Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2010, Síða 26
26 | Fólkið 20. desember 2010 Mánudagur
Bók Helga Jean Claessen um Jón Hilmar Hall-
grímsson, Jón stóra, selst vel og eru þeir félagar
sáttir við viðtökurnar, segir Helgi. „Það gengur
alveg þokkalega,“ segir hann. „Viðbrögðin við
bókinni hafa almennt verið mjög góð. Hún fer
kannski ekkert vel í alla eins og er bara eðlilegt
með svona umdeildar bækur, eða umdeilda
menn.“ segir hann. Félagarnir ráðgera að árita
bókina á næstu dögum. „Ég held að hann áriti
hana svona einu sinni fyrir jólin,“ segir Helgi.
Aðspurður hvort hann hafi verið stressaður
yfir mögulegum viðtökum bókarinnar þegar
að hann var að skrifa hana svarar Helgi: „Jújú,
alveg þannig. Maður er að fást þarna við dá-
lítið tabú en ég gætti mín bara við meðhöndl-
unina á efninu þannig ég væri ekki að hefja
eitthvað upp eða þannig. Að umfjöllunin yrði
í jafnvægi.“ Hann segir samstarfið hafa gengið
vel og það hafi komið sér á óvart hvað Jón var
opinskár. „Það kom mér eiginlega bara á óvart
hvað hann var tilbúinn að opna sig um heim-
inn sem hann lifir í. Hvað hann var opinskár
um neysluna og hvaða áhrif hún hefur haft á
hann.“
Bókin um Jón stóra, Jóns saga stóra, er tví-
skip og skiptist hún í skáldsögu byggða á ævi
Jóns og svo viðtal við Jón þar sem hann opnar
sig um skuggahliðar lífs síns og hvernig það er
að lifa á gráu svæði samfélagsins.
adalsteinn@dv.is
Bókin um Jón stóra fær góðar viðtökur:
Áritar bókina fyrir jól
Höfundurinn Helgi Jean var örlítið stressaður
yfir því hvernig viðtökur bókin fengi.
Fjölmiðladrottningin Þorbjörg
Agnes Marinósdóttir, betur þekkt sem
Tobba Marinós, ætlar ekki að eyða
jólunum með kærastanum sínum,
Karli Sigurðssyni tónlistarmanni í
hljómsveitinni Baggalúti og borgar-
fulltrúa Besta flokksins. Tobba segir í
samtali við bleikt.is að hún ætli að eyða
jólunum heima hjá foreldrum sínum líkt
og hún er vön. „Þetta eru fyrstu jólin
okkar Kalla saman og við ákváðum
að vera í sitthvoru lagi en saman á
gamlárskvöld.“
Ekki saman
á jólunum
Veikur
Eiríkur
Þ
að hefur alltaf verið
draumur að eiga sjáv-
arlóð,“ segir Linda Pét-
ursdóttir alheimsfegurð-
ardrottning sem fékk langþráðan
draum uppfylltan núna í desem-
ber þegar að hún flutti í einbýlis-
hús sem stendur úti við sjó á Álfta-
nesinu. Linda á og rekur Baðhúsið,
heilsurækt fyrir konur, og hefur í
nógu að snúast núna í kringum jól-
in.
Þegar DV náði tali af henni var
hún þó í rólegheitum á nýja heim-
ilinu að skreyta fyrir jólin ásamt
Ísabellu dóttur sinni.
Í sjöunda himni
„Þrátt fyrir miklar annir er ég í sjö-
unda himni. Sólarhringurinn hef-
ur eiginlega verið of stuttur, það er
mikil aðsókn í Baðhúsið og karl-
arnir hafa verið að kaupa eðalgjöf
og dekurdaga fyrir konurnar.“ Hún
segir að brjálað sé að gera hjá sér
í vinnunni og að allt sé að fyllast í
Baðhúsinu. „Þetta er jólagjöfin fyr-
ir konuna í ár og er að slá í gegn.“
Linda hefur rekið Baðhúsið frá ár-
inu 1994 og hefur það fest sig í sessi
sem heilsurækt fyrir konur.
Engar skuldaáhyggjur
Linda flutti úr Garðabænum og yfir
á Álftanesið en hún segir að það
sé yndislegt að vera út á Álftanesi
með útsýni yfir hafið. „Hér er rólegt
og gott að ala upp börn. Þá skemm-
ir ekki fyrir að útsýnið er himn-
eskt,“ segir Linda sem býr í húsinu
ásamt dóttur sinni. „Ég hef engar
áhyggjur af skuldum bæjarins, við
hljótum að komast út úr þessu með
sameiginlegu átaki,“ segir hún að-
spurð um hvort hún hafi áhyggjur
af slæmri skuldastöðu Álftaness
sem hefur þurft að leita á náðir rík-
isins.
Eiríkur Jónsson, stjörnublaðamaður
og fyrrverandi ritstjóri Séð og heyrt, lá
heima með flensu í vikunni og rifjaði
upp heilbrigðari tíma. „Ligg í flensu
eins og fífl og rifja upp heilbrigðari
stundir eins og ég lýsti í Bakþönkum
Fréttablaðsins fyrir nokkrum árum,“
sagði hann á bloggsíðu sinni fyrir helgi.
Í umræddum Bakþönkum lýsir hann
upplifun sinni af líkamsræktarherbergi
í einni af sundlaugarbyggingum
borgarinnar sem hann segir „eiginlega
sérhannað fyrir einfara“.
n Linda Pétursdóttir flytur á Álftanes n Setur upp
jólaskraut með dóttur sinni n „Hér er rólegt og gott
að ala upp börn“ n Er á kafi í vinnunni fyrir jólin
Alsæl með út-
sýni yfir sjóinn
Hamingjusöm Draumur Lindu um
að búa við sjóinn hefur loksins ræst.