Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.02.2012, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012 Unnur er farin heim eins og við skátar segjum. Unnur gerðist ung skáti og starf- aði óslitið með skátahreyfingunni meðan heilsa leyfði. Margs er að minnast frá samstarfi okkar. Við fórum ásamt eiginmönnum okkar Sigmundi og Páli til Frakklands og Noregs á skátamót auk fjöl- margra skátamóta hér innan- lands. Einnig dvöldum við í fjöl- skyldubúðum á skátamótum ásamt börnum og barnabörnum. Fyrir allmörgum árum var stofnað Félag eldri kvenskáta og var Unnur lengi formaður þess. Félagið studdi við bakið á skátafélögum í Reykjavík á ýms- an hátt, t.d. með því að gefa hús- búnað í skátaheimilin. Við fórum í ferðalög á sumrin og hittumst minnst tvisvar á ári, á bolludag- inn og svo á aðventu, á jólafundi. Við hittumst ennþá þó að óðum fækki í hópnum og erum við nú aðeins átta eftir. Síðustu árin hafa verið erfið hjá Unni og fjölskyldunni en hún er nú komin heim og laus undan öllum þrautum. Við í Félagi eldri kvenskáta þökkum Unni samveruna og samstarfið. Hún var alltaf viðbú- Unnur Scheving Thorsteinsson ✝ Unnur Schev-ing Thor- steinsson fæddist 18. september 1930 í Svíþjóð. Hún lést 12. febrúar 2012. Útför Unnar fór fram frá Áskirkju 21. febrúar 2012. in að vinna með okk- ur fyrir skátana. Við sendum Sigmundi og fjölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Mig langar að enda þessar línur á kvöld- söng kvenskáta. Sofnar drótt, nálgast nótt, sveipast kvöldroða himinn og sær. Allt er hljótt, hvíldu rótt. Guð er nær. (Kvöldsöngur skáta.) Fyrir hönd eldri kvenskáta, Soffía Stefánsdóttir. HINSTA KVEÐJA Sofið er ástaraugað þitt sem aldrei brást að mætti mínu; mest hef eg dáðst að brosi þínu, andi þinn sást þar allt með sitt. Slokknaði fagurt lista ljós. Snjókólgudaga hríðir harðar til heljar draga blómann jarðar. Fyrst deyr í haga rauðust rós. (Jónas Hallgrímsson.) Við kveðjum þig, elsku hjartans amma, með ein- lægri þökk fyrir allt og allt. Hver minning um þig er okkur dýrmætt ljós. Sigmundur Bjarki Egilsson, Hildur Axelsdóttir, Kolbrún Líf og Daniel Þór. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Í þessum kveðjuorðum mínum til þín, elsku afi, vil ég þakka þér fyrir samfylgdina á lífsleiðinni, en það hafa verið forréttindi að þekkja þig og eiga þig að, annar eins ljúflingsmaður og þú varst. Þó að við höfum lengst af búið sitt í hvorum landshlutanum í mínum uppvexti þá eru margar minningar sem leita á hugann nú þegar komið er að kveðjustund. Flestar eru þessar minningar tengdar merkum áföngum í lífinu eins og skírn, fermingu og gift- ingu. Með myndum frá þessum at- burðum rifja ég upp lífshlaup okk- ar saman og fyrst er það skírnin Haukur Pálsson ✝ Haukur Páls-son fæddist í Reykjavík 23. nóv- ember 1919. Hann lést á Landspítala, Landakoti, 12. febr- úar 2012. Útför Hauks fer fram frá Fossvogs- kirkju í dag, 20. febrúar 2012, kl. 15. mín sem var á páskadagsmorgun en þið amma voruð veðurteppt á leiðinni vestur til Ólafsvíkur með skírnarkjólinn sem ég átti að vera í. Ég var svo heppin að fá að búa hjá þér þegar ég hélt út í líf- ið og í framhalds- skóla og þá fyrst