Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 32

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 32
30 Þáttabygging kennslukönnunar við Háskóla Íslands Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Meginásaþáttagreining – meðaltal staðhæf- inga Í 3. töflu er niðurstaða meginásaþáttagreiningar meðaltals 21 staðhæfingar í 518 námskeiðum í kennslukönnun við H.Í. vorið 2004. Reiknað var meðaltal hverrar staðhæfingar í hverju námskeiði og síðan þáttagreint. Hornréttur snúningur að varimax-lausn gaf skýra niður- stöðu. Samkvæmt samhliðagreiningu (parallel analysis) eru þrír þættir í gagnasafninu með sama inntaki og þættirnir þrír í 2. töflu. Þættirnir þrír skýra rúmlega 71% dreifingar staðhæfinganna. Þættirnir þrír skýra vel dreifingu einstakra staðhæfinga (h2). Þegar leifar eru skoðaðar á mun milli raunverulegrar fylgni milli staðhæfinga og spáfylgni út frá þáttunum þrem kemur í ljós að 33 leifar eða 15% allra leifa eru hærri en 0,05. Hleðslur staðhæfinga á tiltekinn þátt eru afgerandi og markverðar í öllum tilvikum. Hleðslur 14 staðhæfinga sem tilheyra fyrsta þætti eru allar 0,67 eða hærri á þennan þátt (meðaltal hleðslna er 0,80). Hleðsla þessara staðhæfinga á aðra þætti (þætti II og III) er lág og ómarkverð (meðaltal hleðslna á þátt II er 0,15 og á þátt III 0,16). Með einni undantekningu (Námskeiðið er bæði örvandi og krefjandi) eru hleðslur staðhæfinganna 14 á aðra þætti 0,26 eða lægri á þátt II og III. Hleðsla einnar staðhæfingar (Námskeiðið er bæði örvandi og krefjandi) á þátt III er markverð (0,39). Fimm staðhæfingar hlaða afgerandi á þátt II. Meðaltal hleðslna þessara staðhæfinga á þátt II er 0,83. Með einni undantekningu eru hleðslur þessara staðhæfinga á aðra þætti lágar og ómarkverðar eða á bilinu 0,04 til 0,16. Ein staðhæfinganna fimm (Stúdentar fá nægar leiðbeiningar/aðstoð um notkun tækja/áhalda) hefur markverða hleðslu á þátt I. Tvær staðhæfingar mynda þátt III. Þessar staðhæfingar hafa afgerandi og háar hleðslur á þennan þátt en lágar og ómarkverðar hleðslur á þátt I og II (á bilinu 0,10 til 0,28). Alfastuðull þáttanna þriggja er á bilinu 0,88 til 0,97. Þegar meðaltal staðhæfinga í námskeiðum er notað er áreiðanleiki þátta hár og viðunandi. Meginásaþáttagreining eftir háskóladeildum – einstök svör stúdenta Meginásaþáttagreining var notuð til að þáttagreina staðhæfingarnar 21 í átta af ellefu deildum við H.Í. Hornréttur snúningur að varimax-lausn gaf skýra niðurstöðu. Einstök svör stúdenta í grunnnámi voru þáttagreind. Gögnin voru ekki þáttagreind í þrem deildum, Guðfræðideild, Lyfjafræðideild og Tannlæknadeild, þar sem fjöldi svara í þessum deildum var ekki nægjanlegur til að gera þáttagreiningu. Niðurstöður þáttagreininganna koma fram í 4. töflu. Samkvæmt samhliðagreiningu eru þrír þættir í öllum deildum. Sömu staðhæfingar hafa markverðar og hæstar hleðslur á sömu þætti í öllum deildum. Þrjár staðhæfingar hafa markverðar hleðslur á þætti sem þær tilheyra ekki: (a) Námskeiðið er bæði örvandi og krefjandi (0,42 á þátt III í Læknadeild), (b) Stúdentar fá nægar leiðbeiningar/aðstoð um notkun tækja/áhalda (0,37 á þátt I í Verkfræðideild), og (c) Stúdentar hafa nægan aðgang að kennara utan kennslustunda (0,32 á þátt II í Læknadeild). Aðrar staðhæfingar hafa háar og afgerandi hleðslur í öllum deildum á þann þátt sem þær tilheyra (á bilinu 0,52 til 0,86) en lágar og ómarkverðar hleðslur á þætti sem þær tilheyra ekki (á bilinu -0,13 til 0,39). Þáttabygging kennslukönnunarinnar er því stöðug á milli deilda. Þættirnir þrír skýra á bilinu 59,21% (Lagadeild) til 66,97% (Hjúkrunarfræðideild) af heildardreifingu 21 staðhæfingar. Þætt- irnir þrír skýra að meðaltali á bilinu 56% (Félagsvísindadeild) til 67% (Hjúkrunar- fræðideild) af dreifingu einstakra staðhæfinga (h2). Þegar leifar eru skoðaðar á mun milli raunverulegrar fylgni milli staðhæfinga og spáfylgni út frá þáttunum þrem í deildunum átta kemur í ljós að á bilinu 22 leifar eða 10% leifanna (Raunvísindadeild) til 54 leifar eða 25% leifanna (Læknadeild) eru hærri en 0,05. Alfastuðull fyrsta þáttar er á bilinu 0,93 (Lagadeild) til 0,97 (Hjúkrunarfræðideild), annars þáttar á bilinu 0,91 (Félagsvísindadeild) til 0,96 (Lagadeild) og þriðja þáttar á bilinu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.