Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2012, Síða 23
Fólk 23Mánudagur 3. desember 2012
Gefur Mæðrastyrksnefnd ilmvötn
Þ
að er gott að geta glatt
mæður sem ná ekki endum
saman sérstaklega á þess-
um tíma árs,“ segir Sigrún
Lilja Guðjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Gyðju. Fyrirtækið var
að bæta þriðja ilmvatninu í safnið,
dömuilmvatninu Heklu. Af því tilefni
ákvað Sigrún Lilja að sleppa stórum
kynningarviðburði á ilmvatninu, líkt
og áður hefur tíðkast, og gefa í stað-
inn Mæðrastyrksnefnd ilmvötn sem
nemur kostnaði slíkt viðburðar.
„Jólagjafir eru stór þáttur í jóla-
veisluhaldi Íslendinga og það finnst
öllum gaman að gleðja ástvini sína
á jólunum. En ekki allir hafa efni á
því og þar fannst okkur við geta lagt
hönd á plóginn með því að gefa ilm-
vötn í jólapakka í jólaúthlutun,“ segir
Sigrún Lilja sem er afar stolt af Heklu.
„Áður en framleiðsla á Heklu
hófst sóttum við vatn við Hekluræt-
ur sem notað var í framleiðsluna og
sendum það út ásamt hraunmolum
sem að þessu sinni eru festir við fal-
lega lyklakippu sem vafin er utan um
ilmvatnsglasið. Við lögðum sérstak-
lega mikla vinnu í umbúðirnar og er
ég mjög stolt af þeim,“
segir Sigrún og bætir við að
Heklu-ilmurinn sé sætur, kvenlegur
og munúðarfullur með sætri vanillu
og viðarundirtóni. Gyðja framleið-
ir einnig dömuilmvatnið EFJ Eyja-
fjallajökul og herrailminn VJK
Vatnajökul en að sögn Sigrúnar Lilju
hafa móttökurnar á ilmunum ver-
ið framar vonum. „Íslendingar hafa
tekið ilmvötnunum okkar rosalega
vel og við erum afar þakklát fyrir
það og í anda jólanna langar okkur
að gefa til baka.“ n
indiana@dv.is
M
orgunþátturinn Magasín,
sem verið hefur verið í
loftinu alla virka morgna
á útvarpsstöðinni FM 957
síðasta árið, hefur ver-
ið tekinn af dagskrá. Þátturinn var í
umsjá Ernu Dísar Schweitz, Þórhalls
Þórhallssonar og Brynjars Más Valdi-
marssonar og naut töluverðra vin-
sælda hjá ákveðnum hópi hlustenda.
„Þau voru búin að standa sig rosa
vel í loftinu og gera ýmsa góða hluti
en þátturinn náði ekki því flugi sem
við vorum að vonast eftir. Við ákváð-
um því að breyta aðeins til,“ segir
Heiðar Austmann, dagskrárstjóri út-
varpsstöðvarinnar FM 957, aðspurð-
ur hvers vegna þátturinn var tekinn
af dagskrá.
„Við förum fyrst og fremst eftir
hlustunartölum og þegar við sáum
að þátturinn var ekki að ná því marki
sem við vorum að setja okkur og
því flugi sem við héldum að yrði, þá
þurftum við að setjast niður og spá
í hvað við vildum gera. Niðurstaðan
varð því miður þessi.“
Ástandið best á Rás 1
Miðað við athugasemdir á Face-
book-síðu þáttarins þá virðast margir
koma til með að sakna þess að vakna
með þremenningunum á morgnana.
Útvarpsmaðurinn Yngvi Eysteins-
son hefur tekið við keflinu og er nú
með morgunþátt á milli 7.00 og 10.00
virka daga.
„Það hafa engar ákvarðanir verið
teknar um framhaldið, en við mun-
um gera eitthvað sniðugt á nýju
ári,“ segir Heiðar þegar blaðamaður
fiskar eftir því hvort hlustendur FM
957 megi eiga von á öðrum þætti í
svipuðum dúr.
Nú þegar Erna Dís er horfin á
braut eru einungis eftir tvær konur
sem þáttastjórnendur hjá útvarps-
stöðinni, á móti tíu körlum. Það er því
ljóst að töluvert hallar á hlut kvenna.
Í raun eru konur almennt í minni-
hluta þegar kemur að þáttastjórn í
útvarpi á Íslandi. Á Bylgjunni eru
einungis tvær á móti sextán körl-
um í þáttastjórn og Á X-inu FM
977 er engum þætti
stýrt af konu. Hjá
Ríkis útvarpinu er
ástandið þó betra. Á
Rás 1 eru hlutföll-
in á milli kynjanna
nánast jöfn, en
það hallar á hlut
kvenna á Rás 2.