kynntist ég þér sem afa en ekki bara sem gesti eða gestgjafa yfir helgar eða í stuttan tíma. Þú varst ljúfur, jákvæður, geðgóður og með húmor fyrir þér og þínum en einnig varst þú harð- duglegur smiður sem ég fékk að njóta góðs af. Í ferðum þínum vestur í heimsókn til okkar feng- um við hjálp þína við ýmis smíða- verk. Síðasti viðburður sem við áttum saman var stúdentsveisla sonar míns en þá vorum við mynduð saman og þú sagðir eins og svo oft áður: Á nú enn að fara að taka myndir af mér? En nú eru það meðal annars þessar myndir sem minning þín lifir í. Á kveðjustund eigum við mynd- ir og ljúfar minningar og erum þakklát fyrir allar þessar góðu stundir sem við áttum saman. Þín, Pétrún og fjölskylda. Hið raunsanna vinarþel Jóns Þórarinssonar gagnvart foreldr- um mínum og fjölskyldu verður seint fullþakkað. Umhyggja hans speglaðist í orði sem í verki. Hann naut djúprar virð- ingar og aðdáunar á bernsku- heimili mínu við Eskihlíð þar sem lögin hans voru vandlega æfð og flutt, umfjöllun hans um tónlist í Alþýðublaðinu og síðar Morgunblaðinu lesin í þaula og menningarstefnu hans dyggilega fylgt. Fátt gladdi föður minn jafn- eftirminnilega og þau fögru um- mæli sem hann las eftir Jón Þór- arinsson í Morgunblaðinu um einsöngsframmistöðu sína með Karlakórnum Fóstbræðrum snemma á sjöunda áratugnum. Enginn reyndist móður minni jafntraustur og skilningsríkur vinnuveitandi og sá sami Jón, þá yfirmaður dagskrárdeildar Sjón- varpsins. Atfylgi hans innan stjórnar Kvikmyndasjóðs við mín eigin verkefni var einnig drengilegt. Þannig var það fjölþætt gæfa að eiga Jón Þórarinsson að þeim trygga fjölskylduvini sem hann reyndist – velunnara sem aldrei brást. Sérstakt ánægjuefni er svo með hvaða hætti þau tryggða- bönd hafa erfst og eflst með nýj- um kynslóðum beggja fjöl- skyldna. Með Jóni Þórarinssyni er Jón Þórarinsson ✝ Jón Þór-arinsson fædd- ist í Gilsárteigi í Eiðaþinghá, S- Múlasýslu, 13. sept- ember 1917. Hann lést á Droplaug- arstöðum 12. febr- úar 2012. Útför Jóns Þór- arinssonar var gerð frá Dómkirkj- unni 23. febrúar 2012. genginn einn fremsti og merkasti menningarforkólfur Íslands, frum- kvöðull í framsækn- um tónsmíðum, sem reyndust þó einatt við alþýðuskap. Hann lagði gjörva hönd á svo margt að vart verður hér upp talið. Sköruleg þátttaka hans í mótun helstu hornsteina ís- lensks menningarlífs er slík að með ólíkindum verður að teljast. Hvert í listheimum sem litið er birtist hinn vitri og ráðagóði Jón Þórarinsson í flokki stofnenda og stjórnenda: Bandalag ís- lenskra listamanna, BÍL, Sam- tök tónskálda og eigenda flutn- ingsréttar, STEF, Tónskáldafélag Íslands, Ríkisút- varpið/Sjónvarpið, Sinfóníu- hljómsveit Íslands, Kvikmynda- sjóður, Karlakórinn Fóstbræður og svo mætti lengi telja. Hann var sjálfur Fuglinn í fjörunni er fljúga nam með him- inskautum í krafti vængjahafs- ins víða. Hann eygði snemma þá slóð farsældar og vaxtar sem ís- lensk menningarflóra hlaut blessunarlega að dafna við. Hann flaug fremst og hæst. Við sem eftir sitjum og njót- um afraksturs alls þess sem Jón Þórarinsson tók svo ríkulega þátt í að skapa hljótum að horfa til þeirra tíma með nokkurri eft- irsjá er íslenskir