Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 6

Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 6
6 bókasafnið 35. árg. 2011 Frá upphafi var litið svo á að þjónusta ritvers væri af því tagi sem lýst er í þriðja lið, almenn þjónusta við alla, bæði stúdenta og kennara. Þess vegna var það staðsett á bókasafn- inu til þess að notendur litu á ritverið sem eðlilegan hluta af þeirri fjölþættu starfsemi sem þar fer fram. Starfsemi ritvers, að aðstoða fólk við að skrifa, koma þekkingu sinni á fram- færi á skipulegan hátt og samkvæmt viðurkenndum kröfum fræðasamfélagsins, er í beinu framhaldi af þeirri starfsemi bókasafna að greiða leið notenda að heimildum og þekkingu. Í annan stað var tekin sú stefna að ritverið væri í sem nán- ustum tengslum við sem flest fræðasvið, kennara og náms- greinar innan Menntavísindasviðs. Þótt undirritaður, forstöðu- maður ritversins, sé íslenskukennari að upplagi er formaður stjórnar, Hafþór Guðjónsson, lífefnafræðingur og menntunar- fræðingur og aðrir stjórnarmenn úr ýmsum áttum. Sú tilviljun að fyrsta ritver á Íslandi skuli stofnað á Menntavísindasviði er í rauninni afar heppileg því sviðið er mjög þverfaglegt í eðli sínu og stúdentar almennt áhugasamari um fræðslu- og leið- sagnarhlutverk en gengur og gerist. Ritverið tengist því ekki íslensku eða íslenskukennslu sérstaklega, heldur almennt því hlutverki, sem segja má að sé meginþema sviðsins, að leið- segja og fræða. Því ætti að það að hafa alla möguleika á að ná til stúdenta og kennara í öllum greinum. Starfsemi ritvers fyrsta árið Í undirbúningi að stofnun ritvers var áhersla lögð á að koma upp heimasíðu sem yrði andlit ritvers og auglýsing, miðill til samskipta og sá brunnur fróðleiks og þekkingar sem ritverið á að vera. Í samvinnu við Helgu Birgisdóttur, doktorsnema í íslensku, var vefur ritversins settur upp af vefþjónustu Há- skólans. Fyrir stofndaginn, 30. nóvember 2009, tókst að setja töluvert efni á síðurnar, en kannski aðallega safn af krækjum á slóðir erlendra ritvera og fróðleiksbrunna hér heima og erlendis. Frá upphafi var gert ráð fyrir að starfsemin yrði þrenns konar og skal nú gerð grein fyrir henni. Námskeið og fræðslufundir Í fyrsta lagi var gert ráð fyrir námskeiðum og fræðslufundum um einstaka þætti fræðilegra skrifa sem haldin yrðu reglulega yfir veturinn. Samkvæmt niðurstöðum Ask (2007) og rann- sókna sem hún vísar til nýtast námskeið höfundi illa nema þau hitti höfund fyrir á réttum stað í ritunarferlinu. Tekin var sú stefna að leggja áherslu á stutta fundi, eina eða tvær kennslustundir um afmörkuð efni, sem yrðu endurteknir eftir þörfum og áhuga yfir misserið. Þessir níu fundir voru boðnir á vormisseri 2010: 1. Meðferð heimilda í EndNoteWeb. 2. Gegnir: Uppbygging efnis og leitarmöguleikar. 3. Tímaritaskrá A-Ö: Leitarmöguleikar og gagnagrunnar. 4. Ritvinnsla stórra verkefna í Orði (Word). 5. Meðferð heimilda skv. APA-staðli. 6. Skipulag lokaverkefnis: Rannsóknarspurning og rann sóknaráætlun. 7. Mál og málnotkun í fræðilegum ritsmíðum. 8. Uppsetning og frágangur meistararitgerða. 9. Uppsetning og frágangur bakkalárritgerða. Sumir fundirnir voru haldnir einu sinni, aðrir oftar, og reynt var að tímasetja þá með tilliti til þess að þeir hittu á réttan stað í ritunarferlinu fyrir þá stúdenta sem áttu að skila ritgerð sinni um vorið. Fundirnir voru skipulagðir í náinni samvinnu við Margréti Guðmundsdóttur, sem sér um notendafræðslu á vegum bókasafnsins. Um vorið kom fram ósk frá stúdentum um stuðning við lokaverkefni um sumarið og sá ritverið þá um að skipuleggja samfellt námskeið um flesta þætti fræðilegra skrifa. Nám- skeiðið var haldið í júní og sá Ingibjörg Frímannsdóttir um að leiðbeina bakkalárnemum, en Veturliði Óskarsson kenndi meistaranemum. Í tengslum við þessa sumarfræðslu stóð bókasafnið fyrir kynningu á rafrænum gagnasöfnum og Mar- grét Guðmundsdóttir hélt fræðslufundi fyrir báða hópana um meðferð heimilda í EndNoteWeb. Fundirnir á vormisseri voru prýðilega sóttir, yfirleitt um 15 til 30 manns á hverjum fundi, og sama má segja um sumarnámskeiðin. Bakkalárhópurinn þynntist eftir því sem á leið en meistarahópurinn hélt vel út. Námskeið nr. 4, Ritvinnsla stórra verkefna í Orði, var tekið upp í fjórum 30 til 45 mínútna þáttum sem settir voru á vef ritversins og getur hver og einn sótt sér þessa þætti eftir hentugleikum. Þar með er ekki talin þörf á að halda það nám- skeið sérstaklega aftur. Ekki er vitað hversu margir hafa tekið Word-námskeiðið á vefnum en ráða má af samtölum við fólk að námskeiðið hafi náð til allmargra og gert töluvert gagn. Stefnt er að því að gera fleiri þáttum skil í stuttum vefnám- skeiðum sem stúdentar geta sótt sér á vef eftir þörfum. Slíkt ætti að koma til móts við fjarnema. Fræðslufundir voru ekki haldnir á haustmisseri vegna annarra verkefna, sjá síðar, en efni frá fundum vorsins er aðgengilegt á vef ritvers. Viðtalsfundir Í öðru lagi var gert ráð fyrir að stúdentar gætu pantað einstak- lingsviðtal um verkefni sín. Viðtalsþjónusta um skrifleg verk- efni af öllu tagi í náminu er eitt meginhlutverk ritvera víða um heim. Hér tókum við þá ákvörðun, þar sem undirritaður var eini starfsmaðurinn á vormisseri 2010, að veita viðtals- þjónustu einungis við lokaverkefni. Stúdentar geta pantað tíma á vef ritversins og fá klukkustund í senn. Þessi þjónusta var kynnt stúdentum sem hafa skráð sig í lokaverkefni og þeir leituðu töluvert til ritvers, sérstaklega stúdentar á meistara- stigi eins og búist var við. Viðtölin fara fram við skrifborð forstöðumanns, fyrir opnum tjöldum, ef svo má segja. Fyrir framan skrifborðið er eitt af mörgum vinnusvæðum stúdenta á bókasafninu með nokkrum borðum og nemendur að störfum, en lágvær kliður í lofti af samræðum. Ef lagt er við hlustir má heyra hvað rætt er við næstu borð. Við óttuðumst í byrjun að stúdentar mundu verða feimnir við að ræða ritsmíðar sínar svo aðrir heyrðu en sá ótti hefur reynst ástæðulaus, að svo miklu leyti sem við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.