Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 31

Bókasafnið - 01.06.2011, Blaðsíða 31
31 Kolbrún Björk Sveinsdóttir og Svanhildur Eiríksdóttir Í norrænu bókasafnavikunni 2009 kynnti starfsfólk Bókasafns Reykjanesbæjar nýjan þjónustuþátt fyrir börn og foreldra, sögupoka. Markmið sögupokanna er að efla tengsl foreldra og barna og að gera söguna meira lifandi og skemmtilegri með hlutum henni tengdri. Í hverjum sögupoka er bók og dót sem lesandinn notar til að þroska skynjun barnanna og örva ímyndunarafl. Kynntust verkefninu hjá leikskóla Sögupokunum kynntumst við í leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ en þar eru pokarnir notaðir bæði til skemmt- unar og í markvissu lestrarnámi. Verkefninu kynntist starfsfólk skólans í námsferð til Edinborgar árið 2006 og fór að huga að því fljótlega eftir heimkomuna. „Okkur fannst þetta stórkost- legt, sögur í poka,“ sagði Margrét Kolbeinsdóttir leikskóla- kennari og deildarstjóri í Tjarnarseli í samtali við greinarhöf- unda.1 Viðbrögðin hjá börnunum eru ekki síður stórkostleg, þau verða spennt og setjast prúð og stillt líkt og þau séu að fara að upplifa leiksýningu eða horfa á bíómynd. Draumurinn er að lána pokana heim til barnanna um síðir. Það sem er ekki síst heillandi við sögupokana er einfald- leikinn í kringum þá. Leikskólinn á gamla saumavél og við hlið skólans er vefnaðarvöruverslun sem hefur gefið honum efnisafganga í pokana. Af bókum er nóg í hillum og þegar búið er að ákveða hvaða saga á að fara í viðkomandi poka er farið um allan skólann og fundnir hlutir sem tengjast sögunni. Ef ekkert finnst er það búið til. Leikskólinn á nú 20 sögur sem notaðar er á öllum deildum, meðal annars í markvissri lestrar- þjálfun en leikskólinn hefur unnið með hana allt frá árinu 2003 og fengið foreldraverðlaun Heimilis og skóla fyrir. Af öðrum lestrarverkefnum má nefna orðaspjall innan þróunar- verkefnisins „Bók í hönd og þér halda engin bönd“2 og bækur eru notaðar eins og hvert annað leiktæki í skólanum, að sögn Ingu Maríu Ingvarsdóttur leikskólastjóra. Sögupokar á fjölskyldudögum Aðstæður á almenningsbókasafni eru öðruvísi en í leikskóla svo lítið hefði gagnast að ganga um safnið og tína saman hluti í sögupoka. Eitthvað nýttist þó af því sem til var en greinar- höfundar brugðu á það ráð að gefa gömlu dóti nýtt líf með því að fara í verslun Rauða krossins í Reykjanesbæ, Kompuna og Góða hirðinn í Reykjavík. Sami hlutur er gjarnan notaður í fleiri en einn poka og ef ekkert finnst er reynt að búa það til. Árangurinn er 10 sögupokar, misstórir eftir sögu og líkt og í Tjarnarseli eru pokarnir heimasaumaðir. Þær sögur sem Bóka- safn Reykjanesbæjar á í sögupokum eru: Rauðhetta og úlfur- inn, Lata stelpan, Pétur og úlfurinn, Lína langsokkur, Vinaleitin, Allir saman nú, Stjarnan hennar Láru, Örkin hans Nóa og Þrír litlir grísir. Að auki á bókasafnið gamla lúna ferðatösku með bók Bjarkar Bjarkadóttir, Allra fyrsti atlasinn minn, og munum og kortum sem tengjast ferðalögum. Ferðataskan er tekin fram á sumrin. Tveir sögupokar eru hengdir á þar til gerða snaga í hnokka- deild Bókasafnsins á föstudögum, en þá er mesta umferð fjöl- skyldufólks á safninu. Pokarnir eru einungis ætlaðir til notk- unar á safninu, þar sem sýnt þykir að erfitt verður að halda utan um innheimtu hluta sem kunna að lenda með öðru dóti á heimilinu. Oft og tíðum þekkja börnin sögurnar það vel að bókin getur staðið á borði til hliðar og úr verður lítið leikrit, Sögupokar til að efla tengsl og örva ímyndunarafl 1. Samtalið fór fram í leikskólanum Tjarnarseli 19. nóvember 2010. Auk Margrétar ræddi Inga María Ingvarsdóttir við greinarhöfunda. 2. Sjá upplýsingar um verkefnið á vef leikskólans, http://tjarnarsel.is/Leikskolinn/Bok_i_hond. Sótt 19. nóvember 2010.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.