menningar- menn voru jafn öflugir og raun- verulegir áhrifavaldar í samfélaginu. Megi minningin um Jón Þórarinsson lifa með okkur í voninni um að fleiri slíkir stigi senn fram svo eftir verði tekið. Eftirlifandi eiginkonu, börn- um og fjölskyldu allri votta ég mína dýpstu hluttekningu. Þeg- ar svo lengi hefur verið lifað og vel verða þakklætið og væntum- þykjan eftirsjánni fylginautar. Jakob Frímann Magnússon. Okkur langar að minnast vin- ar okkar Halldórs Guðbjarnar- sonar eða Dóra, eins og hann var oftast kallaður, sem lést langt fyrir aldur fram. Við kynntumst Dóra og Helgu á Kanarí um síð- ustu aldamót. Síðar urðu Kanarí- ferðirnar margar. Eftir að við vorum búin að byggja bústaðinn áttum við þar saman margar góðar stundir, nú síðast í október í haust. Þá er að minnast ferða okkar til Parísar en þær urðu tvær. Dóri var fararstjórinn. Við vor- um bara fjögur. Margt skoðað og slepptum við ekki Lido né Rauðu myllunni. Dóri var fundvís á veit- ingastaði. Hann var mikill mat- maður og hafði gaman af öllum óvenjulegum forréttum og öllum mat sem var óvenjulegur. Einnig er þess að minnast þegar við fór- um hringferð um Gran Kanarí, þá pantaði Dóri krabbafætur, en það var lítið borðað af því. Þetta var eitt af fáu skiptunum sem honum brást bogalistin. Síðustu ár hafa verið erfið vegna veikinda Dóra. Eftir sitja minningar um góðan félaga og vin sem kvaddi alltof snemma. Elsku Helga, Jóhann, Símon, Anna og fjölskyldur ykkar. Við vottum ykkur samúð okkar og vonum að góður Guð veiti ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Bára og Kristinn. Flottur peyi er fallinn frá. Þessi fyrrverandi skipstjóri sem varð að hætta sjómennsk- unni vegna bakveikinda sneri sér eftir að í land var komið að allt öðru starfi. Hann fór að vinna í stjórn FFSÍ árið 1995 og var fulltrúi Verðandi í Lífeyrissjóði Vestmannaeyja frá 1995. Dóri Halldór Guðbjörnsson ✝ Halldór Guð-björnsson fæddist í Reykjavík 30. janúar 1961. Hann lést á heimili sínu í Vest- mannaeyjum 15. febrúar 2012. Útför Halldórs fór fram frá Landa- kirkju 24. febrúar 2012. tók sæti í stjórn Verðandi árið 1998 sem gjaldkeri og á þeim tíma var félag- ið frekar illa statt peningalega, en menn voru ákveðnir í að halda félaginu gangandi. Sem starfsmaður og gjaldkeri tók hann þetta föstum tökum og þegar Verðandi- menn fóru á fundi í Reykjavík út- býtti hann strætómiðum til manna. Það var ekki í dæminu hjá honum að taka bílaleigubíl til að komast á milli staða. Alltof dýrt. Þannig hugsaði Dóri. Á aðalfundum var hætt tíma- bundið að veita veitingar að lokn- um fundi. Öllum kostnaði var haldið niðri og félagsmenn unnu mikið fyrir Verðandi kauplaust og með áhugann einan að vopni til að láta félagið lifa, enda vitn- aði Dóri oft í 16. grein laga fé- lagsins. Þar segir meðal annars: „Enginn félagsmaður getur neit- að að vinna hvert það verk í þarf- ir félagsins, sem honum er á hendur falið.