Fréttablaðið - 01.09.2014, Blaðsíða 21
Ég hef gaman af vinnunni minni, verkefnin eru fjölbreytt og mörg og enn hef ég ekki fengið leið-
inlegt verkefni, í þessi 14 ár,“ segir
Jakobína Kristjánsdóttir kjólaklæð-
skeri en hún flutti saumaverkstæði
sitt, Tvinnakeflið, að Melabraut 29 í
Hafnarfirði.
Jakobína hefur stóran hóp tryggra
viðskiptavina, sem koma allt frá Suð-
urnesjum til Reykjavíkur.
„Aðallega er ég að stytta, síkka,
þrengja og víkka fatnað eins og buxur,
jakka, pils, kjóla og yfirhafnir og skipta
um rennilása í alls konar fatnaði. Í
mörg ár hefur einnig verið mikið um að
fólk komi með nýprjónaðar lopapeysur
sem ég set rennilása í. Öðru hvoru
koma svo inn öðru vísi verkefni sem
geta verið skemmtileg áskorun.“
En borgar sig alltaf að láta gera við
flík?
„Mér finnst gott að láta fólk vita
hvað viðgerðin muni kosta svo það
geti ákveðið hvað það vill gera. Sér-
staklega ef það er
með flík sem hefur
ekki kostað mikið
upphaflega. Annars
þykir fólki oft vænt
um einstaka flíkur og
margir koma aftur og
aftur með sömu uppá-
haldsgallabuxurnar
sínar og láta gera við
hvert nýtt gat sem myndast og þá er
þetta ekki spurning um hvað borgar
sig,“ segir Jakobína.
„Haustið er líflegur tími hjá mér
í Tvinnakeflinu. Fólk er að fara yfir
hvað þarf að láta gera fyrir skólafötin
og vetrarflíkurnar og það er greinilegt
að fólk kann enn að nýta fötin sín, sem
er vel.“
Afgreiðslutími Tvinnakeflisins er frá
klukkan 12-17 virka daga. Lokað er á
mánudögum.
Nánari upplýsingar fást í síma
8474684 og á Facebook-síðu Tvinna-
keflisins.
FATAVIÐGERÐIR OG
FATABREYTINGAR
TVINNAKEFLIÐ KYNNIR Jakobína Kristjánsdóttir kjólaklæðskeri flutti sauma-
verkstæði sitt nýlega eftir 14 ár í vesturbæ Hafnarfjarðar á Hvaleyrarholtið,
að Melabraut 29 í Hafnarfirði. Tvinnakeflið ehf. annast alhliða fataviðgerðir
og fatabreytingar fyrir einstaklinga og fyrirtæki
FLUTT Á HVAL-
EYRARHOLTIÐ
Jakobína Kristjáns-
dóttir kjólaklæðskeri
hefur flutt Tvinnakeflið
að Melabraut 29 í
Hafnarfirði.
HÖNNUNARHJÓL OG HJÁLMAR
Franski hönnuðurinn Philippe Starck kynnti til leiks
fjögur fallega hönnuð rafmagnshjól og annan
viðbótarbúnað á borð við hjálma og hanska,
á Eurobike-viðburðinum í Þýskalandi á dögunum.
Starck á fyrirtæki sem heitir Starckbike.
JAKOBÍNA KRIST-
JÁNSDÓTTIR
FYRIR EFTIR