Fréttablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 69
MIÐVIKUDAGUR 1. apríl 2015 | LÍFIÐ | 49
ONE DIRECTION
2010-enn starfandi
Þeir Harry Styles, Louis Tomlinson, Niall Horan, Liam Payne og Zayn Malik fóru allir í áheyrnarpruf-ur fyrir X-Factor í byrjun árs 2010. Allir komust þeir
áfram, en í lokaútslættinum ákvað Simon Cowell að setja
þá saman í strákaband. Þeir enduðu í þriðja sæti, en þrátt
fyrir það höfðu aðrar eins vinsældir aldrei sést í X-Fac-
tor. Þeir voru eltir á röndum og má segja að aðdáendur
hafi gert þá heimsfræga í gegnum samfélagsmiðla, áður
en fyrsta platan þeirra, Up All Night, kom út árið 2011. Í
kjölfarið héldu þeir í tónleikaferðalag. Í nóvember 2012
kom Take Me Home út og henni fylgdi annað tónleika-
ferðalag, Where We Are Tour með 134 tónleikum. Sama
ár, 2013, kom út myndin This Is Us og í nóvember 2013
kom þriðja platan út, Midnight Memories. Á henni höfðu
þeir tekið þátt í að semja flest laganna. Í apríl 2014 héldu
þeir í annað tónleikaferðalag um heiminn sem lauk um
haustið. Í nóvember 2014 kom út fjórða platan, FOUR, sem
þeir sömdu að mestu leyti sjálfir. Í febrúar 2015 héldu þeir
í einn eitt tónleikaferðalagið, On the Road Again. 25. mars
2015 kom tilkynning frá þeim um að Zayn Malik hefði
ákveðið að hætta í miðju tónleikaferðalagi. Ástæðurnar
voru óljósar, meðal annars kvíði, álag og mikil pressa
frá umboðsfyrirtæki þeirra, Modest Management. Ekki
var vitað hvað tæki við hjá Malik, en 31. mars gaf hann
út demó af fyrsta sólólaginu sínu með tónlistarmannin-
um Naughty Boy. Ætla hinir fjórir sem eftir eru að halda
áfram, en tónleikaferðalagi þeirra lýkur þann 31. október
2015. Þeir hafa einnig sagt að fimmta platan sé í vinnslu,
enda virðast vinsældir þeirra ekki enn hafa dvínað þrátt
fyrir áföllin.
NSYNC
1995-2002
Bandaríska sveitin NSync var stofn-uð árið 1995 í Flórída og voru meðlimir hennar Justin Timber-
lake, JC Chasez, Chris Kirkpatrick,
Joey Fatone og Lance Bass. Fyrsta plat-
an kom út árið 1998 og naut ekki mik-
illa vinsælda. Það var ekki fyrr en þeir
komu fram á Disney Channel sem hjól-
in fóru að snúast og í janúar 2000 kom
slagarinn Bye, Bye, Bye þeim á kort-
ið. Önnur platan, No Strings Attached,
kom út í mars 2000 og það ár fóru þeir
í tónleikaferðalag um heiminn. Þriðja
platan, Celebrity, kom út árið 2001 en
á henni höfðu Timberlake
og Chasez tekið þátt
í að semja stóran
hluta tónlistarinnar.
Þeirri plötu fylgdu
þeir eftir með tón-
leikaferð, en í apríl
2002 tóku þeir
sér hvíld, sem
varð til þess að
sveitin hætti, en
engin formleg
yfirlýsing kom
þó frá bandinu.
Timberlake
hefur síðan þá
átt farsælan
sólóferil og er
einn vinsælasti
söngvari heims
í dag.
BACKSTREET BOYS
1993-enn starfandi
Sveitin var stofnuð í Orlando í Flórída árið 1993. Þeir A.J. McLean, Howie Dorough, Nick Carter, Kevin Richard son og Brian
Littrell gáfu út sína fyrstu plötu árið 1996,
sem eingöngu var gefin út í Bandaríkjun-
um og þá næstu árið 1997 sem var gefin út
um allan heim. Sú plata var að mestu leyti
unnin með Max Martin, en hann hefur einnig
samið fyrir Britney Spears. Plötunni fylgdu
þeir eftir með tónleikaferðalagi um heiminn,
og nutu gríðarlegra vinsælda í Evrópu og þá
sérstaklega í Þýskalandi. Littrell, einn með-
lima Backstreet Boys, var með hjartasjúk-
dóm, en hann frestaði því að fara í aðgerð
margsinnis vegna tónleikaferðalaga. Þriðja
platan þeirra, Millennium, kom út árið 1999
og fylgdu þeir henni eftir með tónleikaferða-
lagi um allan heim og spiluðu á 115 tónleik-
um í 84 löndum. Tvær aðrar plötur fylgdu í
kjölfarið og árið 2002 óskuðu þeir eftir því
að fá að fara frá umboðsfyrirtæki sínu, The
Firm. Carter kaus hins vegar að fara ekki frá
fyrirtækinu þar sem hann ætlaði að vinna
að sólóferli sínum meðfram hljómsveitinni.
2003 kom McLean fram í þætti Oprah Win-
frey þar sem hann sagði henni frá eiturlyfja-
fíkn sinni. Í júní 2006 tilkynnti hljómsveit-
in að Richardson að væri hættur í bandinu,
en hann væri alltaf velkominn aftur. Eng-
inn þeirra hefur
náð flugi með
sólóferli sínum
og er bandið enn
starfandi í dag.
Í j a nú -
ar 2015
kom svo
út heim-
ildar-
mynd
um þá:
Show
’Em
What
You’re
Made Of.
● Þeir Jonathan Knight og Zayn
Malik hættu báðir vegna
kvíðaröskunar.
● Lance Bass og Stephen
Gately máttu ekki koma út úr
skápnum þegar böndin þeirra
voru vinsæl og sögur eru um
að þetta eigi við um meðlimi
fleiri strákabanda.
● Robbie Williams og Justin Timber-
lake hafa náð mestum vinsældum
af þeim sem hafa hætt.
● Stephen Gately er sá eini
sem er látinn af meðlimum
strákabanda níunda og tíunda
áratugarins.
● Up All Night er nafn á plötu
með One Direction og lagi
með Take That.
● This Is Us hét sjöunda plata
Backstreet Boys og líka
myndin um One Direction.
● 26 ár eru á milli yngsta og
elsta meðlims strákabandanna
sem hér eru talin upp. Harry
Styles er fæddur 01.01.1994
og Howard Donald 28.04.1968.
STAÐREYNDIR
UM STRÁKABÖND
Nánar á oryggi.is Öryggismiðstöðin | Askalind 1 | Kópavogur | Sími 570 2400 – Njarðarnesi 1 | Akureyri | Sími 470 2400
3
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
5
9
-D
0
9
0
1
4
5
9
-C
F
5
4
1
4
5
9
-C
E
1
8
1
4
5
9
-C
C
D
C
2
8
0
X
4
0
0
9
A
F
B
0
8
0
s
C
M
Y
K