“ Það voru tugir manna sem unnu að þessu mark- miði og það tókst. Í dag er Verð- andi mjög sterkt félag sem betur fer. Dóri starfaði með þremur formönnum, Sigurbirni Árnasyni 1994-1997, Magnúsi Guðmund- syni 1997-2002 og undirrituðum 2002-2012. Þegar ég var kosinn formaður fylgdist ég með störf- um Dóra og það sem mér fannst undarlegast var þegar hin og þessi kærumál frá félagsmönn- um komu inn á borð til okkar hvernig Dóri tók á málunum. „Ég fer bara í kaffi til útgerð- armannsins á morgum og við ræðum málið,“ sagði Dóri. Í all- flestum tilfellum leystust málin yfir kaffisopa. Sum mál enduðu því miður fyrir Hæstarétti. Dóri sagði mér að það væri ömurlegt að þurfa að fara þá leið, þar sem þetta væru oft vinir og kunningj- ar sem Verðandi væri að fara í mál við fyrir sína félagsmenn. Í litlu bæjarfélagi þarf kjark og þor til að takast á við svona hluti. Hann var að vinna sína vinnu og þótt allir þekki alla gekk starfið fyrir öllu. Halldór var mjög skipulagður og vissi upp á hár um alla hluti í sambandi við réttindi sinna manna og þá á ég við veikinda,- lífeyris-, örorku- eða hvaða rétt sem er og hefur hjálpað mörgum félagsmönnum í gegnum kerfið. Það segir margt um viðhorf sjómanna í Eyjum til Halldórs þegar Skipstjóra- og stýri- mannafélagið Verðandi, Sjó- mannafélagið Jötunn og Sjó- mannadagsráð tóku sig saman og buðu Halldóri og Helgu konu hans til Tyrklands síðasta sumar sem þakklæti fyrir góð störf, fyr- ir sjómenn almennt. Halldór vann sína vinnu hægt, hljótt og vel. Kæri Dóri, þrátt fyrir erfið veikindi kvaddir þú okkur á þinn hátt, hljóðlega og rólega. Takk fyrir allt Dóri minn. Fyrir hönd Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Verðandi votta ég Helgu og öðrum að- standendum dýpstu samúð. Minning um góðan dreng lifir. Bergur Kristinsson, formaður. Þegar Símon hringdi og til- kynnti mér að þú værir látinn fór hugurinn á flug, minningar frá því þú varst í sveit á Innri- Kóngsbakka en ég átti heima á næsta bæ. Það var alltaf tilhlökk- un á vorin þegar var von á þér. Allt sumarið gátum við dundað okkur í klettunum fyrir ofan bæ- inn þegar tími vannst til, hor- nabúskapurinn tók sinn tíma og að hlaða steinveggi milli stórra steina, járnplata yfir og komið þetta flotta hús. Á sunnudögum var svo farið í hjólatúra um sveit- ina eða jafnvel á hestbak en það fannst þér sérstaklega gaman. Síðan liðu árin og við náðum okk- ur í konur eða þær í okkur eins og við sögðum alltaf þar sem við værum svo ómótstæðilegir. Þú fórst að búa í Eyjum og ég hérna fyrir vestan, varla féll úr sumar sem þið komuð í heimsókn og alltaf áttum við heimboð til Eyja en það átti alltaf að gerast næsta sumar, við héldum að við hefðum nægan tíma. Í heimsókn ykkar Helgu í sumar var svo spjallað um heima og geima, gamla og nýja tíma, skeifuverksmiðjan skoðuð og happaskeifan valin. Síðan var það í ágúst sl. að við heimsóttum ykkur í Þjórsárdal- inn í sælureitinn ykkar þar. Eftir að við höfðum drukkið kaffi var tekinn göngutúr um skóginn og við kynnt fyrir nágrönnunum, þú varst eins og kóngur í þessu ríki. Áður en við fórum urðum við að skoða fossinn þinn, við keyrðum upp Þjórsárdalinn þar til að við komum að vel földum fossi, það var stoltur maður sem steig út úr bílnum og lallaði fram á bakkann og sagði „Þetta er sko fossinn minn“. Þessi dagur verður gull- moli í minningunni. Elsku Helga, Símon, Jóhann, Anna og fjölskyldan öll, megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg, minningin