Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012 Morgunblaðið/Ómar Hnefaleikakappi Ari Þór Ársælsson hóf að keppa í boxi í Svíþjóð og hefur áratuga reynslu úr boxheiminum. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Eftir farsælan feril í heimiatvinnuboxara hefur AriÞór Ársælsson nú snúiðsér að því að kenna æf- ingakerfi þar sem boxið er notað til að auka úthald og styrkja líkamann. Í fitness boxi hjá Ara Þór er mikið púlað og boxið notað í og með. Úthaldið skiptir einna mestu í boxinu Box er vel til þess fallið að auka úthald fólks í bland við styrktaræfingar. Hnefaleikakappinn Ari Þór Ár- sælsson nýtir áralanga reynslu sína sem boxari nú til þess að koma fólki í gott form á fitness box-nám- skeiðum. Fitness box er fyrir fólk á öllum aldri og fer hver og einn þar á sínum hraða. Víða um Ísland eru fallegar göngu- leiðir og auðvelt að finna upplýsingar um slíkt á netinu. Ein slík síða er heimasíða Borgarfjarðar eystri. Þar er að finna greinargóðar upp- lýsingar um ferðaárið 2012 hjá Ferða- félagi Fljótsdalshéraðs. Meðal ferða má nefna fugla- og blómaskoð- unarferð sem farin verður í júní. Um er að ræða þriggja daga ferð en styttri ferðir eru líka í boði. Þannig má nefna sólstöðugöngu þann 22. janúar þar sem gengið er í Stapavík og afmælisganga á Súlu í Dyrfjöllum. Það er gaman að kanna landið sitt fótgangandi svo ekki sé talað um í fallegri sumarbirtu og jafnvel svolít- illi sól. Fyrir þá sem eiga leið um Austurland í sumar gæti verið snið- ugt að taka slíka gönguferð með í reikninginn. Sjón er sögu ríkari og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Vefsíðan www.borgarfjordureystri.is Morgunblaðið/Steinunn Ásmunds Útsýni Svipmynd frá Borgarfirði eystri á fallegum sumardegi. Gönguferðir á Austurlandi Bláfjallagangan fer fram næstkom- andi laugardag, 3. mars. Gangan er partur af svokölluðum Íslands- göngum. En þær eru skíðagöngumót sem fram fara víðsvegar um land yfir vetrarmánuðina. Keppt er í 3 aldurs- flokkum í 20 km göngunni 17-34 ára, 35-49 ára og 50 ára og eldri, bæði í karla- og kvennaflokki, og teljast mótin til stiga í Íslandsgöngunni. Það er Skíðasamband Íslands sem hefur efnt árlega til mótsins síðan 1985. Í hverri göngu eru í boði fleiri en ein vegalengd þannig að allir eiga að geta fundið brautir við sitt hæfi. Nánari upplýsingar má nálgast á hlaup.is Endilega… …gangið Blá- fjallagönguna Á gönguskíðum Gangan hentar öllum. Það kostar blóð, svita og tár að taka þátt í Ólympíuleikum. Æfingarnar eru þrotlausar og reyna mikið á íþrótta- menn, bæði líkamlega og andlega. Hér getur að líta myndir af æfingu fimleikafólks í Ríó de Janeiro um helgina. Eins og sjá má skiptast á skin og skúrir á slíkum æfingum. Enda margt sem þarf að fínpússa og laga fyrir jafn stóra og mikilvæga keppni sem þessa. Ólympíuleikarnir í ár verða haldnir í Lundúnum og brutust út mikil fagn- aðarlæti á götum borgarinnar þegar Al- þjóða ólympíunefndin (IOC) tók þá ákvörðun árið 2005. Veitir ekki af þeim tíma til undirbúnings enda munu millj- ónir manna verða í borginni meðan á leikunum stendur í ágúst. Ísland tók fyrst þátt í Ólympíuleikunum í London 1908 en frá árinu 1936 hafa Íslendingar tekið þátt í öllum leikum nema vetr- arleikunum í Sapparo í Japan 1972. Stífar æfingar fyrir Ólympíuleika Blóð, sviti og tár fimleikafólks Reuters Fimleikastjarna Hin brasilíska Jade Barbosa er í hópi Ólympíufara og brosir hér sínu blíðasta á æfingu. Álag Æfingarnar eru þrotlausar og þar skiptast á skin og skúrir. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Í grein sem birtist á vefsíðu Los Ang- eles Times segir greinarhöfundur Shari Roan að ef nokkuð megi kalla „töfralausn“ í læknisfræði sé það regluleg hreyfing. Enda hafi slíkt al- mennt verið tengt við betri heilsu fólks. Ný rannsókn í Bandaríkjunum sýni hins vegar að þar sé aðeins einn af hverjum þremur fullorðnum spurður um líkamsrækt sína af lækni. Rann- sóknin var gerð árið 2010 af heil- brigðisyfirvöldum í Bandaríkjunum og var úrtakið 21.800 fullorðnir Bandaríkjamenn. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að nokkuð fleiri konum hafði verið ráðlagt að hreyfa sig meira. Í síðustu rannsókn sem gerð var árið 2000 kom í ljós að aðeins 22% sjúklinga höfðu verið spurð um líkamsrækt sína. Nokkur vakning hef- ur því orðið síðan þá en þó ekki næg til að mæta viðmiðum um lýðheilsu. Jákvæðast við rannsókina var þó það að auking hefur einna helst orðið í því að hvetja eldra fólk til að hreyfa sig. Í aldurshópnum 85 ára og eldri höfðu talsvert fleiri verið hvattir meira en fyrir 10 árum. Þá var sykursjúkt fólk líklegra til að vera spurt um daglega hreyfingu en fólk með hjartasjúkdóma. Þá voru þeir sem eru í yfirvigt frekar hvattir til að hreyfa sig en hinir. En fyrir heilsuna er mikilvægt að allir hreyfi sig reglulega. Bandarísk heilbrigð- isyfirvöld eiga því nokkuð langt í land á þessu sviði. Heilsa Reuters Herferð Forsetafrú Bandaríkjanna, Michelle Obama, hvetur unga fólkið. Auka þarf vægi hreyfingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.