Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2005, Page 15
HINAR LÖNGU MIÐALDIR
krýndur. Marc Bloch tókst að sanna að „heilagt konungsvald“ byggði á
átrúnaði sem var samofinn ákveðnu hugarfari: þeirri „almennu“ trú (þ.e.
trú sem var sameiginleg yfirstéttinni og alþýðunni) að kraftaverk ættu sér
stað og þau gætu orðið fyrir atbeina þessarar óvenjulegu tegundar leik-
manna sem konungar voru.
I tengslum við hina konunglegu jartein má nefna eitt af lykilatriðum
krýningarhátíðar Frakklandskonunga: þeir voru smurðir með olíu sem
sögð var ffá himnum. Það er þetta sem greinir Frakkakonung frá öðr-
um einvöldum kristindómsins og það sem gerir hann að hinum „mjög
kristna“ konungi.2 Olían sem notuð er til að smyrja hann við krýning-
una í Reims er ekki bara olía sem hefur verið vígð af háttsettum emb-
ættismanni kirkjunnar við athöftnna, heldur er þessi vökvi í sjálfu sér af-
urð kraftaverks. Konungur Frakklands er sannur Guðs smyrlingur. Þessi
grundvallandi helgisögn hins „heilaga konungsvalds“ fylgir sömu for-
skrift frá 9. öld til þeirrar 18. Hincmar, erkibiskup í Reims, skráir á 9.
öld söguna eins og hún var tekin inn í helgisiði krýningarinnar: Undir
lok 6. aldar kom dúfa (heilagur andi) niður af himnum með flösku sem
heilagur Remigíus notaði til að smyrja Ftlöðvé.3 Kirkjan í Reims varð-
veitir hina helgu flösku og tekur af olíunni' til að vígja Frakkakonunga.
Englandskonungar, sem vilja vera jafhokar Frakkakonunga, leitast við
að breiða út aðra helgisögn á 14. öld. Samkvæmt henni hafði heilög
Guðsmóðir látið Tómasi Becket í té, þegar hann var í útlegð í Frakk-
landi á síðari hluta 12. aldar, flösku með yfirnáttúrulegri olíu sem nota
skyldi til að smyrja fimmta konunginn sem tæki við eftir daga þess sem
þá ríkti á Englandi (Hinriks II), en það var einmitt Játvarður. Loks, þeg-
ar Hinrik IV Frakkakonungur neyddist til að láta krýna sig í Chartres,
vegna þess að Reims var í höndum Lígunnar,4 var sent til klaustursins í
Marmoutier skammt frá Tours eftir olíu sem engill átti að hafa fært hei-
lögum Marteini \dð lok 4. aldar til að lina kvalir hans eftdr byltu sem
Kölski hafði valdið. Áður hafði flaskan helga frá Marmoutier verið send
að dánarbeði Loðvíks XI.
í nýlegri og athyglisverðri bók rannsakar Bemard Chevaher Góðu
2 „Kristur“ þýðir „hinn smurði" á grísku - þýð.
3 Hlöðvér (Clovis) var leiðtogi Franka. Hann tók knstm árið 498 og um leið voru all-
ir menn hans skírðir. Hann er talinn fyrsti konungur Frakka — þýð.
4 Lígan var samtök kaþólskra aðalsmanna í Frakklandi sem börðust gegn mótmæl-
endum á 16. öld -þýð.
13