Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2010, Page 16
Mesta áfall sem Pólland hefur upplif-
að síðan í síðari heimsstyrjöldinni reið
yfir að morgni laugardags þegar Lech
Kaczynski, forseti landsins, og fjöldi
annarra háttsettra einstaklinga fórust
í flugslysi við Smolensk í Rússlandi.
Orsakir slyssins eru raktar til mistaka
flugstjóra vélarinnar, en hann hafði að
engu tilmæli um að reyna ekki lend-
ingu í Smolensk vegna mikillar þoku.
Eiginkona Lechs Kaczynski,
María, og níutíu og fimm aðrir fórust
í slysinu, en tilgangur ferðarinnar var
minningarathöfn vegna fjöldamorða
Sovétmanna, sem kennd eru við Kat-
yn-skóg, á um 22.000 pólskum föng-
um árið 1940. Fljótlega í kjölfar slyss-
ins var sagt að Jaroslaw, tvíburabróðir
Lechs, hefði einnig farist með vélinni
en þau tíðindi voru ekki á rökum reist.
Í stað þess að hætta við lendingu,
eins og flugstjóranum var ráðlagt,
reyndi hann að lenda og mistókst í
það minnsta einu sinni áður en hann
flaug á trjátoppa, með þeim afleið-
ingum að vélin steyptist niður í skóg-
lendi.
Á viðkvæmum tímamótum
Flugslysið hefði ekki getað átt sér stað
á viðkvæmari tímamótum í samskipt-
um Rússlands og Póllands. Í fyrri viku
var Vladimír Pútín, forsætisráðherra
Rússlands, viðstaddur athöfn sem
haldin var til að minnast Katyn-fjölda-
morðanna ásamt Donald Tusk, for-
sætisráðherra Póllands, og var litið á
nærveru Pútíns sem athöfn sátta af
hálfu ráðamanna í Kreml.
Hvað sem nærveru Pútíns leið voru
Pólverjar ekki á eitt sáttir við að hann
talaði um fjöldamorðin sem „glæp,“
og síðar sagði hann að um hefði ver-
ið að ræða refsingu vegna þess að um
30.000 sovéskir fangar dóu í fanga-
búðum Pólverja árið 1920.
Til að bæta gráu ofan á svart vakti
furðu á meðal ættingja fórnarlamba
Katyn-fjöldamorðanna að Rússar
skyldu neita að láta af hendi skjöl um
fjöldamorðin, sem fyrirfinnast í skjala-
safni frá tíma Sovétríkjanna.
„Vona að ég fái
vegabréfsáritun“
Lech Kaczynski átti það til að ögra
ráðamönnum í Kreml og engin
trygging var fyrir því að hann fengi
hlýlega móttökur í Smolensk. Hann
var þó staðráðinn í að vera við-
staddur athöfnina, ekki til að „ögra
samskiptum við Rússland“, eins og
hann orðaði það, heldur til að sýna
400 ættingjum fórnarlamba Kat-
yn-fjöldamorðanna, sem vænst var
að yrðu við athöfnina, stuðning.
„Ég vona að ég fái vegabréfsáritun,“
hafði hann sagt í gríni.
Haft er eftir pólskum eftirlits-
16 MÁNUDAGUR 12. apríl 2010 FRÉTTIR
Þjóðarsorg ríkir í Póllandi vegna flugslyssins í Smolensk í Rússlandi á laugardagsmorg-
un. Í flugslysinu fórust forsetahjón Póllands, Lech Kaczynski og María, og fjöldi hátt
settra forystumanna pólsku þjóðarinnar. Forsetinn og föruneyti hans voru á leið til
Smolensk vegna minningarathafnar um Katyn-fjöldamorðin. Slysið er rakið til mistaka
flugstjóra vélarinnar.
ÞJÓÐARHARMUR Í PÓLLANDI
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Þetta er án efa hörmulegasta
atvik í Póllandi eftir-
stríðsáranna.
