Morgunblaðið - 12.09.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2012
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Íslendingar eru fyrir neðan meðaltal
þegar kemur að samanburði þeirra
sem lokið hafa framhaldsskóla-
menntun meðal OECD-þjóða. Jafn-
framt taka Íslendingar lengri tíma í
að klára nám sitt en aðrar þjóðir og
staða karla er umtalsvert verri en
kvenna. Þetta kemur fram í skýrslu
OECD, Education at glance.
67% lokið framhaldsskóla
33% Íslendinga eru einungis með
grunnskólamenntun en einungis 8
þjóðir af 34 eru með hærra hlutfall.
Fram kemur að 67% Íslendinga á
aldrinum 25-64 ára hafa lokið fram-
haldsskólamenntun og þar af 72% í
yngsta aldursflokknum 25-34 ára en
það er 10 prósentustigum lægra en
meðaltal OECD.
Jafnframt er aðeins ein þjóð sem
er að meðaltali lengur að klára fram-
haldsskóla- og háskólanám sitt eftir
að það hefst. „Menn hafa velt því
fyrir sér hvort þetta opna skólakerfi
okkar ýti undir þessa þróun. Hér
landi er nokkuð algengt að fólk
hætti og byrji svo aftur í námi,“ seg-
ir Þorgeir Ólafsson, upplýsinga-
fulltrúi hjá menntamálaráðuneytinu.
Bág staða karla
Ef tölurnar eru skoðaðar eftir
kyni kemur í ljós að 68% karlmanna
á aldrinum 25-34 ára hafa lokið
framhaldsskóla en 77% kvenna.
Meðaltal karla í þessum aldursflokki
er 12 stigum lægra en OECD-með-
altalið en 6 stigum lægra hjá konum.
Í skýrslunni segir. „Ef tekið er
mið af þeirri þróun sem hefur orðið á
undanförnum árum og áratugum má
gera ráð fyrir því að konur eigi eftir
að bæta menntunarstöðu sína á
meðan að menntunarstaða karla
stendur í stað eða batnar afar
hægt.“
Þegar staða í háskólanámi er
skoðuð kemur fram að brautskrán-
ingarhlutfall í háskólum á Íslandi er
60% sem er það hæsta meðal aðild-
arríkja OECD, og hefur hækkað úr
20% árið 1995.
Mikill munur er á brautskráning-
arhlutfalli eftir kynjum. Í háskólum
á Íslandi er það 41% fyrir karla og
80% fyrir konur. Um 2/3 hlutar
þeirra sem stunda háskólanám eru
konur.
Í skýrslunni segir jafnframt. „Ís-
lendingar munu því eiga erfitt með
að standast samanburð við þær
þjóðir sem taka stórstígum framför-
um við að bæta menntun þegna
sinna, því aukning í menntun kvenna
á Íslandi mun ekki duga ein og sér
til að bæta menntunarstöðu þjóðar-
innar á meðan menntunarstaða
karla batnar ekki hraðar.“
Íslendingar lengur að
ljúka námi en aðrir
Menntunarstaða batnar hægt vegna slæmrar stöðu karla
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Frá skólasetningu Karlmenn hér á landi standa halloka þegar kemur að menntun í framhalds- og háskóla.
Menntunarstig
» Íslendingum gengur hægt
að bæta menntunarstig í sam-
anburði við aðrar OECD-þjóðir.
» Sérstaklega er staða karla
bágborin og er meðaltal þeirra
sem útskrifast með háskóla-
menntun 12 prósentustigum
undir meðaltali OECD-þjóða.
Það sem af er þessu ári hefur Íbúða-
lánasjóður leyst til sín 544 eignir,
þar af 444 frá einstaklingum sem
nemur rétt um 0,9% af heildarfjölda
veðsettra eigna einstaklinga. Allt ár-
ið í fyrra leysti sjóðurinn til sín 692
eignir og árið 2010 voru þær 872. Ár-
ið 2007 töldu þær 106.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
velferðarráðherra um stöðu ein-
staklinga og fjölskyldna með tilliti til
húsnæðisskulda og annarra skulda.
Um síðustu mánaðamót nam
heildarfjárhæð í vanskilum við
Íbúðalánasjóð hjá einstaklingum
6.212 milljónum króna, rúmlega einn
þriðji þeirrar upphæðar hefur verið í
vanskilum í meira en 12 mánuði.
Heildarfjöldi þeirra sem eru með
meira en þriggja mánaða vanskil við
sjóðinn er 4.128 lántakendur með
lán á 4.033 eignum.
72 þúsund heimili með lán
Fólk á um 75% heimila býr í eigin
húsnæði samkvæmt skýrslunni. Í
lok árs 2011 skulduðu ríflega 72 þús-
und heimili í fasteign. Að sama skapi
áttu tæplega 27 þúsund heimili fast-
eign án þess að á hvíldi fasteignalán.
Fjórðungur heimila býr í leigu-
húsnæði og hefur hlutfallið aldrei
verið jafn hátt. Félagslegar leigu-
íbúðir sveitarfélaga voru 4.707 í árs-
lok 2011, langflestar í Reykjavík eða
2.208 talsins. Félagslegar íbúðir með
láni frá Íbúðalánasjóði eru um 6.300
talsins.
Af þeim 870 eignum Íbúðalána-
sjóðs sem voru í útleigu þann 31.
ágúst 2012 leigir fyrri eigandi í 17%
tilvika. Í 62% tilvika býr sá í íbúðinni
sem áður leigði af gerðarþola og í
21% tilvika er önnur leiga fyrir
hendi, ýmist almenn eða til leigu-
félags, segir í skýrslunni.
Hefur leyst til sín
544 eignir á árinu
Heildarfjárhæð vanskila einstak-
linga við Íbúðalánasjóð er 6 milljarðar
Morgunblaðið/Ómar
Íbúðir Fólk á um 75% heimila býr í
eigin húsnæði samkvæmt skýrslunni.
Olíufélögin hækkuðu verð á bensíni í
upphafi vikunnar. Verðið er nú
259,10 til 261,60 kr. á lítrann sam-
kvæmt vefnum gsmbensin.is sem
heldur utan um bensínverð. Magnús
Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneyt-
is hjá N1, segir hækkunina núna
stafa af hækkandi heimsmarkaðs-
verði. Bensínverð hefur því hækkað
um 15 krónur á lítrann frá því í júlí.
„Hækkunin á þeim tíma er tilkomin
vegna óvissu á fjármálamörkuðum
sem leiðir til hækkandi heimsmark-
aðsverðs,“ segir Magnús.
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, segir að hækkunin nú komi
ekki á óvart og heimsmarkaðsverð
undanfarna tvo mánuði hafi hækkað
töluvert. „Maí og júní voru áberandi
úr takti miðað við meðalálagningu ol-
íufélaganna að teknu tilliti til vísi-
tölu. Álagning var í meðallagi í júlí
en í ágúst og september hefur hún
verið aðeins undir reiknaðri meðal-
álagningu undanfarin misseri,“ segir
Runólfur. Hann segir að ef álagning
það sem af er ári sé skoðuð þá komi í
ljós að hún sé aðeins meiri en á síð-
asta ári, sé nú rúmlega 32,50 kr. að
meðaltali á lítra. 2011 hafi hún verið
31,75 kr. og 2010, 30,75 kr. Runólfur
segir álagningu undanfarin ár sam-
bærilega við það sem hún var fyrir
hrun.
Smærri markaður
„Þar með er ég ekki að segja að
þetta sé einhver eðlileg álagning.
Það er ljóst að álagningin hér er
meiri en við þekkjum í nágranna-
löndum okkar. Hinsvegar er mark-
aðurinn hér smærri og á höfuð-
borgarsvæðinu er töluverð offjár-
festing í útsölustöðum,“ segir Run-
ólfur.
Algengt er að verð olíufélaganna
sé mjög líkt og Runólfur segir að
miðað við lögeyri þá kosti lítrinn
mjög oft nánast það sama hjá olíufé-
lögunum. „Ef við förum 2-3 ár aftur í
tímann þá munaði nær aldrei minna
en tveimur krónum á milli þjónustu-
stöðva og sjálfsafgreiðslustöðva,“
segir Runólfur og tekur fram að
samkeppnin nú felist töluvert í til-
boðum og afsláttum.
heimirs@mbl.is
Bensínið hækkað um
15 krónur síðan í júlí
Óvissa á fjár-
málamörkuðum ýt-
ir undir hækkun
Útsöluverð frá áramótum
sjálfsafgreiðsla, 95 okt. bensín (í kr.)
Heimild: FÍB
Janúar
2012
Febrúar
2012
Mars
2012
Apríl
2012
Maí
2012
Júní
2012
Júlí
2012
Ágúst
2012
240,16
249,65
261,04 266,87 256,84
247,30 244,41 249,93
300
250
200
150
Sept.
2012
259,10
-261,60
Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins
var í tvígang kall-
að út um miðjan
dag í gær. Í fyrra
skiptið var það
vegna elds í sinu á
auðu svæði á milli
Kjarrhólma og
Smiðjuvegar í Kópavogi. Starfs-
menn á nálægu verkstæði brugðust
við með snarræði og höfðu slökkt
eldinn að mestu þegar slökkviliðið
bar að garði. Samkvæmt upplýs-
ingum frá slökkviliðinu er líklegt
að um íkveikju hafi verið að ræða.
Skömmu síðar var slökkviliðið
kallað út vegna elds í fólksbíl sem
var á ferð um Krókháls í Reykjavík
um fjögurleytið. Ökumaður tók eft-
ir að reykur liðaðist undan vél-
arhlífinni, ók til hliðar og nam stað-
ar við nærliggjandi bifreiðaverk-
stæði. Þar fékk hann aðstoð og
þegar slökkviliðið kom á staðinn
var nánast búið að slökkva eldinn.
Engan sakaði, en bíllinn er nokkuð
skemmdur.
Eldar í sinu í Kópavogi og bíl í Reykjavík
Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
•
Haustferð fyrir eldri
borgara til Kanarí
30. október í 23 nætur
frá kr. 157.700
Heimsferðir bjóða einstakt tilboð í ferð fyrir
eldri borgara í haust til Kanaríeyja. Við bjóðum
fjölbreytt úrval gististaða. Haustið er svo
sannarlega frábær tími á þessum einstaka
áfangastað. Mikil dagskrá í boði í fylgd reyndra
fararstjóra.
Kr. 157.700
Netverð á mann, m.v. 2 í íbúð á Jardin del Atlantico í
23 nætur. Aukagjald fyrir allt innifalið kr. 60.700 kr. á
mann. Sértilboð 30. október