Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 17
AP Þjóðaratkvæðagreiðsla Ung sýr- lensk kona sýnir hér kjörseðil sinn. Ný stjórnarskrá var samþykkt í Sýrlandi með tæplega 90% atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin var á sunnudaginn var. Í frétta- tilkynningu frá sýrlenska innan- ríkisráðuneytinu segir að kjörsóknin hafi verið 57% en rúmlega 14 millj- ónir manna voru á kjörskrá. Af þeim 8,4 milljónum kjósenda sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni sögðu tæplega 7,5 milljónir „já“ en rúm- lega 750 þúsund „nei“. Um það bil 133 þúsund atkvæði voru dæmd ógild en það jafngildir um 1,6% af heildarfjölda atkvæða. Héldu áfram árás Stórskotaliðsárás sýrlenska hers- ins á borgina Homs stóð áfram yfir í gær á meðan beðið var eftir því að tilkynnt yrði um niðurstöður þjóðar- atkvæðagreiðslunnar. Af þeirri ástæðu hafa þjóðarleiðtogar Vestur- landa sumir hverjir sagt fram- kvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar skorta allan trúverðugleika. Þannig lýsti William Hague, utanríkis- ráðherra Bretlands, því yfir á fundi utanríkisráðherra ESB-ríkjanna í Brussel í gær að sýrlenska þjóðar- atkvæðagreiðslan blekkti engan. „Það að opna kjörstaði en láta þó sprengjum og byssukúlum rigna áfram yfir óbreytta borgara í land- inu er ekki traustvekjandi í augum íbúa heimsins,“ sagði Hague á fund- inum í gær þar sem utanríkis- ráðherrar aðildarríkja ESB sam- þykktu að beita stjórnvöld í Sýrlandi harðari refsiaðgerðum en áður. skulih@mbl.is Ný stjórn- arskrá í Sýrlandi  Hlaut samþykki um 90% kjósenda FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012 Þýska þingið samþykkti í gær með yfirgnæfandi meirihluta að styðja nýjan björgunarpakka sem evrurík- in hyggjast veita Grikklandi í von um að koma í veg fyrir að landið neyðist til þess að lýsa yfir greiðslu- þroti. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hafði áður varað þing- menn við að slíkt myndi hafa ófyrir- sjáanlegar afleiðingar. 496 þingmenn greiddu atkvæði með björgunarpakkanum, 90 greiddu atkvæði gegn honum og fimm þingmenn sátu hjá. Björg- unarpakkinn, sem evruríkin hyggj- ast veita Grikklandi, nemur um 130 milljörðum evra eða því sem jafn- gildir tæpum 21.800 milljörðum ís- lenskra króna. „Ómögulegt er að reikna út allar þær hættur sem fylgja því að snúa baki við Grikklandi núna,“ sagði Merkel við þingmenn neðri deildar þýska sambandsþingsins í gær og bætti við: „Enginn getur metið hvaða afleiðingar slíkt myndi hafa fyrir efnahag Þýskalands, fyrir Ítal- íu, Spán, evrusvæðið í heild sinni og að lokum alla heimsbyggðina.“ Hún tók þó fram að grísku þjóðarinnar biði langur leiðangur sem væri ekki án áhættu og að hið sama gilti um nýju efnahagsáætlunina. Stjórnvöld í Þýskalandi segja að með minna umróti á fjármálamörk- uðum, lægri ávöxtunarkröfu spænskra og ítalskra ríkisskulda- bréfa, hafi dregið úr hættu á því að skuldavandinn breiðist út og sömu- leiðis að dregið hafi úr þrýstingi á að styrkja björgunarsjóði evrusvæðis- ins. „Ríkisstjórnin sér í augnablikinu enga nauðsyn til að hefja umræðu um það hvort stækka þurfi núver- andi og framtíðar björgunarsjóði evrusvæðisins,“ sagði Merkel í ræðu sinni á þinginu í gær. Þurfti ekki að stóla á minnihlutann Fyrir atkvæðagreiðsluna í gær var ekki talið ljóst hvort Merkel myndi þurfa að reiða sig á þingmenn minnihlutans til þess að tryggja þingmeirihluta fyrir björgunarpakk- anum, en tveir þingflokkar af þeim þremur sem mynda minnihlutann höfðu áður lýst því yfir að þeir myndu greiða atkvæði með björg- unarpakkanum. Hans-Peter Fried- rich, innanríkisráðherra Þýska- lands, olli miklum óróa fyrir atkvæðagreiðsluna í gær þegar hann lýsti því yfir að Þjóðverjar ættu að veita Grikkjum hvata til þess að yfir- gefa evrusvæðið. Björgunarpakki samþykktur  Þýska þingið samþykkti nýjan björgunarpakka handa Grikklandi með yfirgnæfandi meirihluta  Meirihluti Þjóðverja er mótfallinn björguninni Reuters Ráðamenn Angela Merkel (t.v.), kanslari Þýskalands, ásamt