Strákarnir
hugsanlega
athyglissjúkari
„Það hefur einhvern
veginn alltaf verið
meira pláss fyrir karl-
menn í útvarpi. Konur
hafa kannski verið minna
fyrir það að koma sér áfram
í útvarpi í gegnum tíðina,“
segir Heiðar aðspurður hvort
þeir hjá FM 957 hyggist bæta
hlut kvenna á stöðinni á nýju ári.
Hann segist hafa orðið var við
það þegar auglýst hefur ver-
ið eftir þáttastjórnendum að
karlmenn hafa átt mikinn
meirihluta umsókna. „Við
erum auðvitað alltaf opnir
fyrir því að finna hæfileik-
aríkar stelpur í útvarp. Við
höfum einmitt verið mjög
heppnir með það í gegn-
um árin að það hafa mjög
hæfileikaríkar og flottar stelp-
ur komið til okkar og verið í
vinnu á FM.“ Heiðar segist vilja
halda hlutfallinu á milli kynj-
anna eins jöfnu og hann getur.
En hefur hann einhverjar
skýringar á því af hverju konur virðist
síður sækjast eftir því en karlmenn
að starfa í útvarpi? „Það er rosalega
erfitt að segja til um það og eflaust er
það persónubundið. Kannski erum
við strákarnir bara athyglissjúkari en
stelpurnar.“
Heiðar segir þó ekki útséð
með að Erna Dís, einn af
stjórnendum Magasín, fái
að spreyta sig frekar á
stöðinni. „Það eru ýms-
ar pælingar í gangi
sem ég get ekki alveg
sagt frá eins og stað-
an er núna. En hún
er ekkert endilega
búin að kveðja okk-
ur,“ segir Heiðar að
lokum. n
solrun@dv.is
Hallar á konur í
þáttastjórnun
n Morgunþátturinn Magasín tekinn af dagskrá
Þátturinn Magasín liðinn undir lok Heið-
ar Austmann dagskrárstjóri segir þáttinn ekki
hafa náð því flugi sem vonast var eftir.
Mynd af facebook
„Kannski
erum við
strákarnir bara
athyglissjúkari
J
ónína Benediktsdóttir ákvað
að láta gott heita eftir að hún
komst ekki á lista uppstill-
ingarnefndar Framsóknar-
flokksins. Hún segist sátt við
ákvörðun sína en ákvað að vera
ekki viðstödd þegar listinn var
samþykktur á aukakjördæmis-
þingi Framsóknarmanna í Reykja-
vík. Hún mætti þó engu að síður
snemma um morguninn og kom
með „bílfarm af bakkelsi“, að sögn
framsóknarmanns sem tók þátt í
valinu og á Facebook-síðu sinni
segist glettin Jónína hafa „stillt
sér á bak við eldavélina“, hug-
tak sem annar framsóknarmaður,
Guðni Ágústsson, gerði frægt fyrir
nokkrum árum. n
Bílfarmur
af bakkelsi
n Sátt þrátt fyrir allt
n Í foreldrafélaginu
n Ilmvatnið Hekla frá Gyðju er komið á markað
L
inda Pétursdóttir, heilsuræktar-
frömuður og fyrrverandi
fegurðar drottning, nýtur sín í
foreldrahlutverkinu.
Hún er í stjórn foreldra félags
Álftanesskóla og á fullveldis daginn var
haldinn þar sérstakur góðgerðadagur.
Linda sagði frá þessu á Facebook-síðu
sinni og hvatti sem flesta til að
mæta:
„Jæja, farin að leggja
mitt af mörkum ásamt hin-
um í stjórn Foreldrafélags
Álftanesskóla. Hvet ykkur
öll til að gera ykkur glaðan
dag og mæta. Mér verður
plantað niður við að selja
miða í Söguferðir um Nesið
fagra.“ n
Linda P leggur
sitt af mörkum
nýtur sín
Linda blómstrar í
foreldrahlutverkinu.
Sigrún Lilja Sigrún Lilja ákvað
að halda ekki stóran kynningar-
viðburð líkt og hún gerði þegar hin
ilmvötnin komu á markað.
Mynd eggeRt JóhanneSSon
S
öngkonan geðþekka Emiliana Torr-
ini er samkvæmt heimildum DV að
skipuleggja flutning heim til Íslands.
Hún eignaðist sitt fyrsta barn, strák,
6. september 2010 og hefur búið með syni
sínum og kærasta í Brighton á Englandi
undanfarin ár.
Emiliana Torrini
að flytja heim