um traustan vin lifir. Agnar og Svala, Stykkishólmi. Einn grámyglulegan daginn í síðustu viku helltust yfir okkur öll fréttir af alls kyns óáran í efnahagslífi okkar rétt eins og verið hefur næstum upp á dag hvern undanfarin ár. Segja má að flest okkar séu búin að mynda skráp sem ver okkur frá því að taka þessar og viðlíka fréttir allt of nærri okkur. Þó kemur það fyrir að við tökum sumum tíðindum úr hverdagslíf- inu inn á okkur og verðum döpur. Þetta átti við mig og eiginkonu mína þennan grámyglulega dag þegar við heyrðum af ótímabæru andláti Halldórs Guðbjarnarson- ar. Okkur leið og líður enn eins og við höfum misst eitthvað sem aldrei verður bætt. Við hjónin urðum þó aðeins þeirrar gæfu aðnjótandi um nokkurra ára skeið að umgangast Halldór og hana Helgu hans og þá mest ut- an landsteinanna, nánar tiltekið í Marmaris í Tyrklandi. Þar áttum við hjónin hreint út sagt margar frábærar samverustundir með þeim Halldóri og Helgu. Við hugsum nú til þessara stunda með mikilli eftirsjá og þá ekki síst til þess að fá ekki aftur að verða vitni að því hversu vænt þeim Halldóri og Helgu þótti hvoru um annað. Þá mun ég ekki síður sakna heilbrigðra lífskoðana Halldórs og hvatningarorða hans þegar á bjátaði hjá sjálfum mér vegna veikinda. Annars er vonlaust fyr- ir okkur að minnast Halldórs á viðhlítandi hátt því okkur ein- faldlega skortir orð á þessari stundu en hugur okkar er hjá Helgu og hennar fjölskyldu. Megi góður Guð blessa ykkur og hughreysta nú og um alla fram- tíð. Guðmundur og María. Okkur langar að minnast elsku afa okkar í fáeinum orð- um. Fyrstu minningarnar eru frá Laufbrekkunni þar sem alltaf var svo vinalegt að koma og afi iðulega með eitthvert nammi að utan í skál handa barnabörnun- um. Hann var flottur til fara, bæði þegar hann kom heim eftir flug í einkennisbúningnum og einnig utan vinnu. Hattur og frakki eru nokkuð sem minnir okkur á hann ásamt silkitreflum og vel snyrtu skeggi. Hann var hlýr og ljúfur mað- ur sem hafði gaman af því að fá heimsókn og rifja upp skemmti- legar sögur. Margar þeirra snér- Baldur G. Bjarnasen ✝ Baldur G.Bjarnasen fæddist í Vest- mannaeyjum 27. janúar 1927. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 12. febr- úar. 2012. Útför Baldurs G. Bjarnasen fór fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 20. febr- úar 2012. ust um góð veit- ingahús í hinum og þessum löndum eða sérkennilegan mat sem hann hafði smakkað því mat- aráhuginn var mik- ill. Hann hafði unun af því að elda þó að sumt sem hann eld- aði hafi verið sér- kennilegt fyrir yngri kynslóðir. Áhuginn var það mikill að kött- urinn fékk meira að segja oft þrírétta máltíð. Hann hafði einnig mikinn áhuga á sínu fólki og spurði reglulega um okkar hagi og mundi oft í smáatriðum hvað við vorum að fást við. Einnig hafði hann álit á útliti og hafði á orði ef maður var með fallegan skartgrip eða í fínum fötum. Hann var duglegur að hrósa ef honum líkaði eitthvað. Við erum stoltar af því að hafa átt hann sem afa, og vitum að hann er kominn til ömmu á góðan stað. Guð geymi þig. Þínar Sara og Þórdís Óskarsdætur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.