Wolfgang Schaeuble (t.h.), fjármálaráðherra landsins, á þýska þinginu í gær. Skúli Hansen skulih@mbl.is Aðstæður barna í borgum og þétt- býli eru í kastljósi nýrrar alþjóðlegr- ar skýrslu UNICEF sem verður birt í dag. Rúmlega einn milljarður barna býr í þéttbýli núna en samkvæmt skýrslunni er talið að innan fárra ára muni meirihluti barna í heiminum alast upp í þéttbýli. Mörg tækifæri fylgja því að alast upp í þéttbýli en slík búseta hefur þó einnig sína ókosti. „Almennt hafa börn í borgum meiri tækifæri heldur en börn úti á landi vegna þess að þjónusta er frek- ar til staðar, menntastofnanir þar eru betri og innviðirnir eru almennt sterkari í borgum heldur en úti á landi,“ segir Sigríður Víðis Jónsdótt- ir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Ís- landi, og bætir við: „En það er líka miklu meiri ójöfnuður innan borga, þannig að það er meiri munur þar á milli fátækustu og ríkustu barnanna, til dæmis er fullt af börnum í borgum sem fara ekki í skóla.“ Búa við mjög erfiðar aðstæður Í skýrslunni kemur fram að um það bil 215 milljónir barna í heim- inum neyðist til þess að vinna við erf- iðar aðstæður.„Fólk flytur oft til borga í leit að atvinnu. Þ.e. annars vegar eru þetta börn sem eru nýflutt í borg vegna þess að foreldrar þeirra eru að leita að atvinnutækifærum, en nú fæðist líka fjöldi barna í fátækra- hverfum í borgum. Þá eru þau oft kirfilega föst í viðjum fátæktar og börnin hafa til dæmis ekki tækifæri til þess að fara í skóla, þau þurfa að vera úti á götu að selja smávarning, sum þeirra betla eða vinna hina og þessa erfiðisvinnu sem þau ættu auð- vitað ekki að vera að gera,“ segir Sigríður. Í skýrslunni kemur einnig fram að börn sem búa í fátækra- hverfum í borgum búi gjarnan við af- ar hættulegar aðstæður. „Fátækra- hverfi myndast oft á mjög hættulegum stöðum af því að þar vill enginn annar búa. Þá ertu fljótt kominn með mikinn fjölda ungra barna sem býr rétt við varasamar umferðargötur, við hlið lestarteina, í bröttum hæðum þar sem aurskriður geta valdið vandræðum í rigningu eða jafnvel á ruslahaugum,“ segir Sigríður. Vert er að minnast á það að sam- kvæmt skýrslunni mælist barna- dauði minnstur á Íslandi og í evr- ópsku smáríkjunum San Marínó og Liechtenstein. Í þessum ríkjum deyja einungis tvö af hverjum þús- und börnum áður en þau ná 5 ára aldri. Ójafnar aðstæður borgarbarna  Lægsta tíðni barnadauða á Íslandi og í smáríkjunum San Marínó og Liechtenstein  Fjöldi barna vinnur erfiðisvinnu í stað þess að sitja á skólabekk  Varasamar aðstæður í mörgum stórborgum © UNICEF/Rich Barnaþrælkun Um það bil 215 milljónir barna í heiminum neyðast til þess að starfa við mjög erfiðar aðstæður. Hér sést fimm ára gömul stúlka selja hárspennur í neðanjarðarlest í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu. Úkraínsku leyni- þjónustunni tókst að koma í veg fyrir áform tveggja manna um að ráða Vla- dímír Pútín, for- sætisráðherra Rússlands, af dögum, að því er segir í tilkynn- ingu sem stjórn- völd í Rússlandi gáfu frá sér í gær. Mennirnir voru handteknir í úkra- ínsku borginni Odessa. Í tilkynn- ingunni segir að tilræðismennirnir hafi ætlað sér að myrða Pútín eftir forsetakosningarnar sem fara fram í Rússlandi hinn 4. mars nk. Að sögn Dmítrís Peskovs, talsmanns Pútíns, var um raunverulega ógn að ræða en þá frásögn staðfesta bæði leyniþjónustur Rússlands og Úkraínu. Mennirnir eru sagðir hafa viðurkennt á myndskeiðum að þeir hafi verið ráðnir af tétsneska skæruliðaleiðtoganum Doku Umarov. Komu í veg fyrir áform um að myrða Vladímír Pútín Vladímír Pútín forsætisráðherra. RÚSSLAND Rúmlega fimmtán þúsund manns leggja líf sitt að veði á hverjum degi við að rífa í sundur gömul og úrelt skip á skipaniðurrifsstöðinni á Gadani-ströndinni í Pakistan. Fyrir þessa erfiðisvinnu fá starfsmenn skipaniðurrifs- stöðvarinnar greidd dagslaun sem jafngilda rétt rúm- um fimm hundruð íslenskum krónum. Reuters Lífshættuleg niðurrifsstarfsemi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.