Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Qupperneq 50

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Qupperneq 50
um skólastarf þeir hafa verið að drekka í sig á lífsgöngu sinni. Sé þetta ekki gert er ólíklegt að kennaranemar þroski hugsun sína að ráði í kennaranáminu (Richardson, 1996). Þekkingin sem þeir öðlast í kennaranáminu verður þá tímabundin yfirborðsþekking sem gufar upp í návígi við raunverulegt skólastarf en eftir sitja gömlu forhugmyndirnar – og allt verður sem fyrr. Meðal þeirra fræðimanna sem hallast að slíkum hugmyndum eru Korthagen og félagar hans í Utrecht í Hollandi. Þeir telja að best sé að snúa dæminu við miðað við það sem almennt gerist í kennaraskólum: Í stað þess að kenna fólki fræðin og senda það síðan út á vettvang að beita þeim eigi kennaraskólar að einbeita sér að því að hjálpa kennaranemum að þróa hugmyndir sínar út frá þeirri reynslu sem þeir öðlast á vettvangi, fara úr praksís yfir í fræðin frekar en andstæðu leiðina. Þetta kalla þeir félagar raunhæfa kennaramenntun (realistic teacher education). Raunhæf kennaramenntun Árið 1999 birtist grein í Educational Researcher sem vakti talsverða athygli og fékk sérstök verðlaun Bandarísku samtakanna um menntarannsóknir, AERA (American Educational Research Association) sem gefa út fyrrnefnt tímarit. Greinin ber yfirskriftina Linking Theory and Practice: Changing the Pedagogy of Teacher Education og höfundar hennar eru tveir hollenskir fræðimenn, Fred A. Korthagen og Jos P. A. M. Kessels, en þeir starfa við Háskólann í Utrecht í Hollandi. Eins og yfirskriftin gefur til kynna boðar greinin nýja hugsun um kennaramenntun. Höfundarnir benda á að flestir kennaraskólar virðist ganga út frá hugmyndinni um yfirfærslu fræðanna, þ.e. þeirri hugmynd að kennaranemar eigi fyrst að tileinka sér fræðin og síðan beita þeim á vettvangi skólans. Þessi hugmynd, segja þeir, gengur ekki upp og draga fram eftirfarandi ástæður: • Í fyrsta lagi ber að hafa í huga að kennaranemar koma inn í kennaraskóla með djúpstæðar forhugmyndir um skólastarf, byggðar á margra ára reynslu af skólum (sbr. Richardson, 1996; Lortie, 1975). Forhugmyndirnar eru gjarnan á skjön við þær kenningar sem kenndar eru í kennaraskólanum en þar sem þær eru djúpstæðar halda þær velli og virka jafnvel sem vörn eða einangrun gagnvart kenningum fræðimanna. • Í öðru lagi verðum við að horfast í augu við það að fólk tileinkar sér ekki nýjar hugmyndir eða endurskoðar afstöðu sína nema það finni hjá sér löngun eða ástæðu til að gera slíkt. Ef kennaranemi sér ekki ástæðu til að tileinka sér fræðin þá er hæpið að hann geri alvarlega tilraun til að læra þau í einhverri dýpt - heimfæra þau – eins og Guðmundur Finnbogason hefði líklega orðað það. • Í þriðja lagi eru þau fræði sem haldið er að kennaranemum í kennaranámi oft þess eðlis að þau koma að takmörkuðum notum í kennslustofunni (sbr. Kennedy, 1999). Þar er „allt á fullu“ eins og við segjum stundum, kennaraneminn hefur í mörg horn að líta og þarf stöðugt að vera að bregðast við nemendum. Við slíkar kringumstæður hafa kennisetningar (fræði) tilhneigingu til að „gufa upp“ hafi þær á annað borð verið heimfærðar. Í ljósi þess sem hér hefur verið upptalið og í ljósi rannsókna sem styðja þessar staðhæfingar, segja Korthagen og Kessels, er merkilegt til þess að hugsa hvað kennaraskólar halda fast í „beitingarlíkanið“ (application-of- theory-model). Þeir segjast hafa farið víða og kynnt sér starfshætti margra kennaraskóla og yfirleitt séu menn við sama heygarðshornið - jafnvel í þeim tilvikum þar sem kennaranámið hefur verið endurskipulagt! Þá bæti menn bara við fræðum, í þeirri trú væntanlega að kennaranemar þurfi meiri fræði til að standa sig vel á vettvangi. Korthagen og félagar hans í Utrecht vilja fara aðra leið og þeir gera það í praksís. Í greininni sem hér er til umfjöllunar (Korthagen og 48 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Að kenna í ljósi fræða og rannsókna
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.