Tímarit Máls og menningar - 01.06.1972, Page 58
Tímarit Máls og menningar
um . . . Hún liggur kyrr og horíir
uppí loftið; svefninn virðist munu
sigra hana á ný.
56
Þóra sviptir af sér voðinni og sezt
upp. Strýkur hár frá vöngum sér
og geispar. Hægra fótinn teygir
hún út á gólfið - augun ölvuð af
svefni - eftir inniskó sem hvolfir á
teppinu. Klæðir sig snarlega í hann.
Stanzar við, hugsi, og hvílir hendur
á hnjám sér.
þurfa rjúpurnar að vera steiktar. . . Kyn-
ferðilega fullnægð . . . heiðvirð, ánægð . . .
Dætur mínar . . . Hver uppá sinn máta:
klipptar útúr tízkublaði . . . Og Katrín
frænka . . . Og Þórarinn . . . Með þykkan
skráp utaná sér . . . slitin, beizk . . .
. . . Vænglausir englar og . . . tröllabörn
. . . Ibnur af Ladon-sápu, L’eau de miel,
deodorant . . . og svita . . . 8x4
Rödd liennar œ syfjulegri.
8x4 eru 32 ... 8 x 4 eru 32 . . . þrjátíuog-
tveir . . . þrjátíuogtveir.
rödd þóru: Þung byrði gerir menn stöð-
ugri á fótunum. Sé byrðin of létt svífur
maður upp, tollir ekki við jörðina og svif-
ur upp . . .
. . . Hver sagði þetta?
Tómur í tómu lofti.
Hún hristir af sér slenið, leggur
vinstra fót uppá hægrafótar-hné og
klæðir sig í hinn skóinn. Rís á fæt-
ur rösklega og . . . stanzar . . .
Lítur niður á fætur sér.
57
Fætur hennar í glitskónum á rósa-
teppinu.
58
Hún sezt á sóffann, dregur af sér
skó vinstra fótar, hristir hann,
smeygir oní liann hendi, hristir
enn.
59
Skólaus vinstri fótur hennar á gólf-
4ö