Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Blaðsíða 10
HALLDÓR KILJAN LAXNESS
þann mætismann en Þórð Diðriksson, og minnir mig að þú segðir Loft hafa
verið ömmubróður þinn eða eitthvað þarleiðis. Þú talaðir um að ég skygndist
eftir afkomendum hans. Var það misskilníngur hjá mér að þú hefðir talið að
Loffar þeir Bjarnasynir sem komið hafa til íslands, mentamenn og öðlíngar,
hefður verið hans afkomendur? Hvað sem um það hefur verið, þá kom
fljótlega í ljós við athugun hér, að Loftur Jónsson úr Vestmanneyum átti
aldrei neina afkomendur. Og nú fer að koma að þeim Hrífunessmönnum
(og þó einkum konum) sem Vilmundur vildi fræðast af mér um þeirra afdrif
seinast er ég kom úr Utah, og ég var ekki öruggur um að svara. Loft ur Jónsson
einn mestur atgervismaður mormóna af íslandi var í hópi „mormónanna
sextán“ sem fóru fótgángandi yfir eyðimörkina tólf - fimtán árum áður en
járnbrautin kom. Af merkum mönnum voru víst ekki aðrir komnir á undan
honum en Magnús Björnsson (talinn fyrstur), Samúel og Þórður. (Komuár
Lofts er auðfundið, en ég hef það ekki hjá mér, einhversstaðar á árunum ffá
57-60). Hann varð fljótlega sá lands og sveitarstólpi sem hann hafði verið
heima í Vestmanneyum, og græddist fé. Loffur var kvæntur Guðrúnu Halls-
dóttur, en hún átti af fyrra hjónabandi tvö börn, Jón Jónsson og Guðrúnu
Jónsdóttur, sem voru í fylgd Lofts. Eftir altaðþví 20 ára dvöl í Utah deyr kona
Lofts Guðrún Hallsdóttir, og uppúr því klórinu er Loftur sendur í trúboðs-
erindum til íslands. Hann er nær tveimur árum í þessum erindum heima,
kynnist þar seinni konu sinni Halldóru Árnadóttur, og giftist henni morm-
ónavígslu þar heima og fer með hana vestur. Með honum fór töluverður
hópur, þarámeðal líklega mágkona hans, hálfsystir Halldóru, María. Nú er
frá því að segja að systir Lofts, Guðrún Jónsdóttir, var gift Einari bónda í
Hrífunesi í Meðallandi; það er merkilegt fólk og bjó við ríkidæmi eftir því
sem þá var, höfðíngjar í bændastétt. Um þær mundir sem Loftur var í
trúboðsleiðángrinum heima, hafði systir hans tekið sjúkdóm sem þá var
kallaður ólæknandi, krabbamein í brjósti, og voru læknar geingnir frá. Nú
fær hún þá hugmynd, kanski frá Lofti bróður sínum, að fyrir kraftaverk í
fyrirheitna landinu muni hún kanski fá lækníngu ef hún fari þángað í ferð,
og er svo umtalað að hún komi aftur ef guð vilji láta henni batna. Einar bóndi
hennar vill einskis láta ófreistað til að hún nái heilsu, og sleppir henni burt
með bróður sínum. Þau Hrífunesshjón áttu sex börn sem óvíða áttu sinn
líka fyrir atgervis sakir, og þó reyndar ekki nema fimm, því eitt, Gróa, var
tökubarn, en haft á meðal systkynanna sem eitt þeirra. Sér til styrktar og
uppörvunar fer Guðrún fram á það við bónda sinn að mega hafa með sér
vestur dætur sínar þrjár, Helgu 19 ára, Þorgerði 16 ára og Gróu 14 ára. Eingin
kvenna þessara hafði áhuga fyrir mormónisma, aðeins fyrir kraftaverkum
guðs, og þær litu svo á að þær væru að fara snögga ferð og kæmu bráðum
aftur. Svo unni Einar bóndi konu sinni heitt að hann sendi dætur sínar með
8
TMM 1998:2