Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2012, Page 21
Sport 21Mánudagur 3. desember 2012
Arsenal að missa af lestinni
n Enn þyngist pressan á Arsene Wenger eftir tap á heimavelli
E
itthvað alvarlegt er á seyði
hjá Arsenal. Um helgina tap-
aði liðið illa fyrir Swansea
City á heimavelli og hefur
liðið nú einungis haft sigur þríveg-
is á Emirates-velli af sjö skiptum alls
þessa leiktíðina.
Enginn með vit í kolli átti raun-
verulega von á stórum hlutum frá
Arsenal þessa leiktíðina en ekki áttu
heldur margir von á hreinu miðju-
moði eins og raunin hefur verið.
Arsene Wenger hefur um árabil tek-
ist að keppa við alla þá stóru og átt í
fullu tré við þá þó áföll dynji reglu-
lega yfir liðið og stórstjörnur þess
yfirgefi herbúðirnar með reglulegu
millibili.
Á þessu hefur orðið breyting.
Að frátöldum Spánverjanum Santi
Cazorla hefur enginn leikmaður
liðsins spriklað framar vonum hing-
að til. Markverðir og vörn í lama-
sessi leik eftir leik og dýrir framherj-
ar liðsins ekki skilað neinu í takt við
laun sín. Í öllu falli hafa þeir alls ekki
fyllt skarð Robins van Persie.
Mikið er talað um nauðsyn þess
að Liverpool geri einhver stór-
liðskaup í leikmannaglugganum í
janúar en ekki er minni þörf á slíku
hjá Arsenal. Vel yfir þriðjungur er
liðinn af leiktíðinni og þrátt fyr-
ir stöku andartak þar sem leikmenn
liðsins fara á kostum eru þau fleiri
þar sem liðið er úti á þekju. Og með
afar góða leikmenn í hverri stöðu má
ljóst vera að sá hópur er ekki að gera
eins og Wenger vonaðist eftir. n
Þrír á palli
n Ronaldo, Iniesta og Messi tilnefndir í keppninni um Gullknött FIFA
Þ
ann sjöunda janúar næst-
komandi verður opinberað
hvaða knattspyrnumaður
þykir hafa skarað fram úr
árið 2012 en þá veitir Alþjóða
knattspyrnusambandið Gullknött
sinn. Þrír koma til greina samkvæmt
útnefningu; Cristiano Ronaldo, Lion-
el Messi og Andres Iniesta.
Ekki þarf að eyða miklum tíma til
að komast að því að helstu veðbankar
heims telja Lionel Messi líklegastan
þessara þriggja þó einn og einn telji
líkur Portúgalans bestar. Iniesta, þó
frábær sé, á litla sem enga möguleika
samkvæmt sömu bönkum.
Þó er vænlegast að útiloka ekkert
þó reyndar fátt við valið undanfarin ár
beri merki um annað en hjarðhegðun
en það eru blaðamenn annars vegar
og þjálfarar og fyrirliðar landsliða
heims hins vegar sem kjósa um hver
hreppir hnossið ár hvert. Leo Messi
hefur hlotið nafnbótina síðustu þrjú
árin og þar áður hampaði Cristiano
Ronaldo titlinum.
Iniesta hins vegar er sá eini
þeirra þriggja sem hampaði
Evrópumeistara titli þetta árið
og sá eini þeirra sem hlotið hef-
ur heimsmeistaratitil í knattspyrnu.
Fyrir utan auðvitað að mata félaga
sína, þar á meðal Messi, með félags-
liði sínu sýknt og heilagt á frábærum
tækifærum.
En kannski segir það allt sem segja
þarf að félagi Iniesta hjá Barcelona
og landsliði Spánar og sá sem talinn
hefur verið um áraraðir eini ómis-
sandi leikmaður beggja liða, Xavi,
hefur aldrei hlotið þessa nafnbót.
Sem, ólíkt því sem margir telja, snýst
ekki um að skora sem flest mörk þó
það hjálpi auðvitað. n
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar albert@dv.is
aNDrES iNiESTa
Barcelona
Árslaun: 1,3 milljarðar króna.
Styrktaraðilar: Nike, Kalise, GolTV, BBVA auk smærri
fyrirtækja.
Eignir: Andres á tvö spænsk fyrirtæki. Annars vegar
vínframleiðsluna Bodegas Iniesta og verktakafyrirtækið
Iniesta Construcciones.
Heimili: Hann á stóra villu í Sant Feliu de Llobregat í
Barcelona auk villu í fæðingarbæ sínum Albacete.
Aðdáendur: 11 milljónir aðdáenda á Facebook og fimm
milljónir aðdáenda á Twitter.
