Gripla - 20.12.2006, Page 223
KRISTJÁN EIRÍKSSON
Ögmundur Helgason
28.7. 1944 – 8.3. 2006
ÖGMUNDUR Helgason fæddist á Sauðárkróki 28. júlí 1944, elstur fimm syst-
kina. Hann lést á Landspítalanum 8. mars 2006. Foreldrar hans voru Helgi
Einarsson, sjómaður, og kona hans, Sigríður Ögmundsdóttir. Ögmundur ólst
upp á Sauðárkróki og gekk þar bæði í barna- og gagnfræðaskóla utan einn
vetur sem fjölskyldan bjó á Akranesi. Hann fór síðan í Menntaskólann á Akur-
eyri og varð stúdent þaðan (utan skóla) vorið 1965. Hann lauk B.A. prófi í
íslensku og sagnfræði frá Háskóla Íslands 1972. Haustið 1973 varð hann
kennari í íslensku við Menntaskólann við Tjörnina og síðan við Sund og þar
kenndi hann til 1983. Jafnframt kennslu stundaði hann nám á cand. mag. stigi
í sagnfræði og tók próf í uppeldis- og kennslufræði 1981. Cand. mag. prófi í
sagnfræði lauk hann 1984. — Samhliða námi og kennslu vann Ögmundur
margvísleg störf, svo sem handrita- og prófarkalestur fyrir ýmsa útgefendur.
Nokkur sumur (1969–1973) vann hann á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga og
kynntist þá rækilega frumheimildum um sögu héraðsins og nýttist sú þekking
honum vel er hann gekk til liðs við útgefendur Skagfirðingabókar 1973 og
ritstýrði síðan næstu árgöngum hennar (VII.–XII.) til 1983. Ögmundur kynnt-
ist konu sinni, Rögnu Ólafsdóttur frá Neskaupstað, á menntaskólaárum sínum
og giftust þau á nýársdag 1966. Börn þeirra eru Helga, fædd 15. september
1965, og Ólafur, fæddur 15. febrúar 1976.
Þau hjón, Ögmundur og Ragna, voru í Kaupmannahöfn á árunum 1983–
1985 þar sem Ragna stundaði nám við Danmarks Lærerhøjskole. Ögmundur
fékkst þá meðal annars við handritarannsóknir á Árnastofnun (Det Arna-
magnæanske institut) og vann þar til vors 1986. Eftir heimkomuna hóf hann
störf á Handritadeild Landsbókasafns 1986. Grímur Helgason var þá forstöðu-
maður Handritadeildar og gerðist Ögmundur smám saman gagnkunnugur
handritasafni deildarinnar undir handleiðslu hans. Var það honum dýrmætur
skóli en það vita þeir best, sem sinnt hafa handritarannsóknum, hversu miklu
Gripla XVII (2006):221–225.