Frjáls verslun - 01.07.2012, Blaðsíða 67
FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 67
„Það má segja að
einhver teikn séu
því á lofti um hægan
bata í hagkerfinu
sem vonandi er
kominn til að vera.“
Ferskur fiskur verðmætasta
afurðin
Hver er verðmætasti varningurinn
sem þið flytjið og hvert fer hann?
„Það er frekar afstætt hvað
sé verðmætast. Ég held þó að
eng inn vafi leiki á því að verð
mætasta afurðin sem við flytjum
er ferskur fiskur. Við fljúgum
með allt upp í rúmlega 100 tonn
á dag af ferskum flökum eða
hnakka stykkjum á markaði í
Evrópu og Ameríku. Þarna liggja
gífur leg verðmæti fyrir þjóðar
búið og ein af undirstöðum þess
að við sjáum jákvæða breytingu
á hagvexti sem svo aftur skilar
sér í meiri innflutningi. Við flytjum
auðvitað margt annað; mikið
af hátæknivöru, lyfjum, fersku
græn meti, tískuvöru og svo
auð vitað varahlutum, allt vörur
sem þola lítinn flutningstíma af
ýmsum sökum. Við höfum tekið
þátt í að aðstoða viðskiptavini
okkar í að koma ýmsum varningi
til landsins sem tilheyrir þeim
Hollywoodkvik myndum sem
gerðar hafa verið hér að undan
förnu. Síðan flytjum við mikið af
lifandi humri frá NAmeríku til
Evrópu að ógleymdum íslensk
um hestum sem seldir eru til
erlendra hestaáhugamanna.“
leiguverkefnin eru mikilvæg
Er mikið um leiguverkefni erlend
is og hvaða þýðingu hafa slík
verkefni?
„Við höfum verið með allt að
30% starfseminnar í leiguverk
efnum erlendis, þar sem við
leigjum flugvélar með flugmönn
um frá Icelandair í ýmis verkefni.
Íslensku flugvirkjarnir okkar sjá
þá einnig um flest viðhaldsverk
efni sem tengjast þessum
vélum. Þegar mest var vorum
við með fjórar vélar bundnar í
verkefnum en í kjölfar efnahags
þrenginga í Evrópu ákváðum
við að skera niður í þessum
hluta rekstrarins í byrjun árs og
skiluðum einni vél sem við vorum
með á leigu til eigenda. Við
sjá um stöðuna aðeins þróast
upp á við aftur og vorum nýverið
að ganga frá samningi um nýtt
leiguverkefni þannig að staðan
virðist vera að lagast. Þýðing
þessara verkefna fyrir fyrirtækja
samstæðuna Icelandair Group
er mikil. Þessi verkefni eru t.d.
flest á öfugu róli við sveiflurnar í
rekstri Icelandair, systurfyrirtækis
okkar, sem þýðir að við getum
nýtt flugmenn sem þeir væru
ann ars með verkefnalausa, m.ö.o.
skapa þessi verkefni okkar at vinnu
fyrir fjölda starfsmanna í fyrirtækja
samstæðunni. Auk þess skapa
þau auðvitað tekjur fyrir Icelandair
Cargo og falla vel að rekstri frak
tvéla okkar. Stærri floti af fraktvél
um hjálpar okk ur að halda uppi
áreiðanlegri þjón ustu fyrir okkar
helstu afurð sem er fraktflutningar
til og frá Íslandi.“