Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 94

Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 94
94 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 Það má segja að starf mitt í dag sé hefð bundið stjórn­un arstarf. Ég sem stofnandi fyrirtækis­ ins og fyrsti starfsmaður ásamt Berglindi hef gengið í öll störf í fyrirtækinu og þekki því vel alla ferla þess. Í mörg horn er að líta þegar starfsemin er orðin svona dreifð og starfsmannafjöldinn kominn yfir hundrað manns. En við erum mjög lánsöm að hafa gott og traust fólk með okkur sem hefur starfað lengi í fyrir tækinu og býr yfir góðri þekk ingu og reynslu. Daglega ristum við kaffi sem fer nýtt og ferskt í verslanir landsins. Viðskiptavinirnir þekkj a okkur og treysta gæðum vör unnar. Um leið og það skiptir miklu máli að velja íslenska fram leiðslu höfum við verið að auka markaðshlutdeild okkar jafnt og þétt. Einnig höfum við styrkt kaffihúsarekstur­ inn og erum að opna þessa dag ana nýtt kaffihús við einn fallegasta garð borgarinnar, Fógetagarðinn við Aðalstræti. Það kaffihús verður frábrugðið öðrum kaffihúsum að því leyti að þar ætlum við að rista kaffi í litlum ofni. Þarna verður skólinn okkar starfræktur og við að flytja skólann úr Hafnarfirði í miðbæ Reykjavíkur auðveldum við að gengi að námskeiðunum fyrir okkar fólk sem fær þar tækifæri til símenntunar og að kynn ­ ast hráefninu enn betur. Fyrir lengra komna í faginu skapast vettvangur til ýmissa tilrauna. Í Aðalstrætinu verðum við svo með kaffi­ og tenámskeið fyrir áhugasama viðskiptavini.“ Sigmundur er giftur Berglindi Guðbrandsdóttur, meðeiganda sínum, og hafa þau verið sam an í rekstrinum frá stofnun fyrirtækisins. „Við eigum tvær dætur og eitt barnabarn. Eldri dóttir okkar, Kristín María, er viðskiptafræðingur og sér um kaffihúsareksturinn ásamt sam býlismanni sínum, Halldóri Guðmundssyni, framkvæmda ­ stjóra kaffihúsanna, sem nú eru níu talsins. Það má segja að Kristín María sé uppalin í fyrirtækinu svo hún hefur ágæta innsýn og þekkingu á rekstrin ­ um. Yngri dóttirin, Sunna Rós, er í Tækniskólanum í klæð­ skeranámi og hefur hún einnig unnið í fyrirtækinu með námi í gegnum tíðina. Vinnan hefur m.a. krafist ferða ­ laga og fjarveru, þannig að áður fyrr áttum við erfitt með að taka okkur lengri frí. Nú erum við fleiri við stjórnvölinn svo það er minna mál að bregða sér frá, fórum til dæmis öll saman í frí í október á síðasta ári til Flórída, leigðum okkur hús í þrjár vikur, og samstarfsfólkið sagðist varla hafa tekið eftir því að við færum. Það má segja að aðaláhuga ­ málið sé og hafi alltaf verið fyrir tækið og reksturinn og það skemmtilega umhverfi sem við störfum í ásamt menn ingunni allri í kringum kaffi og te, hvort sem það er hráefnið sjálft, vinnslan eða allt framhald ið sem tekur við. Til að geta fylgst vel með í svona samsettu fyrir ­ tæki verða allir að hafa brenn ­ andi áhuga, enda var áhuginn á vörunni ástæða þess að við fórum út í þetta á sínum tíma. Fjölskyldan hefur notið þess að eiga sumarbústað í fimm­ tán ár. Hann skemmdist að vísu í flóðum sem urðu 2006 og höfum við verið að endur­ byggja hann sl. ár. Ég hef haft mjög gaman af því að vinna að uppbyggingunni, enda þarf ég alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Ég hef líka gengið töluvert og hef gaman af fluguveiði og þá sérstaklega silungsveiði. Eldamennska er einnig mikið áhugamál en fjölskyldan borðar mikið saman. Þá fæ ég gjarnan að njóta mín og er oft með áhuga sama lærlinga mér við hlið. Svo er það barnabarnið, hún Ronja Halldórsdóttir, sem verður þriggja ára í desember næstkomandi, hún er að sjálf­ sögðu í miklu uppáhaldi.“ Sigmundur Dýrfjörð – framkvæmdastjóri Te & kaffi „Það má segja að aðaláhugamálið sé og hafi alltaf verið fyrirtækið og reksturinn og það skemmtilega umhverfi sem við störfum í ásamt menningunni allri í kringum kaffi og te, hvort sem það er hráefnið sjálft, vinnslan eða allt famhaldið sem tekur við.“ Nafn: Sigmundur Dýrfjörð Fæðingarstaður: Siglufjörður, 13. apríl 1956 Foreldrar: Hólm Dýrfjörð og Sigurrós Sigmundsdóttir Maki: Berglind Guðbrandsdóttir Börn: Kristín María Dýrfjörð og Sunna Rós Dýrfjörð Menntun: Matreiðslumeistari í beinni frá Metrópólitan óperunni í New York 2012 - 2013 tímabilið miðasala og nánari upplýsingar á www.operubio.is fylgstu með á http://facebook.com/operubio TexTi: Hilmar karlsson FóLk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.