til í skóla- húsinu en við strákarnir erum hér og þar um bæinn, ég er rétt við skólahúsið........Reglurnar hérna eru mjög strangar, t.d. megum við ekki fara inn til stelpnanna og þær ekki inn til okkar. Þetta er andsk. hart. Ef einhver ætlar að yfirgefa skólann þá verður hann að skrifa sig út og segja hvert förinni er heitið, hvenær hann búizt við að koma aftur o.s.frv.........Frekar lítið er um að vera hérna í bænum, aldrei böll eða þvíumlíkt. Það er jú bíó, on það er þreytandi að fara mikið á bíó, hávaðinn og djöful- gangurinn svo mikill í áhorfend- um. .......Um síðustu helgi var öllum Rotary stúdentum boðið til Millegd- erville sem er borg í Georgiafylki um 150 mílur héðan. Það var geysi- lega gaman. Forráðamenn Rotary gerðu svo mikið fyrir okkur, að ekki eru nokkur orð til að lýsa því. Á föstudaginn var öllum boðið í „mat“ af Rotaryklúbb Milledgerville. Þar voru forráðamenn Rotary og fleiri meðlimir og þeirra frúr. Um kvöld- ið þegar við komum þangað sem við höldum til var haldið „party". Rotary meðlimir buðu okkur upp á það, sem við vildum drekka, og áttum við að bjarga okkur sjálf, ef við vildum meira. Ég drakk þjóðar- drykk Ameríkumanna, „Coca Cola“. .......Um kvöldið (laugardag) var dansað og okkur m.a. kenndur bandarískur squaredans (ferhyrn- ingsdans). Fyrir utan þetta var hópurinn svo myndaður hátt og lágt við ým- is tækifæri. Ég bið kærlega að heilsa öllum kunningjum og vinum, sem þú nærð í. Haukur 12 HERMES

x

Hermes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hermes
https://timarit.is/publication/1070

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.