Peningamál - 15.05.2013, Page 49

Peningamál - 15.05.2013, Page 49
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 1 3 • 2 49 þessum mælikvörðum gæti endurspeglað mismunandi aðferðafræði á bak við þessa mælikvarða. Meðalvinnutími er þó enn undir langtíma- meðaltali og því líklegra að hann lengist á ný samfara aukinni atvinnu en að hann styttist. Fleiri fyrirtæki vilja fjölga starfsmönnum en fækka Rúmlega 9% fleiri fyrirtæki vildu fjölga starfsmönnum á næstu sex mánuðum en fækka þeim samkvæmt niðurstöðum könnunar Capacent Gallup sem var framkvæmd í mars sl. meðal 400 stærstu fyr- irtækja landsins. Bæði vildu fleiri fyrirtæki fjölga starfsmönnum nú en í síðustu könnun og færri fækka starfsmönnum. Aðeins í sjávarútvegi og fjármálastarfsemi hafa fleiri fyrirtæki áform um að fækka starfsfólki en fjölga. Mestu umskiptin, bæði frá síðustu könnun og könnuninni sem gerð var á sama tíma í fyrra, áttu sér stað meðal fyrirtækja í byggingastarfsemi en í mars sl. vildu 44% þeirra fjölga starfsmönnum. Gert ráð fyrir hægari fjölgun heildarvinnustunda á spátímanum ... Þar sem nú er útlit fyrir að hagvöxtur verði minni á spátímanum en spáð var í febrúar er gert ráð fyrir heldur hægari fjölgun heildarvinnu- stunda á spátímanum. Í ár er þó gert ráð fyrir svipaðri fjölgun og í síðustu spá eða 1,1% en heldur hægari fjölgun út spátímann. Þar sem horfur eru á meiri hagvexti en sem nemur fjölgun heildarvinnustunda, er áætlað að framleiðni vinnuaflsins muni halda áfram að aukast á tímabilinu. Hún jókst um 1,2% í fyrra og mælist nú ríflega 6% meiri en hún var þegar fjármálakreppan skall á haustið 2008. Áætlað er að framleiðni vinnuaflsins aukist um 1,8% að meðaltali á ári á þessu og næstu tveimur árum, sem er lítillega undir langtímaleitnivexti og minni en gert var ráð fyrir í febrúarspánni. Efnahagsbatinn verður því að nokkru leyti án samsvarandi fjölgunar heildarvinnustunda. ... en horfur um atvinnuleysi svipaðar Eins og fram kom hér að framan hefur þróun atvinnuleysis það sem af er ári verið áþekk en þó heldur betri en gert var ráð fyrir í febrúar. Atvinnuleysishorfur til næstu þriggja ára eru svipaðar og þær voru í síðustu spá. Gert er ráð fyrir að mælt atvinnuleysi verði um 4,6% á þessu ári, um 4,2% á því næsta og um 4% í lok spátímans. Endurskoðun á heildarlaunatölum Hagstofunnar Hagstofan birti í mars endurskoðaðar tölur út frá þjóðhagsreikningum um heildarlaun á árunum 2007-11 sem sýna að laun hækkuðu nokkru minna á fyrstu árum kreppunnar en fyrri tölur höfðu bent til. Á móti kemur að launahækkanir áranna 2010 og 2011 virðast hafa verið meiri en fyrri tölur gáfu til kynna. Launastigið er þó um 1½% lægra á öllu tímabilinu en fyrri tölur bentu til. Á sama tíma birti Hagstofan einnig fyrstu tölur fyrir síðasta ár og sýna þær heldur meiri hækkun heildarlauna en gert var ráð fyrir í febrúarspánni eða 8,5% í stað 7,8%. Launahækkanir áranna 2010-12 eru því að jafnaði um 1 prósentu meiri á ári en gert var ráð fyrir í febrúarspánni. Launaþróun á fyrsta fjórðungi þessa árs var í samræmi við febrúarspána. Launavísitalan hækkaði um 2,4% á milli fjórðunga og nam árshækkun vísitölunnar 5,2%. Umsamin launahækkun ársins sem 1. Grunnspá Seðlabankans 2. ársfj. 2013 - 2. ársfj. 2016. Heimildir: Vinnumálastofnun, Seðlabanki Íslands. Mynd VI-6 Heildarvinnustundir og atvinnuleysi 1. ársfj. 2007 - 2. ársfj. 20161 Breyting frá fyrra ári (%) % af mannafla Heildarvinnustundir (v. ás) Atvinnuleysi (árstíðarleiðrétt, h. ás, andhverfur kvarði) -14 -12 -10 -8 -6 -4 -2 0 2 4 6 ‘16201520142013201220112010200920082007 10 9 8 7 6 5 4 3 2 1 0 1. Landsframleiðsla sem hlutfall af heildarvinnustundum. Árstíðarleiðrétt gögn Seðlabankans. Grunnspá Seðlabankans 1. ársfj. 2013 - 2. ársfj. 2016. Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands. Mynd VI-7 Framleiðni vinnuafls 1. ársfj. 2007 - 2. ársfj. 20161 Vísitala, 3. ársfj. 2008 = 100 90 95 100 105 110 115 ‘16201520142013201220112010200920082007 Heimild: Hagstofa Íslands. Mynd VI-8 Laun og launatengd gjöld Ma.kr. Tölur Hagstofu Íslands birtar í mars 2012 Tölur Hagstofu Íslands birtar í mars 2013 650 700 750 800 850 900 950 2012201120102009200820072006

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.