Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 21

Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 21
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 21 Í stuttu máli d ú k k u l Í s u r n a r h a G n a s t skattar hækka um 22,5 milljarða Inga María Guðmunds­dótt ir, bókasafnsfræðingur á Ísafirði og eini eig ­ andi og starfsmaður Dress up games ehf. sem rekur Dúkku lísuvefinn Dressup ­ games.com, gerir það gott. Fyrir tækið hagnaðist um 48,8 milljónir króna á síðasta ári borið saman við um 88 milljóna króna hagnað árið áður. Eigið fé félagsins nam 192 milljónum í lok síðasta árs. Samkvæmt Við skipta ­ blað inu hefur félagið greitt 163 milljónir króna í arð til eiganda síns á undanförnum árum. Dressupgames.com er vinsæl vefsíða hjá ungum enskumælandi stúlkum sem gerir þeim kleift að finna leiki á vefnum sem ganga út á að klæða dúkkulísur í föt. Vef ­ síðan fær milljónir innlita á hverjum mánuði. Tekjur félagsins eru í formi aug lýsinga og eru tekjur frá Google umfangsmestar. Gert er ráð fyrir 2,7% hagvexti á árinu 2013. Miðað er við að verðbólga á árinu verði 3,9%. Spáð er 5,3% atvinnuleysi árið 2013 og 6% í ár. Frumvarpið gengur út frá því að viðskipta jöfnuður verði neikvæður um 2,1% af vergri landsframleiðslu. reiknað er með að kaupmáttur launa aukist um 1,7% á árinu 2013. Óli Björn Kárason. forsEndur Í fjárlaGafrumvarpi þEtta Er kosninGaplaGG Óli BJÖRn: Óli Björn nefnir fjár laga ­frum varpið „áróð­ursplagg í aðdrag anda kosninga“ og segir að reynsla undanfarinna ára sýni að taka verði töluna 2,8 millj arða mjög varlega því reynsla undan ­ far inna ára sýni að reynt sé að fegra hlutina í frumvarpinu. Hann ber raunverulegan afkomu ríkissjóðs samkvæmt ríkis reikn ­ ingi undanfarin ár saman við fjár laga frumvörpin sem hafi verið kynnt og lögð fram af bjartsýni. FJÁRLaGaÁRIÐ 2010: Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2010 var kynnt haustið 2009 og var gert ráð fyrir 87,4 milljarða halla. Eftir að Alþingi hafði farið hönd ­ um um frumvarpið voru fjárlög sam þykkt með 98,8 milljarða halla. Raunveruleikinn: Halli sam­ kvæmt ríkisreikningi 123,3 millj ­ arðar króna. mismunur frá framlögðu fjár laga ­ frumvarpi: 35,9 milljarðar króna. FJÁRLaGaÁRIÐ 2011 Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2011 var kynnt haustið 2010 og var gert ráð fyrir 37,3 milljörðum króna. Raunveruleikinn: Halli samkvæmt ríkisreikningi 89,4 milljarðar króna. mismunur frá framlögðu fjár­ laga frumvarpi: 52,1 milljarður króna. Munurinn á upphaflegum, fram­ lögðum fjárlaga frumvörpum þessara tveggja ára og útkomunni sam kvæmt ríkis reikningi var 88,0 millj arðar króna í mínus. Óli Björn segir að vanmatið sé enn meira varðandi frumjöfnuð þessi tvö ár, þ.e. mismun tekna og útgjalda að frádregnum fjár ­ magns kostnaði. Á tveimur ár ­ um var frumjöfnuðurinn 101,7 millj örðum króna verri en fjárlög sögðu til um eða nær 11% af raun ­ tekj um ársins. Óli Björn segir ennfremur að vit að sé um tugmilljarða útgjöld á komandi ári en þeirra sé í engu getið í frumvarpinu. „Einnig eru vísbendingar um að tekjur séu oftaldar, hvort heldur af þre földun virðis aukaskatts á ferða þjónustuna eða breytingu á vöru gjöldum. Þá er ónefnt að með frum varpinu ræðst ríkisstjórnin beint á forsendur kjara samninga og með því er verið að hleypa vinnu markaðinum í uppnám. Vandi Íbúðalánasjóðs er óleystur, lífeyris skuldbindingar að aukast, fjár munum sóað, ekkert tekið á vanda tuga stofn ana, skuldir að hækka og skuldbindingar ríkis ­ ins faldar utan efnahags.“ Vilhjálmur Egils ­son, fram­kvæmda stjóri Sam taka atvinnulífsins, segir að auknar skatta ­ álögur, sam kvæmt fjár ­ lagafrumvarpi, sem nemi 22,5 millj örðum dragi veru lega úr svigrúmi fyrir tækja til að fjárfesta. „Ef við ætlum okkur að ná hagvextinum upp þarf fjárfesting að aukast. Umræddar skatta hækkanir auka því hættuna á að hag ­ vöxtur verði áfram lítill og atvinnustigið óvið ­ unandi. Ein forsenda kjarasamninga var að fjárfesting færi í gang,“ segir Vilhjálmur. Halldór Árnason, hag fræðingur Samtaka atvinnu lífsins, segir í sömu frétt blaðsins: „Þetta eru allt viðbótarskattar sem draga úr svigrúmi fyrirtækja til fjárfestinga. Það er alveg ljóst að ef 22,5 milljarðar eru teknir út úr atvinnulífinu á einu ári með nýjum sköttum slagar það hátt í þá fjárhæð sem er áætluð í tekju skatt af fyrirtækjum. Það er gert ráð fyrir 35 milljörðum þar.“ Óli björn Kárason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði athyglisverða grein í Morgunblaðið eftir að oddný Harðardóttir fjármálaráðherra hafði kynnt nýtt fjár ­ lagafrumvarp sem hljóðar upp á að fjárlagahallinn verði 2,8 milljarðar árið 2013.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.