Lech Kaczynski, forseti Póllands, var umdeild-
ur leiðtogi. Hann var ávallt óhræddur við að
spila á almennigsálitið og sem borgarstjóri í
Varsjá bannaði hann í tvígang skrúðgöngur
samkynhneigðra og mælti með því að dauða-
refsingar yrðu teknar upp að nýju.
Kaczynski var kjörinn forseti Póllands árið
2005 og á meðan á kosningabaráttunni stóð
sagði hann að Pólverjar þyrftu forseta sem
berðist fyrir hagsmunum þeirra. Hann sagði
að Pólland, úr viðjum kommúnisma, oft kallað
„Þriðja lýðveldið“, þyrfti róttækar breytingar til
að verða „Fjórða lýðveldið“ og byggja á félags-
legu réttlæti og styrk.
Flokkur Kaczynskis, Lög og réttur, leggur
áherslu á hefðbundin gildi rómversk-kaþólsku
kirkjunnar og var stofnaður af Lech Kaczynski
og tvíburabróður hans, Jaroslaw, árið 2001.
Bræðurnir höfðu þó fyrir leikið stórt hlut-
verk í að móta ímynd Póllands þegar tími
kommúnismans í landinu var liðinn. Í forseta-
kosningunum árið 1990 voru þeir lykilmenn í
að tryggja Lech Walesa, leiðtoga Einingar, sigur.
Slær í brýnu
Um 1990 kastaðist í kekki á milli Kaczynski-
bræðranna og Walesa og náði ósætti þeirra
hámarki árið 2009 þegar Walesa kærði Lech
Kascynski fyrir að fullyrða að hann hefði í
reynd njósnað fyrir leynilögreglu kommún-
istastjórnarinnar á áttunda áratug síðustu
aldar.
Eftir kosningarnar árið 2005 héldu tví-
burabræðurnir um stjórnartauma, Lech
sem forseti og, frá 2006, Jaroslaw sem for-
sætisráðherra, en árið 2007 þurfti Lech að
fara í samstarf með Donald Tusk forsætis-
ráðherra sem hafði tapað fyrir Lech tveimur
árum fyrr.
Samkvæmt stjórnarskrá Póllands hefur
forsetinn minna vald en forsætisráðherrann,
en er engu að síður áhrifamikill með tilliti til
utanríkisstefnu landsins.
Ekki var talið útilokað að Lech Kaczynski
myndi lúta í lægra haldi fyrir Bronislaw
Komorowski í október, en Komorowski hefur
nú tekið við embætti forseta Póllands.
Lech Kaczynski (1949-2010)
Lech Kaczynski var sannarlega
málsvari þjóðar sinnar,
hann elskaði land sitt
og var óumdeilanlega
Evrópubúi.
n Katyn-fjöldamorðin eru kennd við
skipulegar aftökur Sovétmanna á um
22.000 Pólverjum árið 1940. Þrátt fyrir að
fjöldamorðin séu kennd við Katyn-skóginn
voru þær framkvæmdar víðar, til dæmis í
höfuðstöðvun leynilögreglu Sovétríkjanna,
NKVD, í Smolensk, í sláturhúsi í Smolensk og í
fangelsum í Kalinin, Kharkov, Moskvu og fleiri
borgum Sovétríkjanna.
Flestir hinna myrtu voru tengdir stjórnmál-
um, hernum eða menningargeiranum.
Þjóðverjar fundu fjöldagrafirnar í Katyn-
skógi árið 1943 en Sovétríkin neituðu ábyrgð
á fjöldamorðunum allt til ársins 1990 þegar
þáverandi leiðtogi Sovétríkjanna, Mikhail
Gorbatsjoff, viðurkenndi ábyrgð Sovétmanna.
Katyn-fjöldamorðin
Lech og María Kaczynski
Lech Kaczynski varð forseti
Póllands árið 2005.
Af slysstað Flugstjóri
vélarinnar hundsaði tilmæli.
Katyn-fjöldamorðin Um 22.000
pólskir fangar voru myrtir.