Bílafloti: Audi Q7 og BWM X5.
CriSTiaNO rONalDO
Real Madrid
Árslaun: 1,64 milljarðar króna
Styrktaraðilar: Nike, Armani, Castrol, Konami, Banco Espi-
ritu Santo, Clear, Time Force, Toyota auk minni fyrirtækja.
Eignir: Á diskótek á Algarve undir nafninu Seven og fata-
hönnun og verslanir undir nafninu CR7.
Heimili: Hann býr í 900 fermetra villu í úthverfi Madrid,
Pozuela de Alarcón.
Aðdáendur: 51,4 milljónir aðdáenda á Facebook og 11,2
milljónir á Twitter
Bílafloti: Lamborghini Aventador, Ferrari 955 GTB, Bentley
Continental, Audi R8, Audi A8, Audi Q7, Audi RS6, Aston Martin
DB9, McLaren MP4, Bugati Veyron auk ómerkilegra bifreiða.
liONEl MESSi
Barcelona
Árslaun: 1,71 milljarður króna.
Styrktaraðilar: Adidas, Pepsi, Herbalife, EA Sports, Chery,
Audemars Piget, Dolce y Gabbana, Lays auk smærri aðila.
Eignir: Á í samvinnu við föður sinn fjárfestinga- og
leigufyrirtækið Limecu. Fjölskylda hans á allan rétt á
öllu er ber nafn hans.
Aðdáendur: 39,4 milljónir á Facebook.
Heimili: Stór villa í Pedralbes-hverfi í Barcelona auk
eigna heima í Argentínu.
Bílafloti: Dodge Charger STR, Audi R8, Audi Q7, Maser-
ati Stradale, Porsche Panamera, Ferrari Spider.
Mikel Arteta Enginn skortur á hæfileikum
hjá Arsenal en illa gengur að hala inn stigin.
Einn eða tveir
lánsmenn
Stjóri Liverpool, Brendan Rodg-
ers, hugsar aldeilis stórt. Hann
hefur lýst yfir vilja til að bæta við
leikmannahóp liðs síns í janúar
eftir að hafa viðurkennt mikil mis-
tök þegar hann lánaði Roy Carroll
snemma leiktíðar. Stórkaupin eru
þó engin kaup heldur ætlar Rodg-
ers að fá „einn eða tvo leikmenn
að láni.“ Ekki veitir af. Liðið slefaði
þrjú stig gegn botnliði Southamp-
ton á heimavelli um helgina en
hangir í meðalmennsku um miðja
úrvalsdeildina.
Tóm í
Skotlandi
Einn allra frægasti rígur milli
nokkurra knattspyrnuliða í heim-
inum er milli Glasgow Rangers
og Celtic og kveður svo rammt að
hatri milli stuðningsmanna fé-
laganna að þeir vingast ekki einu
sinni við hvern annan utan bolt-
ans. Nú er hins vegar tómarúm í
hjörtum Celtic-aðdáenda eftir að
Rangers varð gjaldþrota og sent
niður í þriðju deildina í Skotlandi.
Væri allt eðlilegt væri Celtic fyrir
löngu komið með gott forskot í
annars lélegri skoskri deild en
svo er ekki. Stórliðið er aðeins
einu stigi á undan Hibernian eftir
helgina.
Rafa í ruglinu
Roman Abramovich hlýtur að
klóra sér duglega í hausnum
eftir að hafa ráðið Rafa Benitez
í skyndingu sem nýjan en
tímabundinn þjálfara Chelsea.
Liðið hefur halað inn heil tvö stig
undir hans stjórn í þremur leikj-
um og með slíkan mannskap að
það er ekkert minna en ömur-
legt. En þó Rússinn ráði og reki
menn jafnt ört og aðrir karlmenn
skipta um nærbuxur er ólíklegt að
Benitez fjúki áður en tímabilinu
lýkur. Hann kostaði skildinginn
og er með fínan samning þótt
tímabundinn sé.
Bale til Spánar
Margir telja Gareth Bale hjá
Tottenham besta bakvörð heims
en hann er þekktari fyrir sóknar-
tilburði sína en varnarleik. Slíkt á
meira skylt við sóknarbolta þann
sem leikinn er af liðum á Spáni en
Englandi enda telur fyrrverandi
félagi Bale hjá Tottenham, Luka
Modric sem nú er hjá Real Madrid,
að Bale eigi að drífa sig sem fyrst
suður eftir. Bale mundi falla eins
og flís við rass hjá stórliðunum þar
í landi en hann er nú ekki beint
að standa sig illa í London heldur.
Þjálfari Tottenham, Villa-Boas,
er óánægður með slíkar bolla-
leggingar enda er Bale lykilmaður.