Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Page 78

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Page 78
Kistur Ekki er vitað hversu útbreitt það var að jarðsetja fólk í kistum hérlendis eða hvernig notkun þeirra var háttað á kaþólskum tíma. Það hafa ekki farið fram margar athuganir á líkkistum fundnum við fornleifarannsóknir hérlendis, helst ber að nefna athuganir á líkkistum sem grafnar voru upp í Skálholti á árunum 1954-58, sér- verkefni unnið um líkkistur fundnar á Skriðuklaustri og athugun á kistunum sem fundist hafa við Hólskirkju í Bolungarvík. Í flestum þeirra grafa sem rannsakaðar voru í Skálholti á árunum 1954-58, og töldust eldri en frá 1650, voru kisturnar ýmist afturmjókkandi eða jafnbreiðar. Kristján Eldjárn (1988, bls. 138, 140) kaus að kalla þessa kistugerð einfalda stokka og að þrjár útfærslur af þeim væru þekktar. Lokið gæti verið slétt, kúpt eða gert úr þremur fjölum, svokallað ljósberalag. Hérlendis telur Kristján að einfaldir stokkar hafi verið notaðir fram yfir 1700, ljósberalag og kúptar kistur hafi komist í tísku á 18. öld en fyrir þann tíma hafi flatt lok verið í tísku (Kristján Eldjárn et al. 1988, bls. 142; Kristján Eldjárn 2000, bls. 274). Gagnrýna má þessa túlkun Kristjáns, erfitt er að fullyrða um kistunotkun fyrir 1650 í Skálholti vegna lélegrar varðveislu. Flestar kisturnar sem varðveittust eru frá 18. öld og því lýsandi fyrir þann tíma. Efnið frá Hólskirkju er enn yngra eða frá 18. - 20. öld en svipaðar kistur virðast vera þar og í Skálholti (Garðar Guðmundsson et al. 2005, bls. 96-98). Allar kisturnar sem fundist höfðu árið 2006 við fornleifauppgröftinn á Skriðuklaustri og taldar eru vera frá lokum 15. aldar til þeirrar 18., eru voru einfaldir stokkar og var meirihluti þeirra með ljósberalagi (Dagný Arnardóttir 2006, bls. 17). Þetta afsannar kenningu Kristjáns um að ljósberalag hafi komist í tísku á 18. öld, og það komið í notkun þegar á 15. - 16. öld. Ungbarnakistur í Skálholti voru yfirleitt eins og fullorðinskistur þegar kom að gerð og smíði að mati Kristjáns Eldjárns (1988, bls. 137, 140) nema að þær voru allar afturmjókkandi. Á Skriðuklaustri var þessu öfugt farið. Þar voru allar barnakisturnar, sem fundist höfðu árið 2006, jafnbreiðar til endanna. Þær virðast heldur ekki hafa verið frábrugðnar fullorðinskistum á neinn hátt. Dagný Arnardóttir (2006, bls. 14) telur að þetta megi túlka sem svo að afturmjókkandi kistur virðist tilheyra látlausari greftrunarsiðum meðan að jafnbreiðar kistur megi hugsanlega líta á sem stöðutákn, bæði andlegt og veraldlegt. Ekki er vafi á því að frekari rannsóknir þurfa að fara fram á kistum hérlendis og virðist sem fornleifafræðin geti aðeins veitt upplýsingar um þær eins og staðan er í dag. Umfjöllun Ljóst er að skoða þarf félagslegt sjónarhorn þess samfélags sem verið er að rannsaka samhliða líffræðilegum greiningum áður en barnsbeinagrind er sett í ákveðinn aldursflokk. Barns- beinagrind er þess vegna ekki endilega sönnun á nærveru barna, né heldur hægt að tala um að einstaklingar undir 16 ára __________ 78 Þegar á unga aldri lifi ég enn aldri séu alltaf börn. Í raun felur þessi nálgun í sér endurskoðun á ríkjandi hugmyndum um aldur. Nauðsynlegt er t.d. að skoða nánar hvaða félagslegu þættir geti mögulega stjórnað lífshlaupi barnanna, hvort börnin sjálf geti stjórnað ákveðnum þrepum innan þess og um leið hvaða aldursskeiði þau tilheyra hverju sinni. Aldursdreifing Til þess að auðvelda úrvinnslu gagnanna var gröfunum sem valdar voru til rannsóknarinnar skipt í sex flokka sem sýndir eru í töflu 2 en dreifingin innan þeirra í töflu 3. Þetta er ákveðin þversögn við innihald greinarinnar þar sem aldursflokkar og lífaldursgreiningar voru gagnrýndar. Tilgangurinn hér er þó annar. Markmiðið er ekki að greina lífaldur og byggja alla túlkun á honum, heldur er hér gerð tilraun til þess að greina ákveðin þrep og þróun innan lífshlaups barnanna og sjá mun á greftrunarsiðum meðal þeirra. Með þessari flokkun verður hugsanlega mögulegt að greina hvort að yngri börn hafi fengið öðruvísi greftrun en þau eldri eða hvort enginn munur sé á greftrun eftir aldri. Dreifing barnsbeinagrindanna innan þessara sex flokka er misjöfn og hafa fundaraðstæður án efa mikið um hana að segja. Mikill meirihluti barns- beinagrindanna í úrtakinu eru af börnum á fyrsta aldursári (Barn 1) en jafnara hlutfall er á milli annarra flokka. Þetta má eflaust tengja við minni lífslíkur barna á fyrsta ári. Staðsetning barnsgrafanna Vert er að skoða nánar staðsetningu barnsgrafanna innan kirkjugarðanna og tengja umfjöllunina við lífshlaups- hugmyndir og gerendakenninguna. Dreifing legstæða þeirra var nokkuð jöfn en þó með undantekningum. Börnin eru flest umhverfis kirkjurnar, þó mun fleiri sunnan megin við þær en við aðrar hliðar. Nokkur barnanna virðast hafa verið grafin í allnokkri fjarlægð frá kirkjunum en í þeim tilfellum finnst meirihluti þeirra norðanmegin við þær. Suðvesturhluti kirkjugarðanna virðist innihalda mest af ungbarnagröfum (Barn 1) en fjöl- breytileiki í aldri eykst er kemur að norðurhlutanum. Hvort að greftrun barna hafi fylgt þeirri kynskiptingu er erfitt að staðfesta, án betri aðferða við kyngreiningar barna. Engu að síður er áhugavert að skoða þetta í tengslum við kristna heimsmynd þessa tíma og áðurnefndar hugmyndir Gilchrist um lífshlaupið. Þetta gefur hugsanlega til kynna að yngstu börnin hafi hlotið leg við inngang kirkjunnar, sem alltaf var í vestri, eða jörðuð nálægt kórnum til þess að komast sem næst himni. Með fermingunni var verið að staðfesta skírnina og hugsanlegt er að einmitt fermd börn hafi verið grafin í kirkjugarðinum sjálfum, fjær kirkjunni. Þetta má einnig tengja við lífslíkur barna og hversu mikið þær aukast eftir fyrsta árið. Það gæti hafa markað ákveðið þrep í lífshlaupinu ef börn lifðu af fyrsta árið og eftir það hafi þau verið jarðsett í meiri fjarlægð frá kirkjunni. __________ 79 Ragnheiður Gló Gylfadóttir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171

x

Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands.
https://timarit.is/publication/1111

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.