Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2008, Blaðsíða 50
Sagan öll DV
Ottómana-Tyrkir rændu ekki aðeins ungum
fögrum stúlkum í kvennabúr soldánsins. Þeir
stunduðu líka kerfisbundin rán á ungum pilt-
um sem skikkaðir voru í úrvalssveitir soldáns-
ins og voru þeir lengi meðal þeirra hermanna
heims sem menn óttuðust mest. Þeir voru hinir
svonefndu janissarar.
Orðið „janissari“ þýðir einfaldlega „nýr her-
maður“. Sveitir þeirra voru stofnaðar um miðja
14. öld og urðu fastaher Tyrkjasoldáns og líf-
varðasveitir. Þeir áttu mestan þátt í sigurgöngu
Ottómanaveldisins næstu öldina og rúmlega
það. Á þeim tíma höfðu engin ríki fastan her,
heldur var kallað út lið eftir þörfum, en slíkar
hersveitir voru oft illa undirbúnar, óþjálfaðar í
hermennsku og tryggð þeirra gat verið hvikul.
Þær áttu því oft litla möguleika gegn þrautþjálf-
uðum sveitum janissara.
Valdastétt á bak við tjöldin
Drengjum á Balkanskaga og víðar, á aldr-
inum 8-12 ára, var rænt og þeir þjálfaðir í her-
mennsku og látnir taka múslimatrú. Þeir þóttu
bæði trúir og ofsafengnir hermenn og þeg-
ar fram liðu stundir urðu margir þeirra innstu
koppar í búri stjórnkerfisins í Tyrkjaveldi eftir
að herþjónustu þeirra lauk. Að vera janissari
var eins konar ígildi þess að vera musterisridd-
ari á Vesturlöndum, eða frímúrari, og þeir urðu
mikil valdastétt – ekki síst undir niðri, því þeir
studdu hver annan fram í rauðan dauðann.
Með tímanum urðu janissarar óvinsælir,
enda þóttu þeir orðnir spilltir og makráðir. Þeir
spyrntu gegn öllum breytingum og áttu sinn
þátt í því að á 19. öld var Tyrkjaveldi orðið trén-
að og máttlaust. Árið 1826 hugðist soldáninn
Mahmúd II leysa sveitir þeirra upp og koma sér
upp nýjum her. Þá gerðu þeir uppreisn en hún
var kveðin niður. Janissarar voru þá úr sögunni
en lengi á eftir gengu sögur um að á bak við
tjöldin væru samtök þeirra enn með fingurinn
á púlsinum í Tyrkjaveldi.
Janissari í fullum skrúða Ólíkt
öðrum múslimum var þeim bannað
að ganga með alskegg.
Úrvalssveitir soldánsins
sagan öllMyndlistarvörur í 30 ár!
Vandaðar myndlistarvörur
fyrir listamenn og skólafólk.
Verið velkomin í
Fr
u
m