Fréttablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 72
1. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 52
Mörkin: 0-1 Rúrik Gíslason (9.), 1-1 Konstantin
Vassiljev (55.).
ÍSLAND (4-4-2): Ögmundur Kristinsson - Haukur
Heiðar Hauksson, Hallgrímur Jónasson, Jón Guðni
Fjóluson (Ragnar Sigurðsson 46.), Hörður Björgvin
Magnússon (Ari Freyr Skúlason 46.) - Rúrik
Gíslason, Guðlaugur Victor Pálsson (Ólafur Ingi
Skúlason 46.), Emil Hallfreðsson (Rúnar Már S.
Sigurjónsson 60.), Jón Daði Böðvarsson ( Jóhann
Berg Guðmundsson 46.) - Alfreð Finnbogason,
Viðar Örn Kjartansson.
Skot (á mark): 10-10 (5-4) Horn: 3-5
Varin skot: Aksalu 3 - Ögmundur 4.
1-1
Tallin, Eistl.
Áhorf: Um 5.000
A. Treimanis,
Lettlandi.
HANDBOLTI Stjarnan féll úr Olísdeild
karla í fyrrakvöld eftir eins marks
tap fyrir Val, sem um leið tryggði sér
deildarmeistaratitilinn. Leikurinn var
dæmigerður fyrir Stjörnumenn sem
hafa spilað margar jafnar viðureignir
í vetur en tapað fleiri slíkum en
unnið.
Fimmtán af 26 deildarleikjum
Stjörnunnar hafa ráðist á tveggja
marka mun eða minna. Af þeim 30
stigum sem voru í boði fyrir Stjörnu-
menn í þeim fengu Garðbæingar
þrettán en alls tapaði liðið fimm
sinnum með eins marks mun.
Skúli Gunnsteinsson, þjálfari
Stjörnunnar, vildi engu svara um
framtíð sína eftir tapið fyrir Val en
Gunnar Örn Erlingsson, formaður
handknattleiksdeildar Stjörnunnar,
segir að Skúli sé samningsbundinn í
eitt ár til viðbótar.
„Maður vonar bara að leikmenn
sjái einhverja von í því að halda
áfram og koma svo aftur í efstu deild
að ári, sterkari en áður– sérstaklega
uppaldir Stjörnumenn. En þetta er
allt saman nýtt fyrir okkur og það er
ekki byrjað að ræða við leikmenn,“
segir Gunnar en Stjarnan mætir
Fram í lokaumferð deildarinnar á
fimmtudag.
„Það verða breytingar, svo mikið
er víst, en ég vona að flestir verði
áfram. Við ætlum þó ekki að halda
einhverjum nauðugum hjá félaginu
sem ekki vill vera áfram.“ - esá
Trúi því að menn haldi tryggð við félagið
SVEKKTIR Stjörnumenn féllu á mánu-
dagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SPORT
HANDBOLTI „Ég er að klára samn-
inginn minn hér og ég veit ekkert
hvað tekur svo við. Það er þó alveg
ljóst að ég er hættur hjá Molde,“
segir Einar Jónsson en framtíð
hans er í óvissu eftir að hann sagði
upp samningi sínum hjá Molde.
Einar gerði sér lítið fyrir og
kom Molde upp um tvær deild-
ar á tveimur árum og liðið er því
komið í úrvalsdeildina. Einar kaus
aftur á móti að segja upp samningi
sínum við félagið og hefur ekki
gengið að fá nýjan samning. Tíma
hans hjá félaginu er því lokið.
„Það hefur í raun ekkert gerst.
Það hafa verið smá þreifingar en
ekkert sem ég get sætt mig við.
Þær forsendur sem ég gaf mér til
að vera áfram eru ekki til staðar.
Því hef ég tekið ákvörðun um að
finna mér eitthvað annað að gera.“
Það er ýmislegt í óvissu hjá
félaginu hvað varðar framhaldið
og það hefur ekki hjálpað til.
„Þeir hafa lýst yfir vilja til að
halda mér en þegar kemur að
því að ræða samningamál verð-
ur lítið úr þeim viðræðum. Það
virðist hvorki vera nægur vilji né
fjárhagsleg geta til þess að taka
næsta skref. Ég tel mig ekki með
óraunhæfar launakröfur. Það er
ný stjórn að taka við og hún er að
taka sér fulllangan tíma til þess að
setja sig inn í hlutina.“
Þjálfarinn er með samning við
Molde út maí en hvað tekur við þá
er óráðið.
„Það eru einhverjar fyrirspurn-
ir og þreifingar en ekkert alvar-
legt. Það er áhugi hjá mér að vera
áfram úti en ég þarf ekkert að
vera í útlöndum bara til að vera
í útlöndum. Það þarf að vera eitt-
hvað áhugavert. Sama með Ísland.
Ef það er áhugavert starf í boði
þar sem hentar mér og fjölskyldu
minni vel þá er það eitthvað sem
ég myndi skoða,“ segir Einar, en
er ekki svekkjandi að ævintýrinu
sé lokið þegar hann er loks kominn
með liðið upp í úrvalsdeild?
„Það átti enginn von á þessu.
Félagið var ekki undirbúið undir
þetta. Þetta er búið að vera gaman
og að hafa náð þessum árangri.
Ég geng stoltur frá borði. Auð-
vitað hefði verið gaman að halda
áfram með verkefnið en að sama
skapi ekki eins gaman ef þetta
væri algert rugl og við ekki með
lið sem ætti möguleika í deildinni.“
- hbg
Búið að vera gaman og geng stoltur frá borði
Einar Jónsson er hættur að þjálfa norska kvennaliðið Molde og óljóst hvað hann gerir í framhaldinu.
HVAÐ NÚ? Einar Jónsson er í atvinnuleit eftir að hafa staðið sig frábærlega með lið
Molde í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Strákarnir okkar í
íslenska fótboltalandsliðinu fylgdu
sannfærandi sigri í Kasakstan
um helgina ekki eftir í vináttu-
leik gegn Eistum í Tallinn í gær-
kvöldi. Lokatölur, 1-1, í leik þar
sem íslensku strákarnir áttu ekki
meira skilið.
Gerðar voru ellefu breyting-
ar á byrjunarliðinu fyrir leikinn,
en Lars og Heimir gefa vanalega
mörgum tækifæri í þessum vin-
áttuleikjum. Sigurs var þó krafist
því íslenska liðið berst nú fyrir því
að vera eins ofarlega á heimslista
FIFa og mögulegt er þegar talið
verður í júní.
Byrjuðu vel
Næsta undankeppni er fyrir HM
í Rússlandi 2018 og verður styrk-
leikaraðað í undankeppni miðað
við stöðuna á heimslistanum eftir
heimaleikinn gegn Tékklandi í
undankeppni EM sem fram fer
í júní. Þessi leikur gegn Eistum
var auðvitað inni í því og dýrmæt
FIFA-stig því farin í súginn.
Íslenska liðið byrjaði vel og
komst yfir á níundu mínútu en
Eistar, sem vanalega treysta á
sterkan varnarleik, voru frískir
fram á við og settu mikla pressu
oft á tíðum á varnarlínu strák-
anna okkar. Munaði mikið um að
Aron Einar Gunnarsson var fjar-
verandi, en Eistar nýttu sér mikið
pláss sem skapaðist á milli miðju
og varnar.
Emil Hallfreðsson batt það
saman eins og hann gat í fyrri
hálfleik, en Hafnfirðingurinn,
sem bar fyrirliðabandið í gær, var
traustur í fyrri hálfleik og átti
vart feilsendingu. Hann missti þó
boltann í jöfnunarmarki Eista sem
þeir skoruðu í byrjun seinni hálf-
leiks.
Ísland náði aldrei að setja neina
alvöru pressu á Eistana í seinni
hálfleik sem olli miklum von-
brigðum. Okkar menn áttu þó að
fá tvær vítaspyrnur en ömurlegur
dómari leiksins og aðstoðarmenn
hans með sprotana dæmdu ekkert.
Ekki bankað fast
Alfreð Finnbogason og Viðar Örn
Kjartansson áttu í vandræðum
gegn sterkri vörn heimamanna og
verður ekki sagt að þeir hafi spilað
sig nálægt byrjunarliðinu í júní.
Þeir fengu þó enga lúxusþjón-
ustu, miðjuspil strákanna okkar
var tætt og losaralegt. Ólafur Ingi
Skúlason og Rúnar Már Sigurjóns-
son spiluðu þar saman síðasta hálf-
tímann og höfðu ekki mikil tök á
leiknum. Eistar sóttu oft og sóttu
hratt en íslenska vörnin bjargaði
því sem bjargað varð.
Frammistaðan sem sést í vin-
áttuleikjum er oft ekki lík þeirri
sem sést í mótsleikjum liðsins og
sú varð raunin í gær. Þeir sem
fengu tækifæri í byrjunarliðinu
bönkuðu ekki fast á dyrnar.
Frammistöðuna má alltaf laga
og auðvitað verður það allt annað
lið sem mætir Tékkum í júní. Við
grátum engu að síður FIFA-stig-
in sem skilin voru eftir í Tallinn
í gærkvöldi. Þau reynast vonandi
ekki of dýr. tomas@365.is
Dýrmæt FIFA-stig skilin eft ir
Íslenska landsliðið í fótbolta gerði 1-1 jafntefl i við Eistland í vináttuleik í Tallinn í gærkvöldi. Frammistaða
íslenska liðsins verðskuldaði ekki mikið meira og urðu stig á heimslistanum eft ir í Tallinn sem er dýrt.
DÓMARI! Alfreð Finnbogason átti klárlega að fá víti í fyrri hálfleik eins og sést á þessu peysutogi. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
KÖRFUBOLTI Lokaumferð Dominos-deildar kvenna í körfubolta fer fram í
kvöld og verða augu allra á viðureign Grindavíkur og Vals í Röstinni þar sem
liðin mætast í hreinum úrslitaleik um fjórða sæti deildarinnar og þar
með síðasta sætið í úrslitakeppninni.
Grindavík er í fjórða sætinu með 32 stig en Valur, sem er með 30
stig, getur stolið fjórða sætinu og sent Grindvíkinga í sumarfrí
með sigri í kvöld. Liðin hafa mæst þrisvar sinnum í vetur og
hefur Valur unnið tvo leiki, þar af eina leik liðanna í Röstinni.
KR og Hamar berjast um að halda sæti sínu í deildinni.
KR er í næstneðsta sæti með ellefu stig en Hamar
sæti ofar með tólf stig. KR sækir Hauka heim og
Hamar fær Keflavík í heimsókn. Fari úrslitin
eftir bókinni og bæði lið tapi fellur KR með
Breiðabliki. Falli lið Breiðabliks tekur það á
móti Íslands- og deildarmeisturum Snæfells í
síðasta leik sínum í úrvalsdeildinni í bili.
Stela Valskonur fj órða sætinu?
HANDBOLTI Halldór Stefán Hall-
dórsson, sem þjálfað hefur
kvennalið Fylkis í Olís-deildinni
undanfarin þrjú tímabil, verður
áfram í Árbænum.
Halldór Stefán framlengdi
samning sinn við handknattleiks-
deild Fylkis í gær um tvö ár og
stýrir því efnilegu Fylkisliðinu
næstu árin.
Undir Stjórn Halldórs hefur
Fylkisliðið bætt sig með ári
hverju, en það lenti í ellefta sæti
á fyrsta árinu með hann í brúnni,
níunda sæti í fyrra og í sjöunda
sæti á núverandi tímabili og
komst með því í úrslitakeppnina.
- tom
Halldór Stefán
áfram í Árbæ
FRAMLENGT Halldór Stefán þjálfar
Fylkisliðið áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason,
framherji íslenska landsliðsins,
var ekki ánægður með frammi-
stöðu strákanna okkar í jafn teflis-
leiknum gegn Eistlandi í gær.
„Við byrjum af krafti og sett-
um pressu á þá. Svo missum við
dampinn og seinni hálfleikur var
frekar slakur þannig þetta voru
vonbrigði verð ég að segja,“ sagði
hann í viðtali við KSÍ eftir leik.
„Þetta var gott tækifæri fyrir
mig og aðra sem vilja vera í byrj-
unarliðinu og nýta allar mínútur.
Þetta voru ekki kjöraðstæður í
dag; völlurinn erfiður eftir langt
ferðalag. En þetta var niðurstað-
an,“ segir Alfreð Finnbogason,
framherji Íslands. - tom
Þetta voru
vonbrigði
TÆKIFÆRI Alfreð spilaði 90 mínútúr
gegn Eistum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
3
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
5
9
-D
0
9
0
1
4
5
9
-C
F
5
4
1
4
5
9
-C
E
1
8
1
4
5
9
-C
C
D
C
2
8
0
X
4
0
0
9
A
F
B
0
8
0
s
C
M
Y
K