Morgunblaðið - 13.09.2013, Blaðsíða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2013
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, RIFF, hefst eftir tæpar tvær
vikur, 26. september, og liggur nú
fyrir hvaða kvikmyndir verða í að-
alkeppnisflokki hennar, Vitrunum,
en í þeim flokki eru kvikmyndir sem
ýmist eru fyrsta eða önnur kvikmynd
leikstjóra í fullri lengd. Í Vitrunum
verða sýndar tólf kvikmyndir eftir
jafnmarga leikstjóra og keppa þeir
um aðalverðlaun hátíðarinnar, Upp-
götvun ársins, og hlýtur höfundur
verðlaunamyndarinnar verðlauna-
gripinn Gullna lundann. Um mynd-
irnar í Vitrunum segir í tilkynningu
frá RIFF að þær ögri viðteknum
gildum í kvikmyndagerð og vísi veg
kvikmyndalistarinnar til framtíðar.
Dómnefnd aðalverðlaunanna skipa
Luciana Castellina, Loic Magneron
og Vigdís Finnbogadóttir. Castellina
er ítalskur blaðamaður, rithöfundur
og pólitískur aðgerðasinni, hefur lát-
ið til sín taka varðandi menning-
arlega fjölbreytni og er fyrrverandi
formaður í menningarmálanefnd
Evrópuþingsins. Magneron stofnaði
WIDE umboðsskrifstofuna í París
árið 1997 sem er leiðandi óháð fyr-
irtæki í sölu á kvikmyndum. Vigdísi
þarf vart að kynna, velgjörð-
arsendiherra Sameinuðu þjóðanna í
tungumálum og fyrrverandi forseta
lýðveldisins.
Myndirnar tólf í Vitrunum eru eft-
irfarandi:
Betlehem/ Bethlehem
Ísraelsk kvikmynd eftir leikstjór-
ann Youval Adler. Myndin segir af
óvenjulegu sambandi milli ísraelska
leyniþjónustumannsins Razi og pal-
estínsks heimildarmanns hans, San-
fur, yngri bróður hærra setts palest-
ínsks hermanns. Sanfur reynir að
feta þrönga stigu milli skipana Razi
og tryggðar sinnar við bróðurinn.
Hann lifir tvöföldu lífi og lýgur að
báðum.
Frjálst fall / Freier Fall
Þýsk kvikmynd eftir leikstjórann
Stephan Lacant. Í henni segir af
Marc sem starfar í óeirðalögreglunni
og á von á barni með unnustu sinni.
Hann kynnist lögreglumanninum
Kay og finnur þá fyrir tilfinningum
gagnvart karlmanni í fyrsta sinn. Við
það umturnast líf hans.
Gullbúrið / La jaula de oro
Kvikmynd framleidd í Mexíkó,
Spáni og Frakklandi eftir leikstjór-
ann Diego Quemada-Diaz. Myndin
hlaut Un Certain Regard-verðlaunin
á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor.
Í henni segir af þremur unglingum
sem búa í fátækrahverfi í Gvatemala.
Þeir freista þess að komast til
Bandaríkjanna en til þess þurfa þeir
að komast óséðir yfir landamæri
Bandaríkjanna og Mexíkó.
Hjálpræðisherinn /
L’armée du salut
Frönsk-marokkósk kvikmynd eft-
ir Abdellah Taïa sem segir af 15 ára
samkynhneigðum pilti, Abdellah,
sem býr í Casablanca og stundar
kynlíf með fullorðnum karlmönnum.
Tíu árum síðar flytur hann til Sviss
með ástmanni sínum Jean og slítur
þar sambandinu.
Hvítur skuggi / White Shadow
Ítölsk-þýsk kvikmynd eftir Noaz
Deshe. Albínóar í Tansaníu, Kongó
og Kenía eru orðnir að verslunarvöru
því galdralæknar bjóða þúsundir
dollara fyrir líkamshluta þeirra, trúa
því að þeir búi yfir altækum læking-
armætti. Í myndinni segir af albín-
óadreng sem leggur á flótta eftir að
hafa séð föður sinn myrtan.
Landfræðingurinn sem drakk
burtu hnöttinn sinn/
Geograf globus propil
Rússnesk verðlaunamynd eftir Al-
exander Veledinsky sem fjallar um
líffræðinginn Victor Sluzhkin sem
þarf að kenna landafræði í efri bekkj-
um grunnskóla vegna peningavand-
ræða. Vandamálin eru þónokkur í lífi
hans: hann á enga peninga, rífst við
konuna sína, á í útistöðum við nem-
endur og aðstoðarskólastjórann í
nýja starfinu, auk þess að eiga erfitt
með að losna við þá tilfinningu að
hann sé einmana.
Les apaches
Frönsk mynd eftir Thierry de Pe-
retti. Sögusviðið er syðsti oddi Kor-
síku að sumri. Fimm unglingar halda
eitt kvöld inn í mannlaust glæsihýsi,
eyða þar nóttunni og stela þaðan
ýmsu smálegu og tveimur verðlauna-
rifflum. Þetta uppátæki hefur afleið-
ingar.
Kaldavatn / Coldwater
Bandarísk kvikmynd eftir Vincent
Grashaw. Í henni segir af táningspilti
sem sendur er á unglingaheimili í
óbyggðum. Þar þarf hann að berjast
fyrir lífi sínu.
Nestisboxið / The Lunchbox
Indversk kvikmynd eftir Ritesh
Batra. Röng afhending í hinu fræga
og skilvirka kerfi nestisboxa-
sendinga í Mumbai, Indlandi, tengir
óvænt saman unga vanrækta hús-
móður og eldri mann. Þau skapa
fantasíuheim með því að skiptast á
orðsendingum í nestisboxunum.
Slysaskot / Hitac
Króatísk mynd eftir Robert Orhel.
Slysaskot tvinnar saman örlög
tveggja ungra kvenna, rannsókn-
arlögreglukonunnar Anítu og Petru
sem þarf að sinna áfengissjúkri móð-
ur sinni.
Spaghettísaga / Spaghetti Story
Ítölsk mynd eftir Ciro De Caro
sem segir af fjórum ítölskum ung-
mennum sem þrá að breyta lífi sínu
og kynnast kínverskri vændiskonu.
Þau kynni opna augu þeirra fyrir
sannleikanum.
Ungfrú ofbeldi / Miss Violence
Þýsk kvikmynd eftir Alexandros
Avranas. Í hinni segir af 11 ára gam-
alli stúlku, Angeliki, sem stekkur
fram af svölunum heima hjá sér á af-
mælisdaginn sinn og lætur lífið. Lög-
regla og félagsþjónusta reyna að
komast til botns í málinu, telja að
barnið hafi svipt sig lífi en fjölskylda
Angeliki telur að um slys hafi verið
að ræða. helgisnaer@mbl.is
Tólf keppa um lundann
Slysaskot Líf tveggja ungra kvenna fléttast saman í hinni króatísku Hitac.
Kvikmyndir tólf leikstjóra sýndar í Vitrunum á RIFF
Vigdís Finnbogadóttir situr í dómnefnd aðalverðlauna
NÝJAR SÝNINGAR
KOMNAR Í SÖLU!
EINLEIKIN GAMANSEMI Í HÖRPU
„Sprenghlægileg sýning
fyrir allan aldur!“
- Sirrý, Rás 2
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fös 13/9 kl. 19:00 5.k Fim 26/9 kl. 19:00 13.k Sun 6/10 kl. 13:00 aukas
Lau 14/9 kl. 19:00 6.k Fös 27/9 kl. 19:00 14.k Fim 10/10 kl. 19:00 19.k
Sun 15/9 kl. 15:00 7.k Lau 28/9 kl. 19:00 15.k Mið 16/10 kl. 19:00 20.k
Fim 19/9 kl. 19:00 8.k Sun 29/9 kl. 13:00 aukas Mið 23/10 kl. 19:00 21.k
Fös 20/9 kl. 19:00 9.k Fim 3/10 kl. 19:00 16.k Fim 24/10 kl. 19:00 22.k
Lau 21/9 kl. 19:00 10.k Fös 4/10 kl. 19:00 17.k Fös 25/10 kl. 19:00 23.k
Sun 22/9 kl. 13:00 11.k Lau 5/10 kl. 19:00 18.k
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Leiksýning á nýjum skala.
Rautt (Litla sviðið)
Lau 14/9 kl. 20:00 aukas Sun 22/9 kl. 20:00 7.k Mið 2/10 kl. 20:00 14.k
Sun 15/9 kl. 20:00 4.k Fim 26/9 kl. 20:00 8.k Fim 3/10 kl. 20:00 15.k
Fim 19/9 kl. 20:00 aukas Fös 27/9 kl. 20:00 9.k Fös 4/10 kl. 20:00 13.k
Fös 20/9 kl. 20:00 5.k Lau 28/9 kl. 20:00 10.k Lau 5/10 kl. 20:00 16.k
Lau 21/9 kl. 20:00 6.k Sun 29/9 kl. 20:00 11.k
Meistaraverk sem hreyfir við, spyr og afhjúpar. Snarpur sýningatími.
Jeppi á Fjalli (Nýja sviðið)
Fös 4/10 kl. 20:00 frums Sun 20/10 kl. 20:00 12.k Fös 8/11 kl. 20:00 21.k
Lau 5/10 kl. 20:00 2.k Mið 23/10 kl. 20:00 13.k Lau 9/11 kl. 20:00 22.k
Sun 6/10 kl. 20:00 3.k Fim 24/10 kl. 20:00 14.k Sun 10/11 kl. 20:00 24.k
Fim 10/10 kl. 20:00 4.k Fös 25/10 kl. 20:00 15.k Mið 13/11 kl. 20:00 25.k
Fös 11/10 kl. 20:00 5.k Lau 26/10 kl. 20:00 16.k Fim 14/11 kl. 20:00 26.k
Lau 12/10 kl. 20:00 6.k Sun 27/10 kl. 20:00 17.k Fös 15/11 kl. 20:00 27.k
Sun 13/10 kl. 20:00 7.k Fös 1/11 kl. 20:00 18.k Þri 19/11 kl. 20:00 aukas
Mið 16/10 kl. 20:00 8.k Lau 2/11 kl. 20:00 19.k Mið 20/11 kl. 20:00 28.k
Fim 17/10 kl. 20:00 9.k Sun 3/11 kl. 20:00 20.k Fim 21/11 kl. 20:00 29.k
Fös 18/10 kl. 20:00 10.k Mið 6/11 kl. 20:00 aukas Fös 22/11 kl. 20:00 30.k
Lau 19/10 kl. 20:00 11.k Fim 7/11 kl. 20:00 23.k Mið 27/11 kl. 20:00 aukas
Benni Erlings, Bragi Valdimar og Megas seiða epískan tón - sjónleik
Mary Poppins „Stórfengleg upplifun“ – EB, Fbl
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Sun 22/9 kl. 19:30 36.sýn Fös 4/10 kl. 19:30 38.sýn Fös 25/10 kl. 19:30 42.sýn
Fim 26/9 kl. 19:30 aukas. Fös 11/10 kl. 19:30 39.sýn Mið 30/10 kl. 19:30 Aukas.
Sun 29/9 kl. 19:30 37.sýn Mið 16/10 kl. 19:30 Aukas. Fim 31/10 kl. 19:30 44.sýn
Fim 3/10 kl. 19:30 aukas. Fim 17/10 kl. 19:30 41.sýn
Leikrit ársins 2013 - fullkomið leikhús!
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 15/9 kl. 13:00 Aukas. Sun 15/9 kl. 16:00 Lokas.
Aðeins þessar tvær sýningar!
Maður að mínu skapi (Stóra sviðið)
Lau 14/9 kl. 19:30 Frums. Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 7.sýn
Fim 19/9 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/9 kl. 19:30 5.sýn
Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 6.sýn
Nýtt íslenskt leikrit eftir Braga Ólafsson!
Harmsaga (Kassinn)
Fös 20/9 kl. 19:30 Frums. Mið 25/9 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn
Lau 21/9 kl. 19:30 2.sýn Fim 26/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn
Ofsafengin ástarsaga sótt beint í íslenskan samtíma!
Skrímslið litla systir mín (Þjóðleikhúskjallarinn)
Lau 14/9 kl. 12:00 Frums. Lau 21/9 kl. 14:00 5.sýn Lau 28/9 kl. 14:00 8.sýn
Lau 14/9 kl. 14:00 2.sýn Sun 22/9 kl. 12:00 6.sýn Sun 29/9 kl. 12:00 9.sýn
Lau 21/9 kl. 12:00 4.sýn Lau 28/9 kl. 12:00 7.sýn
Barnasýning ársins 2012
Aladdín (Brúðuloftið)
Lau 5/10 kl. 14:00 Frums. Lau 12/10 kl. 15:30 3.sýn Lau 19/10 kl. 15:30 5.sýn
Lau 12/10 kl. 13:30 2.sýn Lau 19/10 kl. 13:30 4.sýn
Brúðusýning fyrir áhorfendur á öllum aldri
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 5/10 kl. 13:30 Lau 12/10 kl. 13:30
Lau 5/10 kl. 15:00 Lau 12/10 kl. 15:00
Karíus og Baktus mæta aftur í október!
Hættuför í Huliðsdal (Kúlan)
Lau 14/9 kl. 13:00 2.sýn Lau 21/9 kl. 13:00 6.sýn Lau 28/9 kl. 13:00 10.sýn
Lau 14/9 kl. 16:00 3.sýn Lau 21/9 kl. 16:00 7.sýn Lau 28/9 kl. 16:00 11.sýn
Sun 15/9 kl. 13:00 4.sýn Sun 22/9 kl. 13:00 8.sýn
Sun 15/9 kl. 16:00 5.sýn Sun 22/9 kl. 16:00 9.sýn
Spennandi sýning fyrir hugrakka